Úrval - 01.04.1968, Blaðsíða 58
56
ÚRVAL
inber persóna. Ekki hefði þurft
neinn einstakan mann til að fram-
selja hann.
Með öðrum orðum: hverjar voru
þær upplýsingar, sem Júdas hafði
að selja? Og voru þær nokkurs virði
og hverjum gátu þær komið að
gagni?
Hvað Júdas snertir þá eru guð-
spjöllin full mótsagna og samheng-
ið svo óljóst að vísindamenn hafa
annað hvort afskrifað söguna sem
hreinan uppspuna eða seinni tíma
þjóðsögu.
Nú getum við litið svo á að Júdas
hafi „framselt" Krist til andstæð-
inga hans, en þá er næsta spurn-
ing: hver handtók hann? Hver sá
í rauninni um handtökuna? Hin
fremri guðspjöll gefa í skyn, að
hann hafi verið handtekinn af
stjórnlausum lýð eftir skipun frá
„æðstu prestunum og hinum lærðu,
ásamt öldungunum" (Mark.14,15).
Þ.e.a.s. þjónum Gyðinglegra yfir-
valda landsins, sem Júdas hafði átt
skiptin við.
Það sem fyrst vekur nú athygli
er það, að handtakan er alls ekki
skipulögð. Nú átti að leiða Krist
fyrir dómstól Gyðinga, Sandhedrin,
og yfirheyra hann. En þar virðist
all skipulagt og engin tilviljun eða
óundirbúið. Það er hugsanlegt, ef
Kristur hefur verið uppreisnar-
maður, að einhverjir framkvæmda-
samir borgarar hafi rænt honum
og fært hann Rómverjum. En ef
Gyðingar ætluðu að ákæra hann og
stefna honum fyrir rétt sinn, þá
hefðu þeir átt að taka hann til fanga
á venjulegan hátt, þar sem róm-
verskir hermenn hefðu aldrei tekið
hann höndum, aðeins til þess að
leiða hann fyrir Gyðingadómstól,
sem hafði aðeins dómsvald í trú-
arefnum. Frávik Jóhannesar í þessu
atriði er sérlega mikilvægt. í
fjórða guðspjallinu er nefnilega
sagt frá því, að Júdas hafi leitt
varðmennina og nokkra æðstu
presta og farisea með sér til að-
seturs Krists (Jóhannes 18,3). Hið
dularfulla orð varðmenn er mikil-
vægt, vegna þess, að á grísku merk-
ir það herdeild og bendir til róm-
versku sveitarinnar, sem hafði að-
setur í Antoniuturninum í muster-
inu og nokkru aftar (Jóhannes
18,12) er foringi þeirra kallaður
chiliarchos sem þýtt er á latínu
með tribunus, sem aftur þýðir liðs-
foringi og er þá orðið greinilegt, að
enda þÖtt lýðurinn væri stjórnlaus,
sem tók Krist höndum, þá var þó
rómverskur herflokkur „í fylgd“
með honum.
Það var sem sé rómversk herdeild
sem tók Krist og er það nefnt hér
til að sýna að sökin var Rómverja,
en ekki Gyðinga, en það kemur í
bága við þá tilhneigingu kristin-
dómsins að hvítþvo Rómverja.
Þetta er smáatriði, sem ekki getur
hafa verið samið eftir atburðinn.
En hvers vegna vildi Júdas kalla
til rómverska herdeild? Það hefur
hann eflaust alls ekki gert. Þetta
atriði, þar sem er sambandið milli
hinna rómversku og Gyðinglegu
yfirvalda, er og verður okkur gjör-
samlega hulið.
Þetta hefur verið gagnrýnt eins
og mörg önnur atriði í þessum und-
arlegu frásögnum. Vísindamenn eru
flestir sammála um, að seinasta