Úrval - 01.04.1968, Page 114
S AMB AN DSRIKIÐ
BRASILÍA
Eftir JOHN GUNTHER.
Brazilía nær yfir hér
um bil helming Suður-
Ameríku og er eitt
margbreytilegasta land
jarðar, hvað viðvíkur
gróðri, jarðvegi, málmum í jörð,
íbúum og siðum þeirra og atvinnu-
háttum. Þar býr fimmta fjölmenn-
asta þjóð jarðar, en vart getur að
líta ólíkari mannflokka í sambýli.
Þar var eina keisaradæmið í Suð-
ur-Ameríku og þar var síðast
stofnað lýðveldi í þeirri álfu, —
og ekkert Ameríkuríkja hefur kom-
izt nær því að leysa kynþáttavanda-
málið. Þar er portúgalska aðal-
málið, en Portúgal réð yfir land-
inu í 3 aldir. Þar hafa aldrei orðið
blóðugar styrjaldir né verulegar
blóðsútiiellingar vegna uppreisna.
Sambandsríkin eru 22 og í þeim
eru 32 borgir með meira en 100.000
íbúum. Brazilía er eina ríkið í Suð-
ur-Ameríku, sem getur orðið stór-
veldi. Þar eru gífurlegar náttúru-
auðlindir. Landið er mesti kaffi-
framleiðandi heims, annar mesti í
framleiðslu maíss, sykurreyrs og
kakós. Þar eru 16% af skógum jarð-
arinnar og þriðjungur af öllum
hennar járnnámum og einnig finn-
ast þar feikn af öðrum málum. Þó
er ekki búið að rækta nema 5%
af ræktanlegu landi, helmingur
þjóðarinnar er mjög fákunnandi,
meðalárstekjur eru aðeins 70 doll-
arar og barnadauði mikill.
Hvers vegna býr svona bláfátæk
þjóð í jafnauðugu landi? Þar er við
mörg vandamál að stríða, en mest
aðkallandi er nú að hefjast handa
um ræktun hásléttunnar inn í land-
112
Readers Digest