Úrval - 01.09.1970, Síða 3
„HIN BRENNANDI spurning átt-
unda áratugs tuttugustu aldar er
þessi: Munurn við gefast upp fyrir
umhverfi okkar eða tekst okkur að
semja frið við náttúruna og bceta
fyrir það tjón, sem við höfum unnið
á lofti okkar, landi og vatni?“ —
Þannig fórust Nixon Bandarikja-
forseta orð fyrir nokkru. í þeim er
fólginn kjarni mesta vandamáls
okkar tíma. Það er því sannarlega
ekki að ástæðulausu, að Úrval tekur
þetta mál til meðferðar og birtir at-
hyglisverða grein um það fremst í
þessu hefti. Hið ilmandi loft, sem
landar Nixons forseta önduðu eitt
sinn að sér, er nú mettað óhrein-
indaögnum og ótal eitruðum efnum.
Flugmenn segja, að dökkur hjúpur
sjáist úr sjötíu mílna fjarlœgð grúfa
yfir nœstum sérhverri bandarískri
borg.
ÞÓTT MENGUNARVANDAMÁLIÐ
sé ef til vill ískyggilegast í Banda-
ríkjunum, gœtir þess miklu víðar en
þar. Til að mynda mun vera geysi-
þéttur mökkur yfir Tokió, sem ógn-
ar lifi og heilsu íbúanna. Og Sviss-
lendingar, sem eru orðlagðir fyrir
hreinlæti og snyrtimennsku, urðu
skelfingu lostnir, þegar í Ijós kom,
að tvö af stœrstu vötnum þeirra,
sem hingað til hafa verið talin speg-
ilslétt og kristalstœr, verða grugg-
ugri með hverjum degi vegna úr-
gangsefna, sem í þau streyma frá
borgum og verksmiðjum.
ALMENNT ER álitið, að fyrst tœkn-
in með öllum sinum kostum hafi
fœrt manninum þessi erfiðu vanda-
mál umhverfis og mengunar, hljóti
hún einnig að geta leyst þau fyrir
hann. Sumir svartsýnir vísindamenn
eru þeirrar skoðunar, að það sé alls
ekki víst. Sú lausn, sem tœknin
finni gegn menguninni, kunni sem
hœgast að skapa enn ný vandamál.
Hvað sem slíkum hrakspám líður,
heldur stríðið við mengunina áfram
— barátta upp á líf og dauða.
BÓKIN FJALLAR að þessu sinni
um snillinginn og stórmennið Benja-
mín Franklin; manninn, sem var allt
í senn: uppfinningamaður, rithöf-
undur, stjórnmálamaður, blaðaút-
gefandi og prentari. Kímnigáfa hans
Kemur út mánaðarlega. Útgefandi: Hilmir hf.,
Skipholti 33, Reykjavík, pósthólf 533, sími 35320.
Ritstjóri: Gylfi Gröndal. Afgreiðsla: Blaðadreif-
ing, Skipholti 33, sími 36720. Verð árgangs krónur
500.00. í lausasölu krónur 50.00 heftið. Prentun og bókband: Hilmir hf.
Myndamót: Rafgraf hf.
wm