Úrval - 01.09.1970, Blaðsíða 122

Úrval - 01.09.1970, Blaðsíða 122
120 ÚRVAL daginn gekk William á fund föður síns. Franklin var það ógerlegt að fyr- irgefa syni sínum, er þeir stóðu þarna augliti til auglits. Samtal þeirra var fremur kuldalegt. Þeir ræddu um fjármál sín. Að þeim um- ræðum loknum hafði Franklin keypt allar þær landareignir, sem William átti í nýlendunum, og hjó þannig á síðustu tengsl sonarins við Ameríku. Franklin sýndi enga miskunn í þeim samningum. Franklin varð að greiða hátt gjald fyrir að stuðla að því, að Ameríka fengi sjálfstæði. Það gjald varð hann að greiða með eigin hjartablóði, því að það snerti þann ættingja, sem verið hafði honum hjartfólgnastur. Því var eins farið með Franklin og Abraham í Gamla testamentinu. Þess hafði verið krafizt af honum, að hann fórnaði sínum eigin syni. En munurinn var sá, að nú hafði Drottinn ekki skorizt í leikinn og aftrað honum að gera það. HIN RÍSANDI SÓL Það virtist sem allir Fíladelfíu- búar væru saman komnir til þess að taka á móti Franklin, þegar skip hans lenti við hafnarbakkann í Markaðsstræti. Ailar gagnstéttir voru troðfullar. Allir buðu velkom- inn þann eina mann, sem skipaði svipaðan sess og George Washing- ton í hjörtum samlanda sinna. Og þeir fylgdust með því af miklum fögnuði, þegar Sally, dóttir Frank- iins, faðmaði hann að sér á þrepum heimilis síns. Hann sagði við vini sína, að hann væri kominn heim aftur til þess að eyða þeim fáu ævidögum, sem eftir væru, við ýmsar frístundaiðkanir. Hann sagðist nú ætla að vinna að sjálfsævisögu sinni og ýmsum vís- indalegum athugunum og tilraun- um. En hann hafði komizt að því innan eins sólarhrings, að það var vonlaust fyrir hann að reyna að sleppa úr klóm stjórn- málanna. Pennsylvanía var sundur- tætt af þrem öflum, sem börðust um yfirráðin yfir fylkinu. Og öll þessi öfl reyndu að fá Franklin til lið- sinnis við sig. Tæpum mánuði eftir heimkomuna var hann kosinn í Framkvæmdaráð Pennsylvaníu og gerðist svo forseti þess. Fylkisþing- ið kaus hann síðan forseta fylkisins, en embætti það samsvaraði nokkurn veginn hinu núverandi fylkisstjóra- embætti. Það kom illa við Franklin, er hann sá, að sambandið milli fylkjanna hafði versnað ógnvænlega frá stríðs- lokum. Nú varð vart við þá til- hneigingu í hinum ýmsu fylkjum, að þau létu sig ákvarðanir og fyrir- mæli þjóðþingsins litlu skipta, en héldu að mestu sínar eigin götur í efnahagsmálum og stjórnmálum. Smám saman varð það augljóst, að Sambandslögin, sem stjórna átti hinni nýfæddu þjóð eftir, voru hald- lítil og jafngiltu næstum algeru stjórnleysi. í aprílmánuði árið 1787 sendi Franklin sitt sögulega frétta- bréf til Parísar: „Stjórnarskrá okk- ar er almennt álitin gölluð, og hér á að koma saman þing í næsta mán- uði til þess að endurskoða hana og bera fram tillögur um breytingar á henni.“ Á Stjórnskrárþingi þessu neytti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.