Úrval - 01.09.1970, Blaðsíða 74
72
ÚKVAL
lífi þúsunda sárfátækra Eþíópíu-
manna.
Presturinn og ungi maðurinn fóru
að ræða saman. Og Downey komst
fljótt að því, að hérað þetta, Eri-
trea, sem var eitt sinn yfirráða-
svæði hinnar stórkostlegu drottn-
ingar af Sheba, var nú fyrir löngu
komið í megnustu niðurníðslu. Líf-
ið hér var ömurlegt, og fjöldi lands-
búa dó þegar á unga aldri, enda
höfðu margir þeirra misst móðinn,
en reyndu samt að draga fram lífið
með því að rækta hinn þurra jarð-
veg. Þarna fyrir fannst alls engin
heilbrigðis- né læknisþjónusta.
Barnadauðinn var einna hæstur í
öllum heiminum. Farsóttir geisuðu
þar alltaf öðru hverju, og féllu
landsbúar jafnan fyrir þeim í
hundraðatali.
„Eina ráðið til þess, að fólkið
megni að rísa upp úr eymd sinni,
er að veita því menntun", sagði
presturinn hnugginn í bragði. En
menntunarmöguleikar í þorpinu
voru alls engir, og allar tilraunir
fólksins til þess að koma á fót skól-
um höfðu mistekizt. Þegar þeir
komu til þorpsins Shinnara, benti
presturinn á rústirnar af kofa, sem
gerður hafði verið úr .leir og strái.
„Þetta eru nú leifarnar af skólan-
um okkar“, sagði hann. „Monsún-
regnið skolaði honum burt, og fólk-
iS er orðið svo vonsvikið, að það
megnar ekki að reyna aftur“.
Hugh Downey fann, að vellíðun-
arkenndin var nú á bak og burt,
er hann kom aftur til herfjarskipta-
stöðvarinnar í Asmara. Hann gat
ekki gleymt ömurleikakenndinni,
er hafði gripið hann, þegar hann
gerði sér grein fyrir því, að fálm-
kenndar tilraunir þorpsbúa til þess
að veita börnum sínum einhverja
menntun höfðu algerlega mistek-
izt. Downey fann, að hann var smám
saman að taka miskilsverða ákvörð-
un. Hann ákvað, að með einhverj-
um ráðum skyldi hann hjálpa þeim
til þess að reisa skólahús, sem stað-
izt gæti monsúnregnið.
Downey er nú ekki lengur í hern-
um. En hann er samt enn í Eþíópíu.
Hann er alls staðar þekktur í Eri-
treu undir nafninu „Herra Hugh“.
Og hann hefur þegar afrekað alveg
ótrúlega miklu. Síðustu sjö árin
hefur hann hleypt af stokkunum
fjölda mörgum áætlunum, sem miða
að því, að fá landsbúa til þess að
hjálpa sér sjálfir. Og þessi sameig-
inlega viðleitni hans og þeirra er
að gerbylta lífi þúsunda Eþíópíu-
manna. Af afrekum þessum má
nefna tíu sterkbyggða þorpsskóla,
munaðarleysingjahæli fyrir 100
munaðarleysingja, en í tengslum
við það er dagheimili fyrir aðra
150, fæðingardeild, sem hefur þeg-
ar bjargað lífi mæðra og barna
þeirra svo að hundruðum skiptir,
enn fremur 5000 binda almennings-
bókasafn og myndarleg't 75 rúma
sjúkrahús. Þar að auki hefur hann
kennt fólkinu að grafa brunna.
Hann hefur barizt gegn mýrarköldu-
faröldrum, gert jarðyrkjutilraunir
til þess að hjálpa þorpsbúum til að
bæta og auka uppskeruna og út-
býtt matvælum og fatnaði í tonna-
tali meðal fátæklinga.
Þessi sýnilegu afrek Downeys til
hagsbóta fyrir Eþíópíumenn eru að
vísu mikilsverð. En samt er annað