Úrval - 01.09.1970, Qupperneq 29

Úrval - 01.09.1970, Qupperneq 29
ÉG ER AFBRÝÐISÖM 27 töfrandli, tilfinninganæmur, djúp- spakur, fyridinn, riddaralegur og uppnuminn. Því miður er það ekki aðeins í veizlum, sem rekast má á aðrar konur. Slík tækifæri hafa nefnilega sína kosti. Eiginkonan getur virt samkeppandann fyrir sér í fullum gangi, hún getur „óvart“ hellt úr glasi yfir kjólinn hennar, hún getur blandað sér í maraþonsamræður eða fengið höfuðverk. Það er nefnilega þrotlaust framboð af öðrum konum úti í hinum stóra heimi, riturum og aðstoðarstúlkum á tannlæknastof- um, kvenframkvæmdastjórum og gömlum „skotum“ í Minneapolis. Ég á ekki við, að við eiginkonurn- ar eyðum hverju augnabliki vöku okkar gagnteknar ótta um, að eig- inmenn okkar falli í faðm annarra kvenna. En ég minnist þess vel, þeg- ar maðurinn minn fékk reikning fyrir tvo frá gistihúsi einu í Penn- sylvaniu, og ég hafði aldrei stigið þangað fæti mínum. Ég minnist þess líka, þegar ég fann lykil að bíla- hóteli í bænum okkar í snyrtiborðs- skúffunni hans. Ég þarf ekki að taka það fram, hverjar sýnir birtust i huga mér, áður en ég komst að þeirri óhrekjanlegu staðreynd, að þetta var einmitt skíðahótelið, þar sem hann hafði farið á skíði með elzta syni okkar, og að lykillinn að bílahótelinu hafði verið skilinn eftir af gesti, sem hafði verið í heimsókn hjá okkur. Það virðist oft ekki skipta máli, hvort eiginmenn okkar eru á stefnu- móti með sínum ungu, dýrlegu rannsóknaraðstoðarstúlkum (eigin- maður minn hefur aldrei gamlar og Ijótar rannsóknaraðstoðarstúlkur) eða hvort þeir eru bara að leita álits þeirra á gin- og klaufaveikinni. Þegar við erum afbrýðisamar, hverfur öll skynsemi út í veður og vind, og við gerum allt það and- styggilega, fyrirlitlega, örvænting- arfulla, óttaþrungna og stundum hlægilega, sem fólki hættir til að gera, þegar það er reitt eða sært. Steinþagnaraðferðin er í miklu uppáhaldi hjá afbrýðisömum eigin- konum, vegna þess að þannig tekst að refsa manninum, en glata samt ekki virðuleik konunnar. Þær, sem hafa ekki til að bera þá sjálfsstjórn að geta haldið sig við steinþögnina, geta alltaf gripið til „munnlegra" árása! Þessar „munnlegu"1 árásir geta verið mjög fjölbreytilegar, allt frá röksemdafærslum til háðsglósa eða jafnvel til úthellingar svívirð- inga, sem tár fylgja oft með. (Mér geðjast vel að háðglósum, en mér gengur samt miklu betur, er ég út- helli svívirðingum, þ.e. kalla hann til dæmis saurlífissegg eða kynbrjál- æðing)! Connie vinkona mín segir, að hve- nær sem afbrýðisemin grípi hana, setjist hún niður hjá eiginmanni sín- um og hvetji hann tii þess að leysa frá skjóðunni með þeirri röksemda- færslu, að hún sé skynsöm og raun- sæ kona, sem geti tekið raunveru- legum staðreyndum á skynsamlegan hátt, hverjar svo sem þær kunni að vera. „Og segi hann mér nokkru sinni frá því, að hann haldi við ein- hverja," bætir Connie við, „ætla ég að grípa kjöthnífinn og reka hann beint í gegnum hjartað á honum.“ Aðrar konur grípa til þess að
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132

x

Úrval

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.