Úrval - 01.09.1970, Page 111

Úrval - 01.09.1970, Page 111
MAÐURINN SEM ÓGNAÐI ELDINGUNNI 109 ekki um að ræða venjulegt bænar- skjal. Hann sagði, að mál þetta varð- aði aftur á móti innsta kjarna heimsveldisstefnu Bretlands. Gat brezka stjórnin vænzt þess nú eða í framtíðinni að fá menn, sem sann- að höfðu hollustu sína, til þess að stjórna nýlendunum? Wedderburn brýndi raustina og sagði, að svarið við þessari spurn- ingu yrði neitandi, ef Leyndarráðið tæki þá beiðni alvarlega, sem dr. Franklin hefði lagt fram. Hann sagði að þing Massachusetts gæti ekki bent á „eitt einasta dæmi um, að þeir Hutchinson og Oliver hefðu rækt embættisstörf sín illa“, en samt bæði nýlenduþingið nú konung um að setja Hutchinson og Oliver af, „vegna þess að þeir hefðu glatað trausti fólks“, eins og það væri orðað. Hvers vegna höfðu þeir glatað slíku trausti? Wedderburn minntist ekki á þá staðreynd, að þeir Hutc- hinson og Oliver höfðu staðið í stöð- ugum deilum við nýlenduþingið, allt frá því að þeir tóku við stöðum sín- um. Wedderburn hrópaði, að eina ástæðan fyrir því, að slíkt traust hefði glatazt væri bréfasending Franklins til Boston. Wedderburn beindi nú allri sinni eitruðu mælsku gegn Franklin: „Dr. Franklin reyndist því vera helzti höfuðpaur alls þessa samsæris gegn þessum tveim nýlendustjórum Hans Hátignar". Wedderburn hrópaði, að það, sem gerði þetta ráðabrugg svo sérstaklega ógeðfellt, væri notkun einkabréfa í slíku augnamiði. „Það er leyndardómur, hvernig bréf þessi hafa komizt í hendur annarra en hinna réttu eigenda þeirra, leynd- ardómur, sem dr. Franklin ber að útskýra,“ öskraði hann. „Ég vona það, lávarðar minir, að þér munuð merkja, já, brennimerkja þennan mann til heiðurs landi voru, Evrópu og öllu mannkyninu,“ sagði hann. „Hann hefur fyrirgert allri virðingu þjóðfélaga og manna.“ Hann lamdi í borðið, hnussaði fyrir- litlega og öskraði margar setningar, meðan á árás þessari stóð. Hann lýsti Franklin sem manni, er hefði orðið drukkinn af valdakennd og áliti sig vera ráðherra fyrir „hið mikla ameríska lýðveldi“, sjálfstæða ríkisheild, sem hann einn hefði rétt til þess að vera talsmaður fyrir. Franklin mátti þola þennan flaum svívirðinga í næstum heila klukku- stund, en lávarðarnir og margir áheyrenda veltust um af hlátri yfir hvössustu broddum Wedderburns. Margir áheyrenda trúðu því ekki, að nokkur maður gæti setið þögull undir slíkri árás. En Franklin tókst þetta, þótt það virtist ógerlegt. Jer- emy Bentham, sem var þá ekki orð- inn frægur heimspekingur eins og síðar varð, sagði, að Franklin hefði staðið þarna „allan tímann eins og klettur, í sömu stellingum, og ekki látið þennan miskunnarlausa storm hagga hið minnsta við sér.“ Þetta var meira en stormur fyrir Franklin. Þetta voru stjórnmálaleg og tilfinningaleg ragnarök fyrir hann. Hann sá nú allar vonir sínar um sættir deyja. Sú ást, sem hann hafði fengið á Englandi og Englend- ingum á langri ævi, var nú særð holundarsári. Han ngat varla trú- að því, að þessir menn, sem hann
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.