Úrval - 01.09.1970, Side 123

Úrval - 01.09.1970, Side 123
MAÐURINN SEM ÓGNAÐI ELDINGUNNI 121 Franklin ýtrustu krafta sinna til þess að leysa af hendi síðasta stór- afrek sitt fyrir málstað Ameríku. Þessi 82 ára öldungur gekk næstum daglega frá húsi sínu til Fylkishúss Pennsylvaníu í fjóra mánuði. ,Og þar eyddi hann hverjum tímanum á fætur öðrum í umræður um fátæk fylki og rík fylki, stór fylki og lítil fylki, þrælafylki og fylki frjálsra manna og ótal önnur vandamál, sem þeir menn, er sömdu stjórnarskrána, urðu að horfast í augu við og reyna að leysa. Allt frá fyrsta degi Stjórnarskrár- þingsins var Franklin tákn þess sáttaranda, sem þingið þarfnaðist svo ákaflega. Aðeins hann hefði haft bolmagn til þess að keppa við Wash- ington um forsetasæti á þinginu. En hann vék til hliðar af frjálsum vilja. Franklin kvaddi sér hljóðs, eitt sinn er deilurnar urðu svo ákafar, að það virtist sem þingið væri að leysast upp. Hann minnti þingið á það, að þegar Meginlandsþingið hafði áður komið saman í þessum sama sal, hefðu verið fluttar þar bænir á hverjum degi, bænir, sem var „svar- að af náð“. Hann hvatti til þess, að þessi siður yrði tekinn upp að nýju. Tillaga þessi náði ekki fram að ganga. Og var það aðallega fyrir til- stilli manna sem Alexanders Ham- iltons, er óttaðist, að almenningur tæki slíkt sem merki um „ósam- komulag innan þingsins“, sem það var í raun og veru. En uppástunga Franklins varð samt til þess að breyta andrúmsloftinu nokkuð. Menn þeir, sem höfðu átt þar í bitr- um deilum undanfarið, fundu nú innra með sér trú á viðleitni þessa þings þrátt fyrir allt. Tillaga þessi gaf Franklin tækifæri til þess að vara þingfulltrúa við því, ,,að verk þeirra yrðu óspart gagnrýnd og orð- stír þeirra lítill á komandi öldum, ef þeir létu hina smásmugulegu hagsmunastreitu einstakra héraða og fylkja sundra sér“. í öllum þessum umræðum barðist Franklin skilyrðislaust gegn fram- gangi hverra þeirra ráðstafana, sem miðuðu að því að takmarka frelsi ýmissa sérhópa Ameríkumanna og skapa tortryggni milli þeirra. Hann lagðist gegn þeirri uppástungu, að meina skyldi innflytjendum að gegna opinberum embættum fyrstu 14 dvalarár þeirra í Ameríku. Franklin stakk þess í stað upp á því, að bann þetta skyldi aðeins taka til fyrstu fjögurra áranna. Hann sner- ist og enn harðar gegn þeirri hug- mynd að takmarka kosningaréttinn við þá menn, sem eignir ættu. Hann varði einnig það atriði, sem veitti Þjóðþinginu vald til þess að kæra forseta fyrir valdníðslu. Afstaða hans markaðist ætíð af ákafri löng- un hans til þess, að Ameríkumenn mættu nota það frelsi, sem þeir höfðu öðlazt, nota það af ábyrgðar- tilfinningu og gætni. Það varð augsýnilegt, er þingslit Stjórnarskrárþingsins nálguðust, að hin raunverulega hætta var fólgin í þeim möguleika, að hin einstöku fylki mundu hafna hinni breyttu stjórnarskrá. Flestar málamiðlunar- tillögur höfðu aðeins verið sam- þykktar með naumum meirihluta. Og margir þingfulltrúa voru enn ó- ánægðir og sættu sig ekki við orðinn hlut. Því þurfti einhverja „formúlu"
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.