Úrval - 01.09.1975, Síða 132
130
ÚRVAL
umbreyta hinni nýju reynslu sinni
i þætti, sem hann gat skilið og
brást þannig við kvíða þeim, sem
sagan um Jónas, sem hvalurinn
gleypti, haíði vakið með honum.
Brian Sutton-Smith, próíessor við
Columbiaháskólann, sem er sér-
fræðingur í barnaleikjum, hefur
myndað orð, sem hann notar til
þess að lýsa því, hvaða þýðingu
dagdraumar hafa fyrir okkur. Hann
talar um „lífgunaráhrif“ þeirra, það
er það hlutverk þeirra að gera allt
meira lifandi fyrir okkur. Dag-
draumar gæða líf okkar lit og spenn
andi dulúð, svo framarlega sem við
gefumst þeim ekki á vald á óheppi-
legum tíma, svo sem á miðjum þýð-
ingarmiklum kaupsýslufundi eða
við stýrið í mikilli umferð. Við
skulum nú athuga hina ýmsu kosti
og gagnsemi dagdraumanna. Með
hjálp þeirra er hægt:
AÐ GERA LÍF SITT MEIRA
SKAPANDI OG GÆÐA ÞAÐ
MEIRI FRUMLEIKA. Sálfræðingar
hafa rannsakað vinnu- og hugar-
starfsmynstur skapandi vísinda-
manna, listamanna og rithöfunda.
Þessir hæfileikamiklu einstakling-
ar gáfu til kynna, að þeir gefi
ímyndunaraflinu oft lausan taum-
inn og leiki sér í huganum að at-
hugun hinna furðulegustu og óvenju
legustu möguleika, sem spretta
fram.
Sumar af mestu vísindauppgötv-
unum okkar komu fram vegna þess,
að einhver var reiðuibúinn að gefa
sig dagdraumum á vald. Michael
Faraday, einn af höfundum rafseg-
ulskenningarinnar, hugsaði sér, að
hann væri frumeind undir þrýst-
ingi og fékk þannig innsýn í áhrif
rafstrauma á frumeindir. Einstein
lét sig dreyma dagdrauma um, hvað
gerðist, ef maðurinn gæti flogið út
í geiminn með hraða ljóssins. Á
grundvelli þessa dagdraums full-
gerði hann nokkra þýðingarmikla
þætti afstæðiskenningar sinnar.
Verkfræðingurinn Charles Ketter-
ing reyndi að ákvarða, hvers vegna
ljósaolía framkallaði fremur „högg“
við brennslu en bensín. Hann sá í
anda ímynd blóms eins, arbutus að
nafni, sem blómstrar snemma vors,
jafnvel þótt það sé hulið snjó. Hinn
rauði litur þess, sem drekkur hrað-
ar í sig hita en aðrir litir, veitti
hinum hugmyndina að tetraethyl-
blýi.
AÐ NOTA FENGNA REYNSLU
TIL ÞESS AÐ RANNSAKA FRAM-
TÍÐINA. Dæmi um þetta er mið-
aldra maður, sem leitaði til sál-
læknis vegna vaxandi spennu og
efasemda um eigin getu. Þegar hann
var að skýra frá dagdraumum sín-
um, minntist hann oft á mjög lit-
ríkan hátt og af mikilli hlýju á
heimsókn sína í bernsku á búgarð
frænda síns. Sállæknirinn kom fram
með þá hugmynd, að dagdraumur
þessi, sem sótti á hann, væri að
skýra honum frá því, hvernig hann
vildi sjálfur verja framtíðinni.
Hann tók nú að endurmeta líf sitt
og starf sem kaupsýslumaður í
stórborg. Raunveruleiki hagkvæmn-
innar hindraði hann í að kasta fyrir
róða starfi sínu og gerast bóndi, en
hann keypti sér land í sveitahér-
aði, þar sem hann gat byggt sér