Úrval - 01.09.1975, Síða 148
146
sem Peter Sydney Ball, fæddan
fyrir tuttugu og sex árum í Ux-
bridge í Middlesex.
Það mátti kannski segja, að vega-
bréfið hefði þegar þjónað nokkr-
um tilgangi. I desember árið áður
hafði lan Ball, en svo kaus hann
að kalla sig, meðan hann gekk enn
að kalla undir sínu rétta nafni,
flogið til Madrid og orðið sér úti
um byssuleyfi hjá spænsku lög-
reglunni. Hann borgaði áttatíu
pund í byssubúð á Plaza de Es-
pana fyrir tvær Astra marghleyp-
ur, fimm skota .38 skammbyssu og
ellefu skota .22.
Þessum byssum hafði nú verið
komið fyrir í Escortinum, ásamt 58
viðbótarhleðslum í þær. Þar var
hann líka með þrenna hvíta bóm-
ullarhanska, en slíka hanska not-
aði hann jafnt og þétt til þess að
skilja ekki eftir sig fingraför. Enn-
fremur hafði hann fjögur sett af
lögregluhandjárnum, en þar af
voru tvö sett læst saman til að
mynda fóthlekki. Og loks má nefna,
að í jakkavasa mannsins var vél-
ritað bréf, stílað til móður fórnar-
lambsins fyrirhugaða.
Að hluta til var kveikjan að þessu
áformi hans saga Fredericks For-
syth: Dagur sjakalans. í þeirri sögu
fitjar enskur morðingi upp á áætl-
un um að myrða Charles de Gaulle.
Áætlun Balls snerist einnig um
þjóðhöfðingja: Hann ætlaði að ræna
einkadóttur Elísabetar Bretadrottn-
ingar, Önnu prinsessu, og halda
henni til fjár. Lausnargjaldið átti
að vera þrjár milljónir punda
(nærri einn og hálfur milljarður
ÚRVAL
islenskra ki'óna á gengi þýðingar-
dags. Þýð.).
Roskni, dökkbiái Austin fólks-
bíllinn rann þýðlega gegnum mið-
borgina — The City. Prinsessan og
maður hennar skröfuðu við hirð-
meyna Rowena Brassey um kvik-
myndina, sem þau höfðu verið að
horfa á. Hún hét Þeyst móti frels-
inu, og síðar fannst þeim það held-
ur kaldhæðnislegur titill, miðað við
það sem á eftir fór.
Austin bíllinn átti það sameigin-
legt með öðrum bílum konungs-
fjölskyldunnar, að hann hafði ekki
skothelt gler í gluggum né heldur
talstöð til nota í neyðartilfellum.
Slíkir hlutir voru álitnir óviðeig-
andi; þar að auki fór drottningin
ekki í launkofa með, að hún hafði
foragt á öryggisbjástri. Bílnum
fylgdi ekkert varðlið á þessari
stuttu leið, og það var engin ástæða
til þess, að lögreglumennirnir, sem
leiddu umferðina á mótum Fleet
Street og The Strand, veittu bílun-
um á eftir þessum nokkra sérstaka
athygli.
Þessi bíll, sem hafði skrásetn-
ingar númerið NGN 1, fór fyrir
Trafalgartorg sunnanvert og slóst
í för með annarri umferð, sem
flóði inn í The Mall, breiðgötu sem
liggur meðfram St. James Park að
Buckingham höil. Ökumaður var
Alec Callander, sem þjónað hafði
konungsfjölskyldunni í tvo áratugi.
Við hlið hans sat James Beaton
lögreglufulltrúi, sem útnefndur
hafði verið „sérlegur lögreglufor-
ingi“ Önnu prinsessu á brúðkaups-
degi hennar fjórum mánuðum fyrr.
Hann var þá þrjátíu og eins árs.