Íslenzk tunga - 01.01.1964, Page 16
14
STEFAN KARLSSON
í öllum rímunum um það að orð með stoðhljóði sé haft í endarími
á móti orði með eldra u (sjá einnig 10. rímu og §3.21). Auk vísu-
orðanna tveggja með stuttkvæðum stoðhljóðsorðum eru 2 ójöfn
vísuorð með síðasta risi stuttu, skaki : maki 16. er., af alls 135
óstýfðum vísuorðum, ef vísuorðunum 7 með stoðhljóðsorðum að
síðasta braglið er sleppt.
011 jöfnu vísuorðin eru stýfð.
7. ríma: Gagaraljóð: 79 erindi.
Nú skal enn í sjaunda sinn
Suðra bátinn leiða hér,
ef að vildi öldin svinn
óðar smíðið þiggja af mér.
Öll 316 vísuorð eru stýfð; engin stoðhljóðsorð í síðasta braglið.
8. ríma: Braghent: 76 erindi.
Attunda skal Austrar skeið úr inni gónta
geisa fram á gjálfrið Onta,
get eg hún beri þó lítinn sóma.
Öll 228 vísuorð eru óstýfð og síðasta ris allra þeirra langt; engin
stoðhljóðsorð í síðasta braglið.
9. ríma: Stafhent (fátt eitt samhent innan um): 76 erindi.
Vörmum fram úr vizku dal
Vindólfs gjöldum hreyta skal
þeim til gamans sem þiggja hrag,
þó að mitt stirðni óðar lag.
Öll 304 vísuorð eru stýfð, nema ef frá eru talin vísuorð með stoð-
hljóðsorðum að síðasta braglið, sem eru 6 alls; 2 þessara orða eru
með stuttri stofnsamstöfu.
10. ríma: Ferskeytt: 87 erindi.
I tíunda sinni í tanna sal
tónar Ijóða bjalla;
fjölgast verður fræðahjal,
þó fari mér þetta varla.
Öll jöfnu vísuorðin 174 eru óstýfð og síðasta ris allra þeirra langt.
Ójöfnu vísuorðin eru öll stýfð, nema hvað eitt þeirra endar á tví-
kvæðum braglið, móður (þgf. af móSir) 38. er., sem rímar við rjóð-