Íslenzk tunga - 01.01.1964, Page 21
GÖMUL HLJÓÐDVÖL í UNGUM RÍMUM
19
mín því lundin lista hrer
við ljóða bundin fansinn er.
Öll 368 vísuorð eru stýfð.
27. rírna: Ferskeytt skothent: 105 erindi.
Skáldin forðum geðs um grund
gjörðu að breyta ræðum,
mjúkum orðum marga stund
miðluðu Sóns af gæðum.
Öll jöfnu vísuorðin 210 eru óstýfð, 2 þeirra með síðasta risi stuttu,
liSi : jriSi 74. er.
Ójöfnu vísuorðin eru öll stýfð; þó enda 6 þeirra á stoðhlj óðsorð-
um, og stofnsamstafa fjegra af þessum orðum er stutt.
28. rírna: Braghent: 111 erindi.
Fram yfir teginn ferjan átta fyrst skal renna
Dvals á mar, ef drengir nenna
við dverginn einhvörn hana að kenna.
011 vísuorðin 333 eru óstýfð, en 324 ef frá eru dregin þau 9 vísu-
orð sem hafa stoðhlj óðsorð að síðasta braglið; 3 þessara orða hafa
stutta stofnsamstöfu, letnr : betur : getur 7. er. í þremur öðrum vísu-
orðum er síðasta ris stutt, svara : liara : spara 98. er.
29. rírna: Samhent: 100 erindi.
Verður enn af værðar lind
Vindólfs renna drafnar hind;
borð eru hennar veik og vind,
varla er nein á farinu mynd.
Öll 400 vísuorð eru stýfð; þó hafa 32 þeirra stoðhljóðsorð að
síðasta braglið, og í 8 þessara orða er stofnsamstafan stutt.
30. ríma: Ferskeytt: 104 erindi.
Læt eg enn af greina grund
Grillings flaustrið renna,
geysi stutt þó gefist mér stund
göfuga hvíld að finna.
Öll j öfnu vísuorðin 208 eru óstýfð og öll með síðasta risi löngu.
Meðal ójöfnu vísuorðanna, sem annars eru öll stýfð, eru 8 sem
enda á stoðhljóðsorðum; 2 þessara orða hafa stutta stofnsamstöfu.