Morgunblaðið - 28.03.1991, Blaðsíða 99
' MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MARZ 1991
99
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Þessir hringdu ...
Billjardstofur
Móðir unglings hringdi:
„Mig langar að biðja forráða-
menn billjardstofunnar í Mjódd í
Breiðholti að hætta að lána ungl-
ipgum peninga til spilamennsku.
Ég vil einnig vekja athygli for-
eldra á þessu vandamáli þar sem
ég veit þess dæmi að unglingar
skulda stofunni stórar upphæðir.
Mér þykir leitt að eigandi stof-
unnar skuli hafa þennan háttinn
á því það er sannarlega dapurlegt
fyrir skólafólk að heija sumar-
vinnuna með spilaskuldir upp á
þúsundir eða tugþúsundir króna.
Ósk mín er að billjardstofan leggi
þessa lánastarfsemi niður.
Óhress með Pétur Gaut
Ágúst Þórsson hringdi:
„Eg er mjög óhress með verk-
efnið sem valið var við endur-
vígslu Þjóðleikhússins, Pétur
Gaut. Ég tel að það hefði staðið
menningu íslendinga nær að taka
upp íslenskt stykki við þetta tæki-
færi. Það eru til svo mörg góð
íslensk leikrit sem hægt hefði
verið að flytja. Það er alveg ófært
að vera að flytja þunglamaleg
verk úr norskri menningu sem
vígslustykki Þjóðleikhúss íslend-
inga. Þetta er móðgun við íslenska
menningu.
Skíðaskópoki
Anna hringdi:
„Þann 20. janúar sl. tók dóttir
mín í misgripum salomon skíð-
askópoka í rútunni frá Bláfjöllum
til Reykjavíkur. Pokinn sem hún
tók var alveg eins og hennar eig-
in poki en þessi innihélt hins veg-
ar svarta skíðaskó, hennar eru
hvítir. Þú sem ruglaðist líka og
ert með hvíta skó hjá þér en sakn-
ar svörtu skónna ert beðinn að
hringja í mig, í síma 71208.“
Armband
Þann 9. febrúar tapaðist tígul-
mynstrað gullarmband við Mið-
vang í Hafnarfirði, við Jöklafold
í Grafarvogi eða á Holiday Inn.
Finnandi er vinsamlegast beðinn
um að hafa samband við Berg-
lindi í síma 53342 eða 651910.
Góðum fundarlaunum er heitið.
góðan upplestur Valdimars Flyg-
enring á Vefaranum mikla frá
Kasmír eftir Halldór Laxness.
Valdimar les söguna ákaflega
vel. Þá vil ég taka undir það, sagt
var í Velvakanda á dögunum, að
mjólkin hér í Reykjavík er alls
ekki nógu góð, hún er eins og
hvert annað vatnsbland.“
Kettlingur
Hálfstálpaður kettlingur, mjög
fallegur, fæst gefins. Upplýsingar
í síma 666929.
Högni
Ungur högni fannst nálægt
Miðbænum fyrir skömmu. Hann
er svartur og hvítur, alveg
ómerktur en er með far eftir hál-
sól. Upplýsingar í síma 173461.
Læða
Grábröndótt læða hefur verið
að flækjast við Miklubraut 72 um
viku tíma. Hún er með rauðbleikt
hálsband sem á er fest lítil kúla.
Hún er mjög spök og vinaleg en
virðist ekki rata heim til sín. Upp-
lýsingar í síma 612229 fyrir há-
degi og á kvöldin.
Lyklar
Húslyklar fundust við Háaleit-
isbraut, þrír lyklar á kippu með
Garfieldmerki. Upplýsingar í síma
„Ég vil lýsa ánægju minni með 670729.
Góður upplestur
Hólmfríður hringdi:
Þökk fyrir „Þín hlýju bros“
Þetta er nafn á lítilli fallegri
ljóðabók, sem kom út rétt fyrir síð-
ustu jól. Það vill stundum bera við
að litlar bækur, sem ekki eru því
meira auglýstar, gleymast bæði í
bókabúðum og heima í bókahillun-
um, þegar bókaútgáfuflóðið skellur
á. Ljóðabókin „Þín hlýju bros“ barst
mér í hendur fáum' dögum fyrir
jól. Gerði ég þá lítið annað en renna
augum yfir blaðsíðurnar. Svo var
það einn drungalegan febrúardag
að mér datt í hug að lesaTiana með
gaumgæfni mér til andlegrar upp-
lyftingar. Ég varð ekki fyrir von-
biigðum.
Höfundurinn Guðrún V. Gísla-
dóttir hefur áður gefið út Ijóðabók-
ina „Ég syng þér ljóð“ en þar fylg-
ir hveiju ljóði falleg teiknuð mynd
eftir skáldkonuna, svo af því má
sjá að þenni er fleira til lista lagt
en Ijóðasmíði. Sú bók seldist fljót-
lega upp. Síðari ljóðabókin, þ.e.
„Þín hlýju bros“ hefur að geyma
bæði andleg og veraldleg ljóð, rímuð
og órímuð: mjög vel ort, ekki orð
á innihalds, eins og stundum vill
brenna við nú á dögum. Þau benda
á jákvætt viðhorf til lífsins.
„Hin hlýju bros er það sem Guð oss gefur
gjöfin er í hendi sérhvers manns
hið sterka afl er sigrað heiminn hefur
þín hlýju bros á vegi kærleikans.“
Höfundur finnur til með einstæð-
ingnum og lítilmagnanum, sem hef-
ur kannski gleymst þegar hann
getur ekki lengur þjónað öðrum
með kærleika sínum og umönnun.
Ljóðið „Á elliheimilinu" ber þessu
glögglega vitni.
„Gef mér aðeins aupablik
af ævi þinnar tíma
á tölvuvæddri tækniöld
en talaðu ekki í síma.
Ég þrái aðeins handtak hlýtt
því hjarta slær í barmi.
Ég leiddi þig sem lítið bam
þú ljúft mig vafðir armi.“
Mig langar aðeins til að senda
skáldkonunni þakklæti mitt fyrir
ágæta bók. Mætti ég fá meira að
heyra og sjá.
Filippía Kristjánsdóttir
Skrifið eða hringið til
Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til
að skrifa þættinum um hvaðeina,
sem hugur þeirra stendur til —
eða hringja milli kl. 10 og 12,
mánudaga til fdstudaga, ef þeir
koma því ekki við að skrifa. Með-
al efiiis, sem vel er þegið, eru
ábendingar og orðaskiptingar,
fyrirspurnir og frásagnir, auk
pistla og stuttra greina.
Víkveiji skrifar
Víkveiji hefur heimsótt nokkur
frystihús úti á landsbyggðinni
að undanförnu og víða er svo kom-
ið að jafnvel þrátt fyrir atvinnu-
leysi á viðkomandi stöðum tekst illa
og oft alls ekki að manna í nauðsyn-
legustu störf til þess að framleiðslan
geti gengið eðlilega fyrir sig. A
undanfömum árum hefur aukin
hagræðing og skipulagning átt sér
stað í allmörgum frystihúsum og
þá hefur það þýtt markvissari vinn-
uskiptingu í hinum ýmsu þáttum
vinnslunnar. Gjarnan vilja stjórn-
endur fiskvinnslunnar miða við ein-
hvern ákveðinn tonnafjölda á dag,
ekki síst með tilliti til þess hve er-
fitt er að fá mannskap í frystihúsin.
Það hlýtur að vera áhyggjuefni
þegar svo er komið að fólkið í
landinu vill síst af öllu vinna þar
sem aðalverðmætasköpunin fer
fram fyrir þjóðarbúið. Lítið dæmi
sá Víkverji svart á hvítu frystihúsi
í Vestmannaeyjum og segir það
mikla sögu um þá skattpíningu og
miðstýringu sem nú á sér stað í
þjóðfélaginu. Ungur maður á spari-
merkjaaldri, tuttugu og tveggja ára
gamall, hafði unnið óhemju mikið
eina vikuna vegna manneklu og
launin hans eftir eina viku voru
93.600 krónur, en þegar búið var
að taka af honum skattana, spari-
merkin og lífeyrissjóðsgjöld fékk
hann í peningum 31.200 kr. Fyrir
fólk sem ekki þarf að binda launin
sín í sparimerkjum hækkar útborg-
unin um 15%, en það segir sig sjálft
að þegar mánaðarlaun hjá fisk-
vinnslufólki geta komist upp í
374.400 kr. með óheyrilegri vinnu
og útborgunin er 124.800 þá er það
ekki mjög hvetjandi til þátttöku í
verðmætasköpuninni.
Fiskvinnslunámskeið sem haldin
hafa verið um allt land um
nokkurra ára bil hafa leitt til betri
nýt.ingar á hráefni og meðferðar á
fiski, en það vekur forvitni Víkveija
hvers vegna forráðamenn þjóðar-
innar og fiskvinnslunnar taka þessi
mál ekki fastari tökum, því kröfur
tímans og markaðanna sem við
þurfum að selja okkar framleiðslu
verða sífellt strangari og í takt við
það hlýtur þróun í íslenskri fisk-
framleiðslu að kalla á meiri vöru-
vöndun, meiri fullvinnslu til þess
að auka verðmætin og um leið
meiri menntun fískvinnslufólks í
landinu, en lykilatriðið virðist þó
vera það að í fiskvinnslunni séu
greidd frambærileg laun fyrir mjög
erfiða og ábyrgðarfulla vinnu. Þjálf-
að starfsfólk í fískvinnslu er gulls
ígildi og ef það helst ekki í vinnu
vegna lágra launa eða mikils vinnu-
álags þá lækkar hráefnið í verði sem
leggur kjölinn að íslensku velferðar-
þjóðfélagi.
Páskahelgin er að ganga í garð
og ýmist munu menn nota
páskana til þess að slappa af og
hvílast í anda kyrrðardaganna, eða
njóta útivistar með vinum og vanda-
mönnum svo fremi að veðurguðirn-
ir haldi sig þokkalega á mottunni.
Hvað sem menn gera þá óskar Vík-
vetji landsmönnum öllum gleðilegra
páska.
Ást er...
3-Z2.
... óstjómlega duttlunga-
full.
TM R«g. U.S. Pat OH.—all ríghts res«rved
® 1991 Los Angelas Tknw Syndicate
Þetta er sýnikennsluþátt-
urinn: Gerðu sjálfur við
bilinn þinn ...
Getur þetta ekki beðið til
morguns, þá er sjórinn
hlýrri?
HÖGNI HREKKVÍSI
P/ZZAl>e?/<3!