Morgunblaðið - 28.03.1991, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MARZ 1991
Endurreisnarstarf í húsnæðismál-
um sem bíður nýrrar ríkisstjómar
eftirÞórhall
Jósefsson
Mikið endurreisnarstarf í hús-
næðismálum landsmanna bíður
nýrrar ríkisstjórnar að loknum
kosningum í vor:
• Að endurskoða og einfalda
löggjöf um húsnæðismál í heild
sinni.
• Að gera almenningi aftur
kleift að eignast íbúð á viðráðan-
legum kjörum.
• Aðendurreisafijálsanmark-
að með íbúðarhúsnæði utan höfuð-
borgarsvæðisins.
• Að forða byggingarsjóðun-
um frá gjaldþroti.
• Að aflétta skattpíngu
vinstristjómarinnar á íbúðarhús-
næði.
• Að bæta þjónustu við lántak-
endur.
• Að draga úr miðstýringu
húsnæðismála.
Heildstæð löggjöf í stað
bútastefnu
Sérhvert þing síðan vinstri-
stjórnin braust til valda hefur hús-
næðislöggjöfinni verið breytt —
bút og bút í senn — með þeim
afleiðingum að lögin eru svo rugl-
ingsleg að fáir ef nokkrir ná áttum
í þeim frumskógi.
Áætlanir íbúðakaupenda verða
marklausar, þar sem þær eru
vísast úreltar þegar til kastanna
kemur vegna óvæntrar lagabreyt-
ingar.
Lögin vísa út og suður, eru flók-
in og breytingarnar bera í flestu
merki gerræðislegra vinnubragða.
Því verður að endurskoða þau sem
heild með það að markmiði að
setja húsnæðismálum skýran,
heildstæðan og einfaldan laga-
ramma, þannig að hver og einn
geti séð hver réttur hans er.
Sjálfstætt fólk í stað leiguliða
Á tíma vinstristjórnarinnar hafa
möguleikar fólks til að eignast
íbúð verið stórlega skertir. í stað-
inn hefur verið rekin hörð leigu-
liðastefna stjórnvalda.
Sá sem vill kaupa eigin íbúð á
í dag aðeins einn kost: Húsbréfa-
lán með nærri 8% raunvöxtum og
25 ára greiðslutíma.
Á sama tíma er svonefnt félags-
legt kerfi þanið markvisst út, þar
eru boðnir 1% til 4,5% vextir og
lánstími upp í 50 ár. Gallinn er
sá, að íbúarnir verða ævilangt
leiguliðar hins opinbera.
Nýrrar ríkisstjórnar bíður það
stórverkefni að gera almenningi
aftur mögulegt að eignast íbúð í
stað þess að hrekjast inn í leigu-
liðakerfið.
Endurreisn á landsbyggðinni
Utan höfuðborgarsvæðisins
hefur ofuráhersla á félagslegar
íbúðabyggingar valdið offramboði
íbúða og skert eða eyðilagt þá
eign, sem íbúarnir höfðu áður
komið sér upp í íbúðum sínum.
Þar situr fólk uppi með ill- eða
óseljanlegar eignir, verðlitlar og
verðlausar.
Það bíður nýrrar ríkisstjórnar
að endurreisa heilbrigðan markað
fyrir íbúðir utan höfuðborgar-
svæðisins.
„Byggingarsjóðir ríkis-
ins og verkamanna
verða gjaldþrota
skömmu upp úr alda-
mótum ef svo heldur
áfram sem horfir.
Vinstristjórnin hefur
svikið skyldur sínar við
þessa sjóði og skrifað á
framtíðina vandamál
sem nema tugþúsund-
um milljóna króna, í
stað þess að leysa þau.“
Afstýra þarf milljarða tjóni
Byggingarsjóðir ríkisins og
verkamanna verða gjaldþrota
skömmu upp úr aldamótum ef svo
heldur áfram sem horfir.
Vinstristjórnin hefur svikið
skyldur sínar við þessa sjóði og
skrifað á framtíðina vandamál sem
nema tugþúsundum milljóna
króna, í stað þess að leysa þau.
Það bíður nýrrar ríkisstjórnar
að moka þennan flór vinstriflokk-
anna, tryggja afkomu þessara
sjóða og koma þannig í veg fyrir
milljarða tjón skattgreiðenda.
Afnám skattpíningar
Af alkunnri skattpíningaráráttu
sinni hefur vinstriflokkunum tekist
að gera ekkjum og ekklum illkleift
að halda eignum sínum, með sér-
stökum eignarskattauka, ekkna-
skattinum.
Þórhallur Jósefsson
Eignarskattur á íbúðarhúsnæði
hefur reynst vinstriflokkunum
kærkomið tæki til að leggja há-
tekjuskatta á venjulegt alþýðufólk.
Eignarskattur á íbúðarhúsnæði
eykur rekstrarkostnað húsnæðis-
ins og veldur hærra verði á leigu-
markaði.
Það bíður nýrrar ríkisstjórnar
að afnema þennan rangláta skatt.
Bætt þjónusta
Þrátt fyrir Iagaákvæði um að
húsnæðismálastjórn geti samið við
almennar lánastofnanir um af-
greiðslu lána, hefur það ekki verið
gert nema að takmörkuðu leyti í
húsbréfakerfi.
Þjónustuna verður nú að sækja
á einn stað, um eitt símaskiptiborð
þar sem nánast alltaf er á tali, í
Húsnæðisstofnun ríkisins.
Það bíður nýrrar ríkisstjórnar
að hrinda því sjálfsagða máli í
framkvæmd, að færa þjónustuna
út til fólksins, hvar sem það býr
á landinu, að lánastofnanir sem
almenningur á sín reglulegu við-
skipti við annist þessa þjónustu.
Valddreifing í stað
miðstýringar
Tíu manna hópur, húsnæðis-
málastjórn, tekur allar ákvarðanir
um húsnæðismál landsmanna, sem
lúta að einstökum lánveitingum
og margvíslegri stefnumótun.
Á síðustu vinstristjórnarárum
hefur gætt í ríkum mæli enn frek-
ari miðstýringaráráttu, sem best
• sást á frumvarpi um stjórnsýslu-
lega stöðu Húsnæðisstofnunar.
Samkvæmt því frumvarpi áttu all-
ar ákvarðanir að vera teknar við
skrifborð félagsmálaráðherra.
Með öðrum orðum: Koma átti á
(menntuðu) einveldi í húsnæðis-
málum.
Það bíður nýrrar ríkisstjórnar
að dreifa valdi — og ábyrgð — í
þessum málum eins og frekast er
unnt.
Sjálfstæðisflokkur gegn
ósljórninni
Hér er framan hafa aðeins fá-
ein mál verið nefnd af þeim, sem
brýnt er að bæta úr eftir óráðs-
stjórn vinstriflokkanna.
Sjálfstæðismenn vilja hrinda í
framkvæmd þeim umbótum sem
nefndar voru — og mörgum fleiri
— fái Sjálfstæðisflokkurinn til þess
umboð í kosningunum. Saga
óstjórnar vinstriflokkanna og
huldumanna að baki þeim sýnir,
að Sjálfstæðisflokknum einum er
treystandi til þess.
Höfundur er formaður
málefnanefndar
Sjálfstæðisflokksins um
húsnæðismál