Morgunblaðið - 28.03.1991, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MARZ 1991
Ríkið kaupir SS-húsið:
Kjötvinnsluhúsið nýtt
fyrir listastarfsemi
RÍKISSJÓÐUR keypti í gær stórhýsi Sláturfélags Suðurlands við
Laugamesveg og þar verður í framtíðinni miðstöð æðri listmenntun-
ar. Kaupverðið er 430 milljónir en þar af greiðir ríkið 300 milljónir
með tíu fasteignum. Brunabótamat SS-hússins er um 670 milljónir
króna.
SS-húsið er 4.375 fermetrar að
grunnfleti, en gólfflötur er 10.295
fermetrar og það er um 50 þúsund
rúmmetrar. Brunabótamat þess er
um 670 milljónir en söluverðið er
430 milljónir. Ríkið greiðir 300
milljónir með ýmsum fasteignum,
50 milljónir eru staðgreiddar og 80
milljónir verða greiddar með tveim-
ur skuldabréfum, öðru til þriggja
og hinu til sjö ára. Ólafur Ragnar
Grímsson, fjármálaráðherra, og
Steinþór Skúlason, forstjóri Slátur-
félags Suðurlands, undirrituðu
samninginn í gær en f gærkveldi
staðfestu stjórnarmenn SS samn-
inginn á Hvolsvelli.
Eignirnar sem SS tekur upp í
söluna eru tíu talsins. í Reykjavík
VEÐUR
er það húseignin að Engjateigi 1,
þar sem Dansstúdíó Sóleyjar er til
húsa. Húseigin að Súðarvogi 6, þar
sem Rækjuverksmiðja Ingimundar
var, gamla fangelsið að Síðumúla
24-26, tólf ára gamall grunnur að
fangelsi sem er að Tunguhálsi 6
og hluti tveggja hæða nýlegs skrif-
stofuhúsnæðis að Funahöfða 7. í
Kópavogi er það húsið við Fannborg
6, sem var í eigu Hagvirkis. Gamla
Kjarvalshúsið að Sæbraut 1 á Sel-
tjamarnesi gengur einnig upp í
kaupverðið. Ibúðarhúsin að Alfa-
skeiði 50 í Hafnarfirði og Aratúni
26 í Garðabæ ganga einnig upp í
kaupin svo og íbúðarhúsið að Hæð-
argötu 15 í Njarðvík.
I framtíðinni á SS-húsið að hýsa
meginhluta starfsemi Leiklistar-
skóla íslands, Mynlista- og handíða-
skóla íslands og Tónlistarskóla
Reykjavíkur. Að auki er líklegt að
Listdansskóli Þjóðleikhússins fái
þar inni og hugsanlega fær Þjóð-
leikhúsið afnot af húsinu fyrir verk-
stæði og geymslu. Ekki verður þó
flutt strax í húsið því mikið á eftir
að gera áður en hægt verður að
hefja þar starfsemi og er reiknað
með að það kosti um 300 milljónir.
„Það eru vissulega blendnar til-
fmningar sem fylgja því að selja
þetta hús, sem átti að hýsa aðal-
stöðvar og kjötvinnslu SS. Við höf-
um lagt alla okkar alúð í byggingu
þess og beðið með óþreyju eftir að
flytja hingað. En tímarnir breytast
og aðstæður einnig," sagði Steinþór
Skúlason, forstjóri SS. Hann óskaði
nýjum eigendum til hamingju með
húsið og sagðist fullviss að þar yrði
miðpunktur lista í landinu.
VEÐURHORFUR I DAG, 28. MARZ
YFIRLIT í GÆR: Um 700 km suður af landinu er 1.036 mb hæð sem þokast
austnorðaustur en minnkandi lægðardrag fyrir norðan land. Þegar llður á nótt-
ina myndast lægð á Grænlandshafi. Hún verður skammt fyrir vestan land
annað kvöld á hreyfingu norðaustur og dýpkar mjög.
SPÁ: Fram eftir nóttu verður suðvestankaldi eða stinningskaldi víða um iand
með dáiitlum éljum um landið vestanvert en björtu veðri á austanverðu landinu.
Undir morgun þykknar upp með vaxandí sunnanátt, slyddu sunnanlands og
vestan en síðar rigning um mikinn hluta landsins. Enn hvessir þegar líður á
daginn og annað kvöld verður komið versta veður af suðri um mikinn hluta
landsíns, einkum þó um austanvert landið og á hálendinu, en á Vestfjörðum
snýst vindur í hvassa norðanátt með snjókomu.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG: Norðvestlæg átt, sums staðar hvasst og
él við norður- og norðausturströndina en hægari vindur og yfirleitt
þurrt annars staðar. Frost 0-4 stig.
HORFUR Á LAUGARDAG: Vestan- og suðvestanátt, strekkingur
um norðan- og vestanvert landið en hægari í öðrum landshlutum.
Dálítíl súld víða vestaniands en bjart veður austantil. Hiti 1 -5 stig.
x Norðan, 4 vindstig:
* Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
r r r
r r r r Rigning
r r r
* r *
r * r * Slydda
r * r
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
10 Hitastig:
10 gráður á Celsius
ý Skúrir
*
V El
— þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—Skafrenningur
[T Þrumuveður
'Jgi *a
m
VtÐUR VIÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísi tíma
hlti veður
Akureyri 4 úrkoma
Reykjavík 2 snjóél
Bergen 10 skýjað
Helsinkl 0 skýjað
Kaupmannahöfn 9 skýjað
Narssarssuaq +5 snjókoma
Nuuk +9 snjókoma
Ósló 11 léttskýjað
Stokkhólmur 7 léttskýjað
Þórshöfn 8 hálfskýjað
Algarve 18 skýjað
Amsterdam 11 heiðskirt
Barcelona 16 léttskýjað
Berlin 8 lettskýjað
Chícago 15 skúrir
Feneyjar 16 iéttskýjað
Frankfurt 11 léttskýjað
Glasgow 8 mistur
Hamborg 9 skýjað
Las Palmas vantar
London 11 léttskýjað
LosAngeles 10 hálfskýjað
Luxemborg 9 léttskýjað
Madrfd 11 skýjað
Malaga 19 léttskýjað
Mallorca 15 skýjað
Montreal 4 alskýjað
NewYork 7 rignlng
Orlando vantar
París 9 skýjað
Róm 17 skýjað
Vín 4 alskýjað
Washington 10 þokumóða
Winnipeg +11 skafrenningur
Morgunblaðið/Júlíus
SS-húsið sem hýsa mun æðri listamenntun í landinu á komandi árum.
Sæbraut 1 Seltjarnarnesi. Fannborg 6 Kópavogi.
Steinþór sagði í samtali við
Morgunblaðið að þetta væru á viss-
an hátt nauðasamningar. „Það er
viss neyð að hafa aðeins einn við-
semjanda í fasteignaviðskiptum, en
að öðru leyti eru þetta ekki nauða-
samningar. Fasteignirnar sem við
tökum upp f henta okkur reyndar
ekki og verða því allar settar á
sölu,“ sagði Steinþór.
Menntamálaráðherra sagði þetta
stóra stund. „Þetta er mikil stund
fyrir mig og fleiri sem höfum mænt
hingað inn á Laugarnesið um nokk-
urra missera skeið. Hús þetta hefur
gengið undir nafninu SS-húsið en
því hefur ekki enn verið gefíð nafn.
I mínum huga heitir það Listahúsið
í Laugamesi, eða LL-húsið,“ sagði
Svavar Gestsson.
Síðumúli 24-26 Reykjavík.
Álfaskeið 50 Hafnarfirði.
Hæðargata 15 Njarðvík.
Bjarni Daníelsson, skólastjóri
Myndlista- og handíðaskóla íslands,
sagði að þetta væri einn merkasti
atbuður í sögu lista á íslandi í ára-
tugi og Magnús Ámi Magnússon,
fulltrúi nemenda, sagði að nemend-
ur hefðu brugðist skjótt við, enda
búnir að bíða lengi eftir viðundandi
húsnæði, og stofnað Nemendafélag
væntanlegs listaháskóla íslands.
í dag verður opið hús frá klukk-
an 14 til 17 þar sem nemendur og
kennarar Leiklistarskólans, Mynd-
lista- og handíðaskólans og Tónlist-
arskólans í Reykjavík munu láta
„kjötvinnslustöðina iða af lífi í sam-
ræmi við þá framtíð sem nú blasir
við“, eins og segir í fréttatilkynn-
ingu frá fjármálaráðuneytinu.
Súðarvogur 6 Reykjavík.
Engjateigur 1 Reykjavík.
Tunguháls 6 Reykjavík.
Funahöfði 7 Reykjavík.
Aratún 26 Garðabæ.
Brutust inn á bar o g
hlupu á dyr með vín
Lögreglu tilkynnt að sést hefði til
útigangsmanna með eðalvín
FJÖRIR menn brutust inn á veitingastaðinn Lídó við Lækjargötu í
gær, brutu þar upp bar og fóru á brott með það magn af áfengi og
tóbaki sem þeir gátu borið. A leið út af staðnum mættu þeir starfs-
manni og ógnuðu honum með skrúfjárni umleið og þeir hlupu út.
Málið var óupplýst í gærkvöldi en þá hafði lögregla fundið þijár tóm-
ar áfengisflöskur, með merkingu vínveitingahúsa, sem talið er að hafi
tilheyrt feng þeirra.
Starfsmaðurinn kom að mönnun-
um á útleið og var þá greinilegt að
þeir höfðu troðið úlpur sínar út með
áfengi. Þeir otuðu að honum skrúf-
járni og hlupu á dyr. Fyrsta tilkynn-
ing sem lögreglu barst um málið var
frá vegfaranda og á þann veg að
sést hefði til útigangsmanna í göngu-
götunni sem hefðu eðalvín undir
höndum! Þegar komið var á staðinn
voru mennirnir á bak og burt en
þrjár tómar áfengisflöskur merktar
vínveitingahúsum fundust á staðn-
um.
Ekki var ljóst hve mikill fengur
mannanna hafði verið þegar Morgun-
blaðið hafði samband við veitinga-
húsið í gær.
Lögreglan hafði í gærkvöldi hand-
tekið tvo útigangsmenn sem talið var
hugsanlegt að hefðu vitneskju um
málið en þó þótti ekki ljost að þeir
hefðu þarna komið við sögu.