Morgunblaðið - 28.03.1991, Blaðsíða 104
Kaffipokar
FIMMTUDAGUR 28. MARZ 1991
VERÐ I LAUSASOLU 100 KR.
TVÖFALDUR1. vinningur
Akureyrarflugvöllur:
Sprakk á tveimur
hjólum í lendingu
í lendingu Fokker flugvélar Flug-
leiða á Akureyrarflugvelli um átta
leytið í gærkvöldi sprakk á báðum
hjólum á hjólastelli undir vinstri
væng vélarinnar. Fóru þau af felg-
unum þegar þau snertu flugbraut-
ina. Tókst flugstjóranum að rétta
vélina við á brautinni en hún snér-
ist í lendingunni.
Að sögn Arna G. Sigurðssonar,
flugstjóra, var ókyrrð í lofti þegar
vélin kom niður í Eyjafjörðinn og
hafði hann einu sinni hætt við lend-
ingu vegna vindhviðu, sem gekk yfír
völlinn. Þegar flugturn gaf betri vind,
,eins og hann orðaði það, reyndi hann
lendingu öðru sinni. Þegar vélin var
komin niður á fiugbrautina kom
snörp vindhviða aftan undir hana og
lyfti hjólunum frá brautinni. Hafði
hann þá þegar bremsað og við það
harðlæstust hjólin. Þegar hún skall
aftur niður á brautina sprungu dekk-
in og fóru af felgunum. Vélin snérist
en flugmönnunum tókst að rétta
hana af og halda henni beinni á
brautinni. Aðstoðarflugmaður í ferð-
Símamynd/Rúnar Þór
Sprungin hjól Fokker-vélarinnar
sem hlekktist á í lendingu á Ak-
ureyri.
Rockall-málið:
Bretar koma
til viðræðna í
næsta, mánuði
VIÐRÆÐUR íslendinga og Breta
um skiptingu hafsbotnsréttinda á
fRockalI-svæðinu verða haldnar í
Reykjavík dagana 17. og 18. apríl
næstkomandi.
Nefnd brezkra embættis- og
vísindamanna kemur þá hingað til
viðræðna við íslenzka starfsbræður.
inni var Franz Bloder.
Var 30 hnúta vindur á flugvellin-
um og mikil ókyrrð í lofti. Að sögn
flugfreyjunnar, Önnu Dísar Svein-
björnsdóttur, sýndu farþegar fá-
dæma stillingu og rósemi þegar
óhappið varð.
Fjórar Flugleiðavélar biðu eftir að
komast til Akureyrar í gærkvöldi en
ófært varð eftir að vélin lennti vegna
vinda og var öllu flugi aflýst kl. 22.
Áttu flugvirkjar að fljúga norður
með fyrstu vél með varahluti til að
gera vélina fiughæfa að nýju. Að-
sögn kunnáttumanna var það mikið
afrek hjá flugstjóranum að honum
skyldi takast að rétta flugvélina við
á brautinni eftir lendinguna.
Lagt upp í páskaferðalagið
Morgunblaðið/Rax
Ávöxtunarkrafa banka-
bréfa er nú orðin 8%
BANKAMENN merkja að þenslu-
skeið sé að hefjast, m.a. á aukinni
eftirspurn eftir útlánum og þróun
gjaldeyrisviðskipta. Jafnframt
hafa raunvextir verið að hækka á
verðbréfamarkaði og eru ástæður
þess meðal annars taldar fjárþörf
húsnæðislánakerfisins, mikið
framboð húsbréfa og annarra
skuldabréfa, ásamt versnandi
lausafjárstöðu bankakerfisins.
Raunávöxtun bankabréfa hefur
t.d. hækkað frá áramótum og er
nú allt að 8% en sala þeirra hefur
verið lítil það sem af er árinu
miðað við sama tíma í fyrra.
„Okkur virðist að aukin útlán fari
fyrst og fremst tii heimilanna og það
heyrist einnig af töiuverðum inn-
flutningi og sölu á varanlegum mun-
um og neysluvörum," sagði Valur
Valsson formaður Sambands
íslenskra viðskiptabanka.
Þá hefur framboð á skuldabréfum
aukist á á verðbréfaþingi sem hefur
valdið hækkun raunvaxta. Þannig
er ávöxtunarkrafa húsbréfa nú 7,9%
og bankar hafa boðið bankabréf með
allt að 8% vöxtum. Eiríkur Guðnason
stjórnarformaður Verðbréfaþings
Seðlabankans sagði að Seðlabankinn
hefði undanfarið keypt heldur meira
af spariskírteinum ríkissjóðs en hann
hefði selt og því hefði ávöxtunar-
krafa þeirra verið hækkuð í 7,25%.
Ragnar Önundafson, hjá Islands-
banka, sagði, að íslandsbanki hefði
selt bankabréf fyrir um 200 milljónir
frá áramótum. „Bankinn heldur aftur
af sér í þeim efnum vegna þess að
ávöxtunarkrafan er komin í 8%.
Kaupendur vilja heldur kaupa hús-
bréf og atvinnutryggingasjóðsbréf á
sambærilegri ávöxtun. Við getum
ekki tekið inn fé á 8% ávöxtun og
lánað út á 6,5-8,25% sem eru út-
lánsvextir bankans. Þetta er komið
í þær hæðir að bankabréf nýtast
okkur ekki nema með því að hækka
almenna útlánsvexti. Við höfum áður
lýst því yfir að við munum halda
okkar vöxtum óbreyttum fram á vor
enda hafa engar þær breytingar orð-
ið í verðlagsforsendum sem réttlæta
almennar breytingar á óverðtryggð-
um vöxtum. Hins vegar er þróunin
nú augljós staðfesting á því sem við
höfum sagt að ríkissjóður og stofnan-
ir sem starfa með ábyrgð ríkissjóðs
ráða raunvaxtastiginu í landinu.
Bankarnir ráða þar engu um.“
Már Guðmundsson efnahagsráð-
gjafi fjármálaráðherra sagði að
ástæður þessarar raunvaxtahækkun-
ar væri aðallega húsbréfakerfið og
versnandi lausafjárstaða bankanna.
Eiríkur Guðnason tók undir þessar
skýringar en sagðist þó telja, að
þarna væri um skammtímasveiflu að
ræða, og hvatti eigendur húsbréfa
að bíða með að selja þau.
Alþingi samþykkti nýlega lánsfjár-
iög þar sem áform eru um verulega
innlenda lántöku. Már Guðmundsson
sagði að raunvaxtahækkun nú kæmi
lántökuákvörðunum ríkisins ekkert
við. Áform ríkisins væiai aðeins tölur
á biaði en gerðirnar hefðu áhrif á
lánsfjármarkaðinn. Hann benti á, að
ríkið hefði ekkert breytt vöxtum á
spariskírteinum frá áramótum. Það
væri ávöxtunarkrafan á Verðbréfa-
þingi Seðlabankans sem hefði hækk-
að og ríkið hefði engin áhrif á það.
Hæstiréttur:
Fjögurra ára fang-
elsisdómur fyrir
að smygla kókaíni
ÓLAFUR Þór Þórhallsson, 27 ára gamall, hefur í Hæstarétti verið
dæmdur til fjögurra ára fangelsis fyrir aðild að innflutningi að 970
grömmum af kókaíni frá Bandaríkjunum haustið 1988. í sakadómi
hafði maðurinn verið dæmdur til fjögurra og hálfs árs fangelsisvist-
ar. Þar hlutu tveir vitorðsmenn hans tveggja og hálfs og þriggja
og hálfs árs fangelsi en þeir undu þeirri niðurstöðu og áfrýjuðu
ekki. Mál þetta hefur verið kallað „stóra kókaínmálið" enda það
umfangsmesta sem upp hefur komið hérlendis.
Maður þessi neitaði hins vegar
ávallt nokkurri aðild að málinu en
sakadómi og Hæstarétti þótti sann-
að með framburði vitna og gögnum
Skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar:
Sjálfstæðisflokkur fengi 48% atkvæða
Sjálfstæðisflokkurinn fengi
48% atkvæða, ef gengið væri til
kosninga nú, miðað við svör í
skoðanakönnun, sem Félags-
Morgunblaðið kemur næst
út miðvikudaginn 3. apríl.
vísindastofnun Iláskóla íslands
hefur gert fyrir Morgunblaðið.
I sömu könnun kemur fram að
ríkisstjórnin á álíka marga
stuðningsmenn og andstæðinga
i hópi svarenda.
Svör fengust frá 1.094 /nanns í
könnuninni, sem er 75% nettósvör-
un. Félagsvísindastofnun telur að
úrtakið endurspegli þjóðina vel með
tilliti til aldursdreifingar, kyns og
búsetu.
Af þeim, sem afstöðu tóku í
könnuninni, sögðust 48% ætla að
kjósa Sjálfstæðisflokkinn, 11,7%
Alþýðuflokkinn, 19,6% Framsókn-
arflokkinn, 10,1% Alþýðubandalag-
ið og 8,6% Kvennalistanm Önnur
framboð fengu innan við 1% fylgi.
Hlutfall óákveðinna var 5,6% og
12,9% neituðu að svara.
Er spurt var hvort menn væru
stuðningsmenn eða andstæðingar
ríkisstjórnarinnar, sögðust 37,7%
styðja stjórnina, en 36,2% sögðust
henni andvígir. Hlutlausir voru
20,6%.
Sjá frekari niðurstöður könn-
unarinnar á bls.46.
málsins að hann væri sannur að sök.
Mennirnir þrír fluttu kókaínið,
sem var tiltölulega hreint efni, inn
í varahjólbarða bifreiðar sem þeir
keyptu í Bandaríkjunum mánaða-
mótin október/nóvember 1988. í
byijun maímánaðar 1989 komst
upp um málið og lagði þá lögreglan
hald á 413,9 grömm af efninu,
þorra þess í bankahólfi, en hinu
hafði verið dreift til kaupenda.
í dómi Hæstaréttar er manninum
gert að greiða 150 þúsund króna
sekt og sæta upptöku á 413,9
grömmum af kókaíni. Kröfu um að
Ford Fiesta-bifreið yrði gerð upp-
tæk var hafnað. Talið var að maður-
inn hefði keypt hana fyrir ávinning
af fíkniefnaviðskiptunum en hann
neitaði að vera eigandi hennar þrátt
fyrir að skráður eigandi segðist
hafa selt honum bílinn fyrir 360
þúsund krónur.