Morgunblaðið - 28.03.1991, Blaðsíða 58
Fiskverðsdeila ÚA og sjómanna á ísfisktogurum:
Sjómenn krefjast 33%
hækkunar frá 30%
heimalöndunarálagi
UA býður fiskmarkaðsverð fyrir 10% aflans
Kjararáð sjómanna á ísfisktogurum ÚA á fundi í gær.
• Hreinsiefni • Pappír • Vélar • Áhöld • Einnota vörur • Vinnufatnaður • Ráðgjöf • O.fl. o.fl.
Fyrir alvöru bíleigendur, sem vilja fara vel með
lakkið á bílnum sínum, en rispa það ekki með
drullugum þvottakústi.
Bílsápa og sjálfvirkur sápu- og bónskammtari fylg-
ir. Einnig getur þú þrifið húsið, rúðurnar, stéttina,
veröndina og sandblásið málningu, sprungur og
m.fl. með þessu undratæki. Úrval fylgihluta!
REKSTRARVORUR
Réttarhálsi 2,110 Rvik. - símar 31956-685554-Fax 687116
heima en Björgvin EA og Björgúlf-
ur EA hafí farið í siglingar og
sent út ísfísk í gámum. „Vegna
þessa sömdum við nýléga um bón-
us á þorsk og ýsu, sem er sú krónu-
tala sem hálft kíló vegur í Vérð-
lagsráðsverði, þannig að við fáum
greitt fyrir tveggja kílóa þorsk eins
og hann væri tvö og hálft kíló.
Þessi upphæð gæti numið um 200
þúsund krónum hjá háseta yfír
árið.“
Guðmundur segist vonast til
áhpfnin á Súlnafelli EA fái sömu
kjör og sjómennirnir á ísfisktogur-
um ÚA muni semja um. Hins veg-
ar náist aldrei friður um fiskverð
fyrr en búið sé að tengja allt físk-
verð í landinu við fiskmarkaðsverð.
„Nú eru 20-30 fiskverð í gangi í
landinu og það er ansi súrt að
þeir, sem landa á fískmörkuðum
fái þrisvar sinnum hærra verð en
við,“ segir Guðmundur. Hann seg-
ir að hægt væri að skylda menn
til að selja allan afla á fiskmörkuð-
um og fyrirtæki gætu þess vegna
keypt afla af eigin skipum, eins
og Grandi hf. geri til dæmis.
Sævar Frímannsson, formaður
verkalýðsfélagsins Einingar, segir
að Eining hafi ekki farið fram á
viðræður um hækkun á launum
fískverkafólks ef sjómenn á ísfísk-
togurum ÚA fái hækkun á físk-
verði núna. Félagssvæði Einingar
nær yfir Eyjafjarðarsvæðið.
„Við erum með fasta og bundna
samninga til 15. september næst-
komandi og það er engin kröfu-
gerð í gangi hjá okkur. Mér finnst
hins vegar persónulega að ef eitt-
hvert fyrirtæki hækkar laun sjó-
manna sinna vegna góðrar afkomu
ætti fiskverkafólk fyrirtækisins
einnig að njóta hennar. Ég er alls
ekki að blanda þessu saman við
kröfur sjómanna ÚA en þeir hafa
verið með lægri laun en aðrir sjó-
menn á landinu. Mér finnst það
hins vegar vera réttlætismál að
fískverkafólk fái að njóta góðrar
afkomu fyrirtækja. Fiskverkafólk
er með lág laun og því vetir ekki
af launahækkun,“ segir Sævar
Frímannsson.
•
Fiskverkafólk vill við-
ræður ef sjómenn fá hækkun
Fiskverkafólk í frystihúsi og
saltfiskverkun KEA á Dalvík vill
viðræður um að það fái sérstaka
kauphækkun ef samið verður við
sjómenn á Eyjafjarðarsvæðinu um
frekari fiskverðshækkanir á næst-
unni, að sögn Arnfríðar Valdimars-
dóttur trúnaðaimanns í frystihúsi
KEA á Dalvík. „Við söfnuðum
undirskriftum um 80 manns í
frystihúsinu og saltfiskverkuninni
til að minna á að við værum líka
til.“
Arnfríður segir að verkalýðsfé-
lög tengist ekki þessari undir-
skriftasöfnun, enda gildi kjara-
samningar verkalýðsfélagsins Ein-
ingar til 15. september næstkom-
andi. Hún segir að hins vegar hljóti
fyrirtæki, sem hafi efni á að hækka
laun sjómanna, einnig að hafa efni
á að hækka laun fiskverkafólks.
KJE.lAl Hobby Háþrýstidælan
Bíllinn þveginn og
SJÓMENN á ísfisktogurum Út-
gerðarfélags Akureyringa hf.
vilja fá 107,25 krónur fyrir kíló-
ið af þriggja kílóa þorski og
þyngri, 82,07 krónur fyrir kílóið
af þorski undir þrem kílóum og
65,94 krónur fyrir kílóið af und-
irmálsþorski. ÚA hefur hins
vegar boðist til að greiða sjó-
mönnunum fiskmarkaðsverð
fyrir 10% af aflanum en 40%
heimalöndunarálag á 90% af-
lans. ÚA hafði samþykkt að
hækka heimalöndunarálagið úr
30% í 40% frá síðustu mánaða-
mótum. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins þýða kröfur sjó-
mannanna 33% hækkun frá 30%
heimalöndunarálaginu en tilboð
ÚA jafngildir um 43% heima-
löndunarálagi.
Sjómenn á ísfisktogurum ÚA
og togaranum Kolbeinsey ÞH frá
Húsavík hafa sagt upp störfum
vegna óánægju með fiskverð. Þess-
ir togarar eru nú allir í höfn, nema
Kaldbakur og Hrímbakur, sem
voru að veiðum á Deildargrunni í
gær. Svalbakur er að koma úr slipp
á Akureyri og gamli Sólbakur kom
til Akureyrar í gær. Harðbakur
átti að fara á veiðar á þriðjudags-
kvöld en þar sem ósamið er um
fískverðið fór hann ekki út. Kol-
beinsey ÞH kom úr siglingu á
þriðjudag og átti að fara á veiðar
á morgun.
Sjómenn á Kolbeinsey ÞH sögðu
upp störfum á föstudag en undir-
mennirnir eru með einnar viku
uppsagnarfrest. Sjómennimir vildu
upphaflega fá 45% heimalöndun-
arálag en Fiskiðjusamlag Húsavík-
ur hf. hækkaði heimalöndunará-
lagið úr 30% í 40% frá síðustu
mánaðamótum. Nú vilja sjómenn-
imir fá rúmlega 40% heimalöndun-
arálag frá áramótum en Fiskiðju-
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Tveir af ísfisktogurum ÚA, Harðbakur EA og gamli Sólbakur EA, í höfn á Akureyri í gær.
samlag Húsavíkur hf. hefur ein-
ungis samþykkt að fiskverðshækk-
unin gildi frá og með næstu veiði-
ferð skipsins, að sögn Kára Arnórs
Kárasonar framkvæmdastjóra
Verkalýðsfélags Húsavíkur.
Hugsanlegt að Kolbeinsey ÞH
semji öðruvísi en ÚA-togarar
„Fiskiðjusamlagið hefur ekki
teygt sig upp í 45% og við höfum
ekki teygt okkur niður í 40% álag,“
segir Kári Arnór. Hann. segir að
ekki sé útilokað að sjómenn á
Kolbeinsey ÞH semji á öðrum nót-
um en sjómenn á togurum ÚA.
„Kolbeinsey ÞH var með 2,1 kílóa
þorsk að meðaltali í fyrra og þá
var hásetahluturinn á skipinu
2,5-2,6 milljónir króna. ísfisktog-
arar ÚA eru með mjög svipaða
meðalvigt en hásetahluturinn á
þeim var að meðaltali 1,8 milljónir
í fyrra.“
Heimalöndunarálag togara Út-
gerðarfélags Dalvíkinga hf., Björg-
vins EA og Björgúlfs EA, hækkaði
úr 30% í 40% frá síðustu mánaða-
mótum, að sögn Vigfúsar Jóhann-
essonar skipstjóra á Björgvin EA.
Björgvin EA kemur inn á þriðjudag
en Björgúlfur EA átti að koma úr
slipp á Akureyri í gærkvöldi.
Vigfús segir að öllum afla ísfisk-
togara ÚA hafi verið landað á
Akureyri og þeir fái lægsta fis-
kverð á landinu. „Það fá allir sama
heimalöndunarálag og sjómennirn-
ir hjá ÚA semja um, þannig að
þeir fá alltaf lægsta fiskverðið. Því
væri skynsamlegast að ÚA tengdi
að minnsta kosti hluta af fiskverð-
inu við fiskmarkaðsverð. Dalvíkur-
togararnir veiða miklu meira af
þorski en ÚA-togararnir, þannig
að við fáum miklu hærra verð en
þeir. Hins vegar höfum við einung-
is von á einni siglingu í ár, þar sem
verið er að hegna okkur fyrir að
hafa farið í fáar siglingar."
Súlnafell EA með sérstakan
bónus fyrir þorsk og ýsu
Heimalöndunarálag Súlnafells
EA hækkaði einnig úr 30% í 40%
frá síðustu mánaðamótum, að sögn
Guðmundar Kristjánssonar skip-
stjóra. Súlnafell EA er i eigu KEA
og landar í Hrísey. Skipið hefur
verið á veiðum á Deildargrunni en
kemur til hafnar á morgun.
Guðmundur segir að öllum afla
Súlnafells EA hafi verið landað
bónaöur á tíu mínútum.