Morgunblaðið - 28.03.1991, Blaðsíða 102
102
MORGUNBLAÐIÐ IÞROI IIR FIMMWÐAGUR 28. MARZ 1991
KNATTSPYRNA / ENGLAND
Sigurður til Millwall?
Verður líklega lánaðurfrá Englandsmeisturum Arsenal
til loka keppnistímabilsins. Millwall ítoppbaráttu í 2. deild
SIGURÐUR Jónsson, sem leikið
hefur með Arsenal, í ensku 1.
deildinni leikur Ifklega með
Millwall til loka keppnistíma-
bilsins. Millwall, sem er í 6.
sæti f 2. deiid, hefur óskað eft-
ir því að fá Sigurð að láni og
ef af því verður mun hann
skrifa undir samning á morgun.
Framkvæmdastjóri Arsenal,
George Graham, hefur sam-
þykkt það en Sigurður ákveður
sjálfur hvort hann fari.
W
Eg þarf að skrifa undir samning
fyrir klukkan sex á morgun [í
dag] því þá rennur út lokafrestur
fyrir félagaskipti. Ég ætla að hugsa
málið og tala við nokkra menn áður
en ég geri nokkuð," sagði Sigurður
í samtali við Morgunblaðið. „Ég á
ekki mikla möguleika á að komast
í aðalliðið hjá Arsenal og því er
jafnvel betra að fara til Millwall þar
sem ég fæ þó tækifæri til að spila.“
Ef Sigurður skrifar undir samn-
ing við Millwall leikur hann líklega
með liðinu á laugardaginn, gegn
Leicester á útivelli. „Ég veit nánast
ekkert um liðið eða hveijir spila
með því. Það eina sem ég veit er
að heimavöllurinn er mjög illa far-
inn. En eins og staðan er í dag er
þó betra að spila með Millwall í
toppnum í 2. deild en varaliði Arsen-
al,“ sagði Sigurður.
Sigurður hefur ekki leikið með
aðalliði Arsenal síðan í október enda
átt við erfið meiðsli að stríða. Hann
var meiddur í baki og þurfti að
taka sér langt hlé: „Ég held að ég
sé búinn að ná mér núna og er tilbú-
inn til að spila, hvort sem það verð-
ur með Arsenal eða Millwall," sagði
Sigurður.
SigurðurJónsson.
Iþróttir
helgarinnar
BORÐTENNIS
Islandsmeistaramótið í borðtennis
hefst í dag kl. 10 í'TBR-húsinu við
Gnoðavog. Á laugardaginn heldur
mótið áfram og verða þá leiknir úr-
slitaleikir sem hefjast kl. 16.30.
KÖRFUKNATTLEIKUR
Fyrsti úrslitaleikurinn í úrvalsdeild-
inni í körfuknattleik fer fram í
íþróttahúsinu í Njarðvík, þriðjudag-
inn 2. april. Þar taka Njarðvíkingar
á móti nágrönrtum sínum úr Keflavík
en það lið sem sigrar í þremur leikjum
verður íslandsmeistari.
HANDKNATTLEIKUR
Benelux-mótið í handknattleik verður
haldið um helgina í íþróttahúsinu að
Varmá og U-18 ára landsliðið leikur
gegn Þjóðveijum. Tímasetningar má
finna á unglingasíðunum bls
100-101.
SUND
Landskeppni á milli Islands og Fær-
eyja fer fram í Sundhöll Reykjavík-
ur, mánudaginn 1. apríl, kl. 10 og
kl. 18.
JÚDÓ
íslandsmeistaramótið í júdó fer fram
á laugardaginn í Laugardalshöllinni
og hefst kl. 10.
HLAUP
Vesturbæjarhlaup KR verður haldið
á laugardaginn og hefst kl. 14.
Skráning kl. 13 við KR-heimilið, þar
sem hlaupið hefst. Keppt verður í
öllum aldursflokkum, karla og
kvenna, 12 ára og ýngri, 13-14 ára,
15-16 ára, 17-34 ára, og 35 ára og
eldri.
FIMLEIKAR
Sjónvarpsmót í fimleikum verður
haldið í Laugardalshöllinni þriðjudag-
inn 2. apríl og hefst kl. 17. Átta
keppendum hefur verið boðið: Fjólu
Ólafsdóttur, Bryndísi Guðmundsdótt-
ir, Ásdísi Pétursdóttur, Ingibjörgu
Sigfúsdóttur, Guðjóni Guðmundssyni,
Jóhannesi Níels Sigurðssyni, Jóni
Finnbogasyni og Guðmundi Brynj-
ólfssyni. Á mótinu verður keppt um
hveijir komast á heimsmeistaramótið
sem haldið verður í Indianapolis I
Bandaríkjunum í haust.
HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ
Island átli aldrei
móguleika
Mátti þola fimm marka ósigur gegn
Litháen í gærkvöldi
ÍSLAND átti aldrei möguleika í
síðari leik sínum gegn Litháen.
Leikmenn voru eins og börn í
höndunum á gestunum ífyrri
hálfleik og þrátt fyrir að leikur
landans hafi skánað eftir leik-
hlé þá verður það að teljast vel
sloppið að tapa aðeins með
fimm mörkum, 24:29.
Lithár léku vamarleikinn mjög
framarlega og það komst aldrei
neitt líf í sóknarleik íslendinga sem
skoruðu ijórða mark sitt ekki fyrr
■HHi en á nítjándu
Frosti mínútu. Landanum
Eiðsson tókst ekki að sama
skrifar skapi að riðla sókn-
arleik Litháa, engin
markverð tilraun var gerð til þess
að reyna að bijóta upp sóknarleik
þeirra og íslensku varnarmennirnir
voru oftast aðeins áhorfendur að
einföldum Ieikkerfum Litháa sem í
langflestum tilfellum gáfu mark.
Leikur íslendinga í fyrri hálfleik var
mjög slakur og þeir gátu prísað sig
sæla með að aðeins munaði sjö
mörkum í leikhléi.
I síðari hálfleiknum var aðeins
spurning um það hvort íslendingum
tækist að bjarga andlitinu og segja
veróur haldið í Valsheimilinu fimmtudagana 4. og 11.
apríl kl. 20.00. Keppnisform er tvímennirigur.
Vegleg verólaun í boði
1. verólaun kr. 15.000,-
2. verólaun kr. 5.000,-
3. verðlaun kr. 3.000,-
Skróning hjó húsverði og í síma 11134.
Þótttökugjald kr. 1.000,- ó pGr.
Spilarar út öórum félögum eru sérstaklega
hvattir til aó mæta.
Afmælisnefnd.
má að það hafi tekist. Sigmar náði
þokkalegum kafla í markinu og tré-
verkið bjargaði íslendingum oft í
byijun hans.
Það er nokkurn veginn sama
hvar komið er niður í íslenska liðinu
í fyrri hálfleik. Sóknarleikurinn var
andvana við fæðingu og það vant-
aði baráttu í vörnina, markvarslan
var á sömu nótum og fram að 25.
mínútu var aðeins eitt skot varið.
Valdimar og Jakob börðust vel í
síðari hálfleiknum, en það má þó
sama segja um þá eins og aðra leik-
menn að þeir léku undir getu.
Ljtháar komust upp með mjög
harðan varnarleik og þeir Guðjón
og Hákon hefðu mátt gera meira
en að veifa gulu spjöldunum sínum
í upphafi. Nokkrar brottvísanir
hefðu þó ekki breytt miklu um úr-
slitin og Litháar voru einráðir í fyrri
hálfleik.
Helsta vandamál íslenska lands-
liðsinsu er án efa ráðaleysi gegn
framliggjandi vörn. Ekki var reynt
að bæta öðrum línumanni í sókn-
ina, það gaf ekki góða raun þegar
það var reynt í fyrri leik liðanna
og það verður spennandi að sjá
hvort að Þorbergi tekst að leysa
þessa þraut. Tap fyrir Litháen sær-
ir þjóðarstoltið en það er betra að
fá skell í vináttuleik heldur en í
leik sem skiptir máli um stöðu okk-
ar í alþjóðahandknattleik.
Morgunblaðið/Bjarni
Stefán Kristjánsson skoraði fjög-
ur mörk.
Island-Litháen 24:29
Laugardalshöllin, vináttulandsleikur í
handknattleik, miðvikud. 27. mars
1991.
Gangur leiksins: 2:2, 3:9, 5:12, 8:15,
11:20, 17:22, 20:25, 22:29, 24:29.
Mörk íslands: Sigurður Bjarnason
5/3, Stefán Kristjánsson 4, Valdimar
Grímsson 4/1, Júlíus Jónasson 4/2,
Konráð Olavson 2, Gústaf Bjamason
2, Jakob Sigurðsson 1, Birgir. Sigurðs-
son 1, Bjarki Sigurðsson 1, Jón Kristj-
ánsson, Einar Sigurðsson.
Varin skot: Sijpnar Þröstur Óskarsson
6/2, Magnús Arnason 5. Utan vallar:
8 mínútur.
Mörk Litháen: Cikanauskas 11/4,
Tchepulis 5, Malakauskas 4/1, Milas-
chiunas 3, Mockeliunas 2, Petkevicius
2/1, Gudeliunas 1, Novitskis 1.
Varin skot: Savonis 11/3. Utan vall-
ar: 12 mínútur.
Dómarar: Guðjón L. Sigurðsson og
Hákon Sigurjónsson höfðu gfóð tök á
leiknum.
Hvað sögðu þeir?
Þorbergur Aðalsteinsson,
landsliðsþjálfari:
„Landslið Litháen er mikið sterk-
ara en við reiknuðum með og þetta
var einn af þessum dögum sem
ekkert gengur upp, við misnotuðum
sex vítaköst og það segir sína sögu.
Við eigum alltaf í miklum vandræð-
um þegar varnarleikurinn er spilað-
ur svona framarlega eins og leik-
menn Litháen gerðu í kvöld og leik-
menn mínir virðast ekki nógu sterk-
ir til að rífa sig lausa maður gegn
manni. Vonandi er hægt að læra
af þessum leik en ég neita því ekki
að þetta er ekki sá endir á vetrinum
sem ég hafði óskað mér.“
Júlíus Jónasson
„Það er aðeins eitt orð yfir þetta,
- lélegt. Við lentum undir strax í
byijun og náðum aldrei að komast
í gang. Leikmenn Litháen eru sterk-
ir, þeir léku hraðan sóknarleik og
varnarleik sem við ráðum ekki við.
Skarbalius, þjálfari Litháen
„Ég er ánægður með sigurinn
því að þetta er ungt lið sem hefur
ekki leikið saman áður. Flestir bestu
handknattleiksmenn okkar leika
erlendis og það reyndist ekki unnt
að fá þá í þennan leik. íslenska lið-
ið var svipað og í gær en þá vorum
við þreyttir eftir langt ferðalag. Þá
var dómgæslan mikið betri í kvöld,
URSUT
2. DEILD — EFRI HLUTI
HK- ÍBK .................32:15
VÖLSUNGUR- ÞÓR............20:27
NJARÐVÍK- BREIÐABLIK.....19:22
Fj. leikja U J T Mörk Stig
HK 6 5 1 0 151: 109 15
PÓR 5 3 1 1 133: 110 9
BREIÐABLIK 4 3 1 0 90: 67 8
NJARÐVÍK 6 2 1 3 120: 125 5
VÖLSUNGUR 5 1 0 4 104: 141 2
IBK 6 0 0 6 108: 154 0
2. DEILD - IMEÐRI HLUTI
is- AFTURELD...........16:32
ÍH- ÁRMANN ............24:25
Fj. leikja U J T Mörk Stig
ÍH 5 4 0 1 143: 108 24
ÁRMANN 6 4 0 2 146: 118 20
AFTURELD. 5 3 0 2 118: 101 18
is 6 0 0 6 99: 179 3
Knattspyrna
EVRÓPUKEPPNI LANDSLIÐA:
2. RIÐILL:
Glasgow, Skotlandi:
Skotland - Búlgaría............1:1
John Collins (84.) - Emil Kostadinov (89.).
33.119
Serravalle, San Marínó:
San Marinó - Rúmenía...........1:3
Waldes Pasolini (30.- vítasp) - Gheorghe
Hagi (17. - vítasp.), Florin Raducioiu (45.),
Ivan Matteoni (86. - sjálfsm.). 1.500
Fj. leikja u 1 T Mörk Stig
SKOTLAND 4 2 2 0 6: 4 6
SVISS 3 2 0 1 7: 2 4
RÚMENÍA 4 2 0 2 10:6 4
BÚLGARÍA 4 1 2 1 5:4 4
SANMARiNÓ 3 0 0 3 1: 13 0
4. RIÐILL:
Belgrad, Júgóslavíu:
Júgóslavia - N-írland...............4:1
Dragisa Binie (35.), Darko Pancev 3 (47.,
60., 62.) - Colin Hill (45.). 11.500
Fj. leikja U J T Mörk Stig
JÚGÓSLAViA 4 4 0 0 12: 2 8
DANMÖRK 3 1 1 1 5: 4 3
FÆREYRJAR 2 1 0 1 2: 4 2
N-ÍRLAND 4 0 i 2 2: 7 2
AUSTURRÍKI 3 0 1 2 1: 5 1
5. RIÐILL:
Brússel, Belgíu:
Belgía-Wales.......................1:1
Marc Degryse (47.) - Dean Saunders (58.)
25.000
Fj. leikja U J T Mörk Stig
WALES 3 2 1 0 5: 2 5
BELGÍA 3 1 1 1 5:4 3
ÞÝSKALAND 1 1 0 0 3:2 2
LUXEMBURG 3 0 0 3 2:7 0
7. RIÐILL:
Wembley, London:
England - Írland...................i;i
Lee Dixon (9.) - Niall Quinn (27.). 77.753
Fj. leikja U J T Mörk Stig
ÍRLAND 3 1 2 0 7: 2 4
ENGLAND 3 1 2 0 4: 2 4
PÓLLAND 2 1 0 1 1:2 2
TYRKLAND 2 0 0 2 0:6 0
VINATTULANDSLEIKIR:
Frankfurt, V-Þýskalandi:
V-Þýskaland - Sovétríkin.........2:1
Stefan Reuter (65.), Lothar Mattháus (81.)
Igor Dobrovolskíj (83. - vítasp.). 30.000
Rabat, Marokkó:
Marokkó - Grikkland..............0:0
Túnis - Tyrkland.................0:0
3.000
Olumuc, Tékkóslóvakíu:
Tckkóslóvakia — Póliand..........4:0
Pavel Kuka 29., Lubomir Moravcik 43.,
Ladislav Pecko 79., Vaclav Danek 83. 8.287
Santender, Spáni:
Spánn - Ungveijaland.............2:4
Manolo Sanchez (43.), Carlos Munoz (83.)
- Jozsef Kiprich 2 (42., 75.), Emil Lorincz
2 (54., 88.). 21.000
Körfuknattleikur
Leikir í NBA-deildinni ( fyrrinótt:
Charlotte - Golden State..... 97: 94
Indiana - Atlanta............123:113
MiamiHeat-Cleveland..........104: 98
New Jersey - Philadelphia.... 98: 95
San Antonio - New York.......128:119
Phoenix - Minnesota..........117: 95
Portiand - Seattle...........126:113
EVRÓPUKEPPNI FÉLAGSLIÐA
Síðari úrslitaleikur keppninnar:
Cantu (Ítalíu)—Barcelona (Spáni) ....95:93
Eftir framlengingu, 77:79 eftir venjuleg-
an leiktíma. Cantu sigraði samanlagt
168:164.