Morgunblaðið - 28.03.1991, Blaðsíða 93
MORGUNBLADID FIMMTUDÁGUR 28. MARZ 191)1
„Landsliðið“ mætt á fundi á Lækjarbrekku í vikunni, f.v. Örn Garðarsson, Úlfar Finnbjörnsson,
Sverrir Halldórsson, Bjarki I. Hilmarsson, Asgeir Helgi Erlingsson og Sigurður L. Hall. A mynd-
ina vantar Baldur Öxdal Halldórsson.
MATREIÐSLA
Gætu þurft að elda
Maui Maui fyrir 80 manns
Dagana 18. til 22. maí næst
komandi verða sjö íslenskir
matreiðslumenn samankomnir á
McCormick Plaza hótelinu í
Chicago í Illinois. Það má heita
að þar fari íslenska landsliðið í
matreiðslu, en kokkarnir taka
þátt í matreiðslukeppni sem hald-
in er fjórða hvert ár í tengslum
við árlega gistihúsa-, mótela- og
veitingahúsasýningu sem er hin
stærsta sinnar tegundar í heimin-
um. Þetta er í fyrsta skipti sem
íslenskir matreiðslumenn eru
meðal keppenda og segja kokk-
arnir okkar það eðlilega þróun
mála þar eð ísland hafi ekki verið
í alþjóðlegum samtökum fyrr en
á síðasta ári og því ekki með í
slíkri keppni fyrr en nú. Fimm
umræddra matreiðslumanna
keppa, en hinir tveir eru nokkurs
konar framkvæmdastjórar hóps-
ins. Keppendurnir heita Örn Garð-
arsson, Asgeir Helgi Erlingsson,
Úlfar Finnbjörnsson, Bjarki Ing-
þór Hilmarsson og Baldur Öxdal
Halldórsson, en framkvæmda-
stjórarnir eru þeir Sigurður L.
Hall og Sverrir Halldórsson.
Keppnin er tvískipt, þ.e.a.s. það
er keppt í heitum réttum og köld-
um. Islensku matreiðslumennirnir
eru í riðli með Kína, Hollandi og
Sviss. Þó er ekki um neins konar
úrsláttarkerfi að ræða. Keppt er
um punkta og ef því er að skipta
geta allir unnið eða enginn. Alls
eru 16 þjóðir með lið í keppninni.
Fyrir liggur form köldu matseld-
arinnar og hafa íslensku mat-
reiðslumennirnir getað undirbúið
sig fyrir þann hluta keppninnar.
I heitu réttunum er aftur á móti
meiri spenna. Er Morgunblaðið
hitti þá félaga að máli í vikunni
geisaði gammurinn svo hraust-
lega að ekki lá ljóst fyrir hver
sagði hvað, en við getum sagt að
„þeir“ hafi látið þetta frá sér fara:
„Við fáum það sem þeir kalla
„Mystery basket“, hráefni til mat-
argerðar fyrir 80 manns. Við vit-
um ekkert fyrirfram hvaða hrá-
efni við fáum, aðeins að prinsipp-
ið er frönsk matargerðarlist. Þeg-
ar við höfum skoðað ofan í körf-
una leyndardómsfullu fáum við
nokkrar klukkustundir til að und-
irbúa okkur og síðan förum við í
opið eldhús og eldurn."
En hvað gerist nú ef þið fáið
einhveija torkennilega fiska úr
Kyrrahafinu sem þið kunnið ekk-
ert á? „Ja, það er nú það. Við
gætum fengið þá skipun að elda
Maui Maui fyrir 80 manns eða
bláan Marlin. Það er viss spenna
í þessu, en þeir sem þekkja slíka
fiska af meiru en afspurn eru jafn
mikið á nálum að vera beðnir um
að elda ýsu eða þorsk handa 80
rnanns," segja „þeir“.
En fjármögnun, borgið þið úr
eiginn vasa? „Nei, en fjármögnun
á svona dæmi er enginn leikur.
Við erum með kostnaðaráætlun
sem segir okkur að þetta inuni
kosta 1700 þúsund og ætti hún
að standast. Við höfum gert sitt-
hvað til að afla þessara peninga,
staðið fyrir sérstökum kvöldum á
Holiday Inn, eldað ofan í gesti
fegurðarsamkeppna á lands-
byggðinni og sitthvað fleira. Slíkt
dugar þó engan vegin og því höf-
um við einnig leitað til fyrirtækja
sem sum hafa tekið okkur vel.
Má nefna Coldwater, Fiskbúð
Hafliða og Sölufélag Garðyrkju-
manna. Jú, A Karlsson hefur einn-
ig verið liðlegur, en við bíðum
eftir viðbrögðum fleiri aðila við
erindi okkar. Þeir sem styðja við
okkur gera sér ljósa grein fyrir
auglýsingagildinu og landkynn-
ingunni, víst er það,“ segja „þeir“
að lokum.
Selma og Robert í miðjum Presley-slagaranum.
SKEMMTANIR
Villt hjörtu á Strikinu
Skemmtistaðurinn Yfir Strikið
hefur gengist fyrir ýmsum
uppákomum þær helgar sem stað-
urinn hefur verið starfræktur. Er
stefnan að endurtaka ekki sömu
sýninguna tvær vikur í röð þó und-
antekningar hafi verið gerðar er
sérstaklega góður rómur hefur ver-
ið gerður að. Þannig var á dögun-
um, er Icelandic Models sýndi föt
frá versluninni Cosmo á föstudags-
kvöldi, en á laugardagskvöldi var
dansatriði sem náði slíkum vinsæld-
um að það var endurflutt síðasta
kvöldið fyrir páskahátíðir.
Dansatriðið, sem flutt var af
tveimur ungmennum.'Selmu Gunn-
arsdóttur og Róberts Spano, átti
rætur að rekja til kvikmyndarinnar-
„Wild at heart“, sem sýnd var hér-
lendis nýverið. I einu atriði myndar-
innar eru söguhetjurnar, par leikið
af Lauru Dern og Nicholas Cage,
á næturklúbbi er durtur einn fer á
fjörurnar við stúlkuna með heldur
grófum hætti. Cage sýnir fantinum
í tvo heimana með eftirminnilegum
hætti og klikkir út með því að
syngja frægan Presley-slagara fyrir
elskuna sína. Þetta atriði fluttu þau
Selma og Róbert við mikla hrifn-
ingu áhorfenda...
matsölu- og skemmtisiadur,
Kringlunni 4, simi 689686
Opið annan í páskum
Ipú M. 9—1.
OPIfl IIM PÁSKANA
SkPÍdag .............kl. 12.00—23.30.
Föstudaginn langa...kl. 12.00—23.30.
Laugardag ...........kl. 12.00—23.30.
Páskasunnudag ................L0KAÐ.
Mánud. annan í páskum ....kl. 16.00—23.30.
Velkomin á Hard Rock Café,
sími 689888
,-------------------x
fflNIR GEYSIVINSÆLU:
5PARIDAGAR
; I MIÐRIVIKU
I VEGNA MIKILLAR EFTIRSPURNAR
VERÐUR AUKAYÍM X - 5 APRÍL
■ ATHUGIÐ: ALLRA SÍÐASTA VIKAN
AÐSINNI. MJÖG HAGSTÆTT VERÐ
3 nætur kr. 8.700,-
(komið á þriðjudegi)
4 nætur kr. 11.600,-
(komið á mánudegi)
Innifalið: Gisting, morgunverður,
og kvöldverður ásamt fjölbreyttri
dagskrá sem stjórnað er af Sigurði
Guðmundssyni fararstjóra
PANTIÐ STRAX í SÍMA: 98 - 34700
V
HÓTEL ÖKK
HVERAGERÐI
m tiiMfe
| Meim en þú geturímyndaó þér!