Morgunblaðið - 28.03.1991, Blaðsíða 59
r e WORÓtíÍJBlÍÁÖlÖ’ttffi^lWÁdtJíl /2&r'fóS$í %91
-?-%9
Um 20 lögreglumenn sinna ein-
göngu miðborginni um helgar
„ Aukið ofbeldi er vandamál þjóðfélagsins, ekki aðeins lögregl-
unnar,“ segir Guðmundur Guðjónsson yfirlögregluþjónn
Bíóhöllin sýnir myndina
„Hundar fara til himna“
BÍÓHÖLLIN hefur hafið sýningar á teiknimyndinni „Hundar fara til
himna“. Þetta er fjölskyldumynd þar sem margir þekktir leikarar Ijá
persónum myndarinnar rödd sína, t.d. Burt Reynolds og Dom DeLuise.
Charlie, aðalsöguhetja myndarinn-
ar, rekur ásamt öðrum að nafni
Carface Malone vafasama veðmála-
starfsemi sem skilar góðum en ólög-
legum arði til félaganna. En græðgi
Carface leiðir til þess að keyrt er
yfír Charlie, sem vaknar við gullna
hlið himins. Hann kemst að því að
Carface hafði svikið hann svo hann
fyllist heift og hefndarþorsta. Með
brögðum kemst hann aftur til jarðar-
innar og þá byijar fjörið og ævintýr-
in gerast eitt af öðru.
Eitt atriði úr teiknimyndinni „Hundar fara til himna“.
Stóll og tölvuborö —
fermingartilboðsverð
frá kr. 15.100.
5 ára
Kr. 10.
• 200 KÖPAVOOI
FAXAFENI 8 • 108 REYKJAVlK •
• BlMI 4BB00
BlMI 878480
Stóll og tölvuborð
með hliðarplötu —
fermingartilboðsverð
frá kr. 16.800.
Stóll — fermingartilboðs
verð frá kr. 5.500.
Laugardagskvöld í miðborg Reykjavíkur.
Morgunblaoið/Julius
UM FIMMTÍU lögreglumenn
eru við almenna löggæslu í
Reykjavík um helgar og að auki
sinnir um tugur manna umferð-
areftirliti og rannsóknum, eink-
um umferðarslysa, að sögn Guð-
mundar Guðjónssonar yfirlög-
regluþjóns. Að sögn Guðmund-
Ástand í miðborginni batnar
ekki án hugarfar sbr eytingar
- segir Böðvar Bragason, lögreglustjóri í Reykjavík
„EF ástandið í miðborginni á að
batna verður hugarfar fólks að
breytast. Ölvað fólk kemur við
sögu í yfir 90% tilfella, þar sem
fólk verður fyrir líkamsmeiðing-
um, svo besta forvörnin er að
draga úr drykkju. Þá vil ég láta
á það reyna hvort fólk safnast
ekki síður saman ef bannað verður
að selja ýmsa matvöru á götum
borgarinnar langt fram eftir
nóttu. Þetta ástand í miðborginni
er ekki vandamál lögreglunnar,
hcldur þjóðfélagsins í heild. Lög-
gæsla er bara plástur á sárið, en
ekki lækning,“ sagði Böðvar Brag-
ason, lögreglustjóri, þegar Morg-
unblaðið leitaði álits hans á því til
hvaða ráða væri hægt að grípa til
að draga úr ofbeldi og skemmdar-
verkum í miðborginni.
Böðvar benti á, að undanfarin ár
hefði áfengisneysla aukist og
skemmtistöðum fjölgað. „í yfir 90%
tilfella eru aðilar að illindum ölvaðir
og ástandið batnar varla nema dreg-
ið verði úr drykkjunni. Aðgangur að
víni er auðveldur og drykkja því
meiri en ella. Þó tekist hafi að halda
utan um vandamálið með því að
fjölga lögreglumönnum í miðborginni
er það samt sem áður fyrir hendi.
Ekki má gleyma því, að lögreglan
hefur fleiru að sinna en ólátum í
miðborginni. Hún er einnig oft kölluð
í heimahús, þar sem vandamál vegna
drykkju eru ekki minni. Enn tala
menn samt eins og nauðsynlegt sé
að fá krá á hvert götuhorn og aðrir
vilja að bjórinn verði seldur í mat-
vöruverslunum, til að auðvelda enn
aðdrætti."
Böðvar sagðist hafa velt því fyrir
sér hvort ekki væri rétt að veitinga-
menn bæru ábyrgð á gestum sínum,
ekki aðeins innan dyra, heldur einnig
eftir að út fyrir þær er komið. „Veit-
Böðvar Bragason, lögreglusljóri
í Reykjavík.
ingamenn þyrftu hugsanlega að
ijölga í starfsliði sínu, en það væri
hægt að skylda þá til að greiða lög-
gæslu utan dyra, eins og gert var
áður og gert er núna á sveitaböllum."
Böðvar kvaðst telja það til bóta
ef skemmtistaðir lokuðu ekki allir á
sama tíma. „Ef tíminn væri sveigjan-
legri lentum við ekki í þeirri aðstöðu
að fá stóran hóp ölvaðs fólks á göt-
urnar á sama tíma. Það vita allir
hvað slíkt hefur í för með sér og
ætti enginn að þurfa að standa og
gapa af undrun yfir afleiðingunum."
Lögreglustjóri segir að hann hafi
lagt á það mikla áherslu að fá yfir-
völd til að stemma stigu við mikilli
sölustarfsemi í miðborginni langt
fram eftir nóttu. „Ég fullyrði ekki
að það verði til þess að mannsöfnuð-
ur verði minni og friðsamlegri, en
vil láta á það reyna hvort svo verður
ekki ef bannað verður að selja þar
matvæli eftir klukkan 2 aðfaranætur
laugardags og sunnudags."
Böðvar segir að fyrir um tveimur
árum hafi borgarstjórn bannað sölu-
starfsemi í miðborginni eftir klukkan
2 á nóttunni og átti sú skipan að
vera til reynslu í þrjá mánuði. „Þeg-
ar þessi samþykkt lá fyrir risu upp
menn, sem seldu pylsur í miðborg-
inni, og þeir fengu því framgengt
að hætt var við tilraunina. Sumir
hafa haldið því fram við mig að þetta
myndi engu breyta, en við þá segi
ég: „Af hveiju má-ekki láta reyna á
þetta?“ Ef menn þora ekki að prófa
nýja hluti, hvemig ætla þeir þá að
fínna- réttu lausnina? Það er full
ástæða til að reyna allt sem hugsan-
lega er til bóta og borgaryfirvöld eru
skyldug til að leita allra ráða til að
gera borgina friðsamlega."
Böðvar sagði að aukning löggæslu
gæti hugsanlega verið til bóta.
„Spumingin er auðvitað sú, hvar eigi
að auka löggæsluna. Við erum þegar
með um 20 lögreglumenn í miðborg-
inni á erfiðum kvöldum og að nætur-
lagi. Ég útiloka ekki að fjölgun í lið-
inu gæti bætt ástandið, en tel hana
ekki leysa vandann. Menn þurfa að
leita annarra leiða,“ sagði Böðvar
Bragason, lögreglustjóri í Reykjavík.
ar er hátt á annan tug lögreglu-
manna eingöngu við eftirlit í
miðbænum frá klukkan niu á
föstudags- og laugardagskvöld-
um og til um sex að morgni og
sinnir ekki útköllum á öðrum
svæðum. Þar er aðallega um að
ræða menn á varðgöngu, en
einnig liafa þeir tiltækan út-
kallsbíl sem kemur til aðstoðar
og annast flutning á handtekn-
um mönnum. Auk þeirra eru
óeinkennisklæddir lögreglu-
menn á ferð bæinn, gangandi
og á bílum.
Guðmundur segir ljóst að aukið
eftirlit með miðbænum undandfar-
in misseri, sem hófst í kjölfar
umræðna um ástand mála þá,
hafi tvímælalaust skilað veruleg-
um árangri. Lögreglan sé ávallt
nálæg í miðbænum og geti gripið .
fyrr inn í þar sem veist sé að fólki
og einnig tekið úr umferð þá sem
sýni með háttarlagi sýnu og ölvun-
arástandi að þeir séu líklegir til
vandræða. Hann telur líklegt að
talsverðan hluta þeirrar aukning-
ar, sem orðið hefur vart á kærum
vegna líkamsmeiðinga undanfarið,
megi einmitt rekja til herts eftir-
lits lögreglunnar. Það hafi haft í
för með sér að lögregla stöðvi
fremur en áður átök og árásir, sem
gerðar eru, og það ýti undir það
að skýrslur séu gerðar og kærur
lagðar fram þar sem slíkt hefði
ekki annars verið gert.
Auk þess megi telja víst að
umræða um málið valdi því að
atvik séu nú fremur kærð en áð-
ur. Guðmundur sagði að þrátt fyr-
ir aukningu á kærum vegna meið-
inga í átökum og ýmis dæmi um
grófar likamsárásir, vekti það at-
hygli í þessu sambandi að á sama
tíma hafi grófum ofbeldisglæpum
eins og ránum fækkað úr 21 árið
1989 í 11 á síðasta ári.
Guðmundur segir það sérstakt
áhyggjuefni hve stór sá hópur sé
sem komi við sögu líkamsmeið-
Guðmundur Guðjónsson, yfirlög-
regluþjónn.
ingamála, alls ekki megi segja að
um þröngan hóp sé að ræða og
að málið sé eingöngu unnt að leysa
með löggæsluúrræðum. Hann
nefnir að á síðasta ári hafi lögregl-
an fært um 300 manns fyrir dóm-
ara vegna ölvunar og óspekta og
í fæstum tilfellum hafi þeir sem
hafi fengið þannig afgreiðslu sinna
mála komið aftur við sögu en hins
vegar virðist engin þurrð vera á
að nýtt fólk bætist í þann hóp sem
stofnar til átaka og veitist að fólki.
„Það má ekki lita á þessi mál
sem vanda löggæslunnar ein-
göngu, henda þeim inn um dyrnar
hjá lögreglunni og ætlast til að
hún láti þau hverfa. Þetta er vand-
amál þjóðfélagsins ekki aðeins lög-
reglunnar. Það verður að taka á
ástandinu eins og það er,“ sagði
Guðmundur Guðjónsson yfirlög-
regluþjónn. Hann sagði að einn
þáttur í því gæti verið að hraða
meðferð líkamsmeiðingamála í
dómskerfinu.
FERMINGARTILBOÐ
Sterk, létt og þægileg húsgögn