Morgunblaðið - 28.03.1991, Blaðsíða 15
. Mpi^GUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGl/R, 28. MARZ ;1&91
*H5
Páskar 1991:
Allelúja! Allelúja! Upp-
lifið páskafögnuðinn!
eftir Alfreð J.
Jolson
Stundum ennþá er erfitt að segja
allelúja (lofið Drottin), því okkur eru
ljósar óréttlátar þjáningarnar í heim-
inum, stundum í okkar eigin heimi,
stundum jafnvel í okkar eigin lífi.
100.000 börn hafast við á götunum
í heiminum okkar nú á dögum og
flest þeirra eiga eftir að deyja af
illri meðferð, ofbeldi og sjúkdómum.
Á okkar dögum lifir fjöldi fórnar-
lamba úr stýt^öldum. Hinir saklausu
þjást. Og þess vegna er svo erfitt
að segja og syngja Allelúja.
Ungur drengur stóð við hliðina á
fullorðnum manni og horfði á stóran
kross sem stóð úti í búðarglugga og
hann sá að maðurinn hristi höfuðið.
Maðurinn gekk síðan burtu en þá
heyrði hann allt í einu einhvern koma
hlaupandi á eftir sér. Hann sneri sér
við og sá drenginn sem hrópaði á
hlaupunum: „En hann reis upp aft-
ur.“
Það er ekkert vit í þjáningum og
dauða Krists nema upprisa hans sé
tekin með í reikninginn.
Guð verndaði ekki einkason sinn,
Jesúm, frá óréttlæti, þjáningum og
sjálfum dauðanum. I kaþólskum
kirkjum hangir alltaf róðukross —
ekki aðeins krossinn auður, heldur
hangir á honum fórnarlamb syndar-
innar, kúgunarinnar, grimmdarinnar
og eigingirninnar — hann hékk á
krossinum fyrir okkur. Það er okkur
öllum til áminningar.
Stundum hrópum við: Hvers
vegna? Hvers vegna? Hvers vegna
gerði Guð mér þetta?
Við reynum oft að skella skuld-
inni á Guð fyrir klandrið sem við
komum okkur svo oft í á lífsleið-
inni. Við slógum lán af algeru fyrir-
hyggjuleysi og lifðum um efni fram.
Við notuðum bestu gjöfina sem Guð
gaf okkur — frelsið — en fórum illa
með hana. Við misnotuðum gjöf
Guðs.
Stundum — jafnvel hér — gefast
menn upp á að lifa lífinu þegar þeir
verða að horfast í augu við ógæfuna
sem þeir hafa sjálfír steypt sér út
í. En það skiptir engu máli hvað
skeð hefur, vonin blasir alltaf við
okkur þegar við sjáum að Kristur
er upprisinn. Hann vann sigur á
dauðanum og hefur gefið okkur von.
Við getum bundið vonir við framt-
íðina. Kristur bar þjáningar sínar
og dauða og rei§ upp og þannig
verðum við einnig að bera mistök
okkar og vaxa og rísa upp fyrir
þau. Það er þetta sem það merkir
að vera kristinn. Hann er upprisinn.
Við getum alltaf hresst sjálf okk-
ur við og byijað á nýjan leik. Tutt-
ugu og tveggja ára gömul stúlka lá
á banabeði sínum en hún gafst ekki
upp. Hún vissi að sjúkrahúsið henn-
ar vantaði sneiðmyndatæki sem
kostaði 50 milljónir króna og hún
Áfyrritíð
í Grófinni
í Geysissalnum á Vesturgötu 1
stendur yfir kynning á munum,
minjum og sögnum sem tengjast
gömlu Grófinni í Reykjavík og
einnig á starfsemi sem þar fór
fram.
Gamla Grófin er talin hafa verið
fyrsti fasti lendingarstaðurinn á
íslandi. Hún náði frá þeim stað sem
Vesturgata 2 (Álafossbúðin í dag)
er að Vesturgötu 4 (Versl. VBK).
Við hafnargerðina 1914-17 var
lendingarstaðurinn og vikið fyllt
upp með stórgrýti.
Á laugardaginn kemur, 30. mars,
verður kynningin opin frá kl. 10.00
til 13.00.
ákvað að safna þessum peningum.
Henni tókst að Ijúka því rétt áður
en hún dó. Hún trúði á upprisuna
en gerði allt sem hún gat áður en
hún kvaddi þetta líf.
1 breska flotanum er venja að
hafa kyrrðarstund á páskunum. Þeg-
ar merki er gefið, stöðvast allt. Allir
horfa, hlusta og hugsa og hefjast
svo handa á ný. Við skulum því
standa, horfa, hlusta og gera okkur
ljóst að Kristur er upprisinn, og svo
hefjumst við handa á ný með nýrri
von og styrk. Jesús elskar okkur svo
heitt að hann dó ekki aðeins fyrir •
okkur, heldur reis hann upp fyrir
okkur.
Sem kristinn maður átt þú að
taka á þig hlptverkið sem þér var
falið í skírninni — að líkjast Jesú
og breyta eftir fordæmi Jesú í heimi
þínum, og svo þegar Guð vill, sam-
kvæmt áformi hans, munt þú rísa
upp með Jesú til eilífðar.
Guð blessi ykkur.
Höfundur er biskup kaþólskra á
Islandi.
Vlutcuzcv
Hcílsuvörur
nútímafólks
Alfreð J. Jolson
★ Pitney Bowes-
póstpökkun
Mjög hentug fyrirtækjum,
bæjarfélögum, stofnunum
Brýtur blaöiö, setur í umslag
og lokar þvi
OTTO B. ARNAR HF.
Skipholti 33-105 Reykjavík
Simar 624631 / 624699
BUNAÐARBANKINN
í GRAFARVOGI
NÝTT ÚTIBÚ!
í GRAFARVOGI
Þriðjudaginn 2. apríl flytur Höfðaútibú Búnaðarbankans
starfsemi sína í nýtt verslunarhúsnæði að Hverafold 1-3.
í tilefni dagsins bjóðum við viðskiptavinum og öðrum
velunnurum bankans að þiggja kaffisopa og meðlæti.
Yngstu gestirnir fá Paddington límmiða og límmiðabók
og Paddington sjálfur kemur í heimsókn kl.l 1 og kl. 14:30.
BUNAÐARBANKINN
Verið velkomin í Búnaðarbankann í Grafarvogi!
BUNAÐARBANKINN
- Traustur banki