Morgunblaðið - 28.03.1991, Blaðsíða 87
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MARZ 1991
Sett frá kr. 1.460,-
Nýja sumartískan
Minning:
Kristín Kolbeins-
dóttir, ísafirði
Fædd 4. apríl 1909
Dáin 22. mars 1991
Hún elsku amma, Kristín Kol-
beinsdóttir, er látin.
Mér er þungt um hjarta þegar
ég hugsa til þess að ég eigi ekki
eftir að hitta hana aftur þegar ég
kem „heim á ísafjörð“. Þegar við
hittumst nú síðustu árin kvaddi
amma mig alltaf þannig eins og við
myndum kannski ekki hittast aftur.
Einhvern veginn trúði maður þessu
ekki og sem betur fer varð reyndin
sú, að við hittumst oft eftir þessar
kveðjustundir.
Kristín amma, eins og við kölluð-
um hana alltaf, hefði orðið 82 ára
4. apríl nk. Það er ef til vill hár
aldur, en svo var ekki þegar maður
var hjá ömmu. Hún var svo hress
og ung þrátt fyrir árin. Mér þótti
því svo vænt um þegar ég talaði
við hana síðast, þá kvaddi hún mig
ekki á sama gamla mátann heldur
sagði: „Nú ætla ég að tóra svolítið
lengur og fá að halda á honum litla
syni þínum honum Sigurði Jó-
hanni,“ því hann hafði hún aldrei
séð frá því hann fæddist 24. nóv-
ember sl. En nú tóku örlögin fram
fyrir hendurnar á ömmu. En ég
veit að þótt sonur minn hafi ekki
fengið að hvíla á örmum hennár,
þá er hún nú búin að fá að sjá
hann og vakir yfir honum.
Mér eru minnisstæðar samveru-
stundir okkar ömmu í sumar sem
leið er við Kristinn, unnusti minn,
heimsóttum hana. Þá var hún hress
og kát að vanda og var að fara í
ferðalag um Vestfirði með eldri
borgurum á Ísafírði. Þegar við
kvöddum dró hún fram skálina góðu
og gaukaði að okkur mola í nesti,
eins og hún sagði. Þetta litla atvik
minnti á bernskuna, já amma pass-
aði alltaf uppá að maður færi ekki
svangur frá henni.
Elsku mamma, Dúnna, Inga,
Gunnar og Sigurvin. Guð veri með
ykkur og veiti ykkur styrk á sorgar-
stundu.
Ég veit að amma kveið ekki fyr-
ir för sinni til nýrra heimkynna, og
bestu þakkir fær elsku amma fyrir
yndislegar samverustundir. Þeim
mun ég aldrei gleyma.
Sigurða Sigurðardóttir
Verð miðað við gengi jan. ‘91
Yfir 1000 síður, fatnaður, búsáhöld, íþróttavörur,
garðyrkjuvörur, gjafavörur o.fl. o.fl.
PANTANASÍMI 52866 VERSLUN, SKRIFSTOFA, HÓLSHRAUN 2, HAFNARFIRÐI
sumarlistinn
ókeypis
GERIÐ
VERÐSAMANBURÐ
FARKORT er alþjóðlegt greiðslukort gefið út í
samstarfi Félags íslenskra ferðaskrifstofa og
VISA ÍSLANDS. Pað er því gjaldgengt á 8
milljón verslunar- og þjónustustöðum víðs vegar
um heim og unnt er að taka út reiðufé á það í
yfir 350 þúsund afgreiðslustöðum banka og
sparisjóða og 65 þúsund hraðbönkum. Því fylgja
öll réttindi VISA-kortanna og margs konar
fríðindi að auki.
o
Þar ber einna hæst fullkomnar ferða/slysa-,
sjúkra- og farangurstryggingar og
helmingsafsláttur af forfallatrygginga-
gjaldi, en forfallatryggingar eru nú orðnar
skyldutryggingar í ferðum með íslenskum
ferðaskrifstofum.
Sem dæmi má nefna að fari Farkortshafi í
mánaðarferð til Evrópu sparar hann stofngjald
og árgjald kortsins í þeirri einu ferð miðað við
að kaupa sér þessar tryggingar sérstaklega. Fari
þriggja manna fjölskylda í tveggja vikna ferð til
Evrópu sparar hún í þessari einu ferð nærri 3600
krónur á því að eiiin úr fjölskyldunni fái sér
Farkort. Sé fjölskyldan stærri eða dveljist lengur
verður sparnaðurinn enn meiri. Að auki veitir
Farkort ýmsar aðrar tryggingar, sem geta komið
sér vel.
TRYGGARI FÖRUNAUT ER VARLA
HÆGT AÐ FÁ!
Upplýsingar veita feröaskrifstofur, bankar og sparisjóöir um land allt.
'• ’wSsSj" '•'^2'tkÖrSWfKi^
FARKS3RT •
VISA
'
m
9
FARKQRT
greiðslukort meö fríðindum
HUN ASER
TRYGGAN FÖRUNAUT
og ferðast áhyggjubus