Morgunblaðið - 28.03.1991, Blaðsíða 89
MORGUNBLAÐIÐ - FIMMTUÐAGUR-.28. MARZ .1991
£9
Stefán H. Halldórsson
Húsavík - Minning
Hinn 5. mars sl. lést á Húsavík
vinur minn og félagsbróðir Stefán
Halldórsson. Söknuður fyllir hug-
ann og hans skarð verður seint
fyllt. Stefán var óvenjulegúr mað-
ur. Óþreytandi að heijast fyrir öllu
sem horfði til bóta íslensku þjóðlífi,
ótrauður í baráttu betri og bættari
tíma. Trúr og alltaf á þeim stað sem
hann vissi að liðsinni sitt gæti orðið
að gagni.
Við unnum saman 1948 og 1949
á sýsluskrifstofunni á Stykkis-
hólmi. Við vorum þetta tímabil tveir
saman og hann var svo vel að mínu
skapi. Draga ekkert til morguns
sem hægt var að gera í dag. Hann
var einnig í starfi með mér í barna-
stúkunni, talaði við börnin og benti
þeim gæfuleiðir.
Frá þeirri stund var hann virkur
félagi góðtemplara og jafnan í far-
arbroddi. Engin tæpitunga í boð-
skapnum. í einu orði sagt: heill.
Og það munaði um hann sem liðs-
mann. Hann sá svo margt mannslíf-
ið fara í rúst af völdum vímuefna.
Hann undraðist og við báðir það
þjóðlíf sem leyfir brennivínsauð-
valdinu að fremja sitt ódæði á sak-
lausum sálum og auðgast af eymd
þeirra. Hann vissi að þeir sem sáu
um dreifingu eiturefna, í skjóli þess
að skugginn væri nægur til að skýla
þeim, báru ábyrgð á svo mörgum
mannslífum. Gat svo vel tekið und-
ir með borgfirska skáldinu Guð-
mundi Böðvarssyni „og vel mátt
þú skilja að þetta er fjandlegur
flokkur. Því ijandinn kenndi þeim
það sem Guð kenndi okkur“.
Og það er sorg að sjá þennan
fjandlega flokk vinna svona marga
sigra í þjóðlífinu í dag svo sem við
höfum fengið að kenna á í reglunni.
En Stefán var bjartsýnn. Koma
dagar. Fólkið hlýtur að vakna. Trúði
því sem Páll Kolka læknir segir í
einu sinna snilldar kvæða: Þótt að
kulni kolaglóð á afli. Kviknar önnur
síðar meir. Því í lífsins langa og
flókna tafli. Lýsir neisti er felst, en
aldrei deyr. Og einhverntíma
rumska valdhafar þjóðarinnar.
Þetta land og þessi þjóð er of dýr-
mæt til að fara í vaskinn.
Þau voru líka samhent, Stefán
og kona hans, Áslaug Georgsdóttir.
Þau áttu virkilega samleið. Og
margur var sigurinn unninn. Guð
blessi þau.
Og nú þegar leiðir skiljast um
stund, er þess gott að minnast hve
Stefán ar alltaf sannur og trúr,
hversu gleðin ljómaði úr andlitinu
þegar hann gat orðið til þess að
reisa við fallinn bróður eða systur.
Á góðri stund var Stefán glaður
og skemmtilegur og í heimsókn til
þeirra hjóna var stundin ekki lengi
að líða. Þess skal minnst hér og
þakkað. Og ég lít nú til baka á
kveðjustund. Minningarnar heiðar,
hreinar og skemmtilegar flykkjast
að. Þær verma og gefa styrk í
starfí erfiðra stunda. Vonbrigðum
var alltaf eytt. Ég þakka Stefáni
fyrir samfylgdina. Guð blessi hann
á ljóssins leiðum._
Árni Helgason
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og vinarhug við andlát og útför eigin-
manns míns,
SIGURÐAR TÓMASAR SIGURÐSSONAR,
Álfaskeiði 64,
Hafnarfirði.
Guð blessi ykkur öll.
Fyrir hönd vandamanna,
Guðrún Jónsdóttir.
t
Litla dóttir okkar,
HELENA RUNÓLFSDÓTTIR,
andaðist 21. mars.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey.
Eltn Helena Guðmundsdóttir,
Runólfur Þór Andrésson.
t
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
INGIMUNDUR GUÐMUNDSSON,
Hringbraut 1,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði þriðjudaginn
2. apríl kl. 13.30.
Edda Collins, William A. Collins,
Gunnar Ingimundarson, Kristin Bjarkan,
Ásmundur Ingimundarson, Jenný Sigurgeirsdóttir,
Grétar K. Ingimundarson, Karen Brynjólfsdóttir,
Stefanía lngimundardóttir, Ármann Björnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
HARALDUR GUÐMUNDSSON,
Faxabraut 20,
Keflavik,
verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju
laugardaginn 30. mars kl. 14.00.
Erla Sigurðardóttir,
Dagný Haraldsdóttir,
Marta Haraldsdóttir,
Helga Haraldsdóttir,
Haraldur Haraldsson,
og barnabörn.
Steinar Harðarson,
Hjörtur Fjeldsteð,
Guðmundur Baldvinsson,
Kjalarnes - Glæsilegar sjávarlóðir við Búagrund
Til úthlutunar eru
nú lóðir nr. 7-15
við Búagrund,
Kjalarnesi.
Upplýsingar
á skrifstofu
Kjalarneshrepps
ísíma
66 60 76. [ ie i
x> ] T
Sveitarstjóri.