Morgunblaðið - 03.05.2000, Blaðsíða 1
TBL. 88. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Umfangsmesta vinnustöðvun
í Noregi frá 1986
Hamstra mat-
væli af dtta við
langt verkfall
Osló. Reuters, AP.
NORÐMENN hömstruðu matvæli
og annan vaming í gær vegna yfir-
vofandi verkfalla í dag, þeirra víð-
tækustu frá 1986. Var boðað til
þeirra er samningar um allt að 4%
launahækkun höfðu verið felldir en
talið er, að miklar launahækkanir
hjá stjórnendum fyrirtækja hafi ráð-
ið nokkru um það.
Verkfóll félaga í norska alþýðu-
sambandinu munu ná til 85.000
manna og vegna þeirra mun mörg-
um hótelum verða lokað, hægja mun
verulega á byggingarframkvæmd-
um, útgáfa sumra dagblaða stöðvast
og mikil röskun verður á flutningum,
Lítill árangur
af viðræðum
London. Reuters.
TONY Blair, forsætisráðherra
Bretlands, og Bertie Ahern,
forsætisráðherra írlands, áttu í
gær fund í London með deilu-
aðilum á Norður-írlandi. Bar
hann ekki mikinn árangur en
ákveðið var að efna til annars
fundar í Belfast á morgun.
Ahern tók lítt á öllu að fund-
inum loknum og sagði, að hugs-
anlega væri ástæða til að eiga
annan fund á morgun en David
Trimble, leiðtogi sambands-
sinna, sagði, að hann væri engu
fróðari en áður um afvopnun
skæruliða frska lýðveldishers-
ins, IRA. Gerry Adams, leiðtogi
Sinn Fein, var öllu bjartsýnni
og sagði, að svör hefðu fengist
við ýmsum spumingum.
jafnt á sjó sem landi. Ljóst þykir
t.d., að útflutningur á laxi muni
stöðvast að verulegu leyti.
Ottast er, að verkföllin muni
kynda undir verðbólgu í Noregi, og
víst þykir, að vextir muni hækka
vegna þeirra. Lækkaði gengi krón-
unnar í gær og hefur það ekki verið
lægra gagnvart dollara í 15 ár.
Mikið var að gera í flestum stór-
mörkuðum í Noregi í gær þegar fólk
hamstraði alls konar matvæli og aðr-
ar nauðsynjar af ótta við langt verk-
fall. Var haft eftir verslunarstjóra í
einni stórversluninni, að hann bygg-
ist við, að flest yrði á þrotum innan
viku. Miklar biðraðir voru einnig við
áfengisútsölurnar í Noregi.
Félagar í verkalýðsfélögunum
felldu samninga um 3,5-4% kaup-
hækkun og fimmtu sumarfrísvikuna
frá 2002. Vinnuveitendur segja, að
meiri kauphækkun muni grafa und-
an samkeppnishæfi norsks iðnaðar
og auka verðbólgu og var ekki búist
við, að þeir myndu leggja fram ein-
hverja málamiðlunartillögu í bráð.
Kurr vegrna kauphækkana
sljórnenda
Jens Stoltenberg, forsætisráð-
herra Noregs, og verkalýðsleiðtog-
arnir segja, að miklar launahækkan-
ir hjá forsvarsmönnum fyrir-
tækjanna eigi stóran þátt í
verkfallinu og í 1. maí-göngunum
voru m.a. borin slagorð eins og
þetta: „Höfnum einhliða hófsemi."
Stjórn alþýðusambandsins kom
saman í gær og þar var ákveðið að
herða á verkfallsaðgerðum í næstu
viku verði þá ekki komið nýtt tilboð
frá atvinnurekendum.
Ganga hinna lifandi
Ezer Weizman, forseti fsraels,
minntist í gær þeirra Pólveija,
sem hjálpuðu gyðingum á dögum
Helfararinnar, við athöfn í
Auschwitz í Póllandi. Fór hann
fremstur i flokki í Göngu hinna
lifandi en hún er farin árlega og
er gengið frá Auschwitz til
Birkenau í þriggja og hálfs km
fjarlægð en þar voru aðrar
útrýmingarbúðir nasista. Var
gangan mjög fjölmenn að þessu
sinni enda tóku þátt í henni 5.000
ungmenni, gyðingar víðs vegar
að úr heimi. Hér er gengið undir
yfirskriftinni yfir hliðinu að
Auschwitz: „Vinnan gerir yður
frjálsa."
Ríkisstjórnin í Zimbabwe á fundi með Mugabe
Neita að tjá sig um
óöldina í landinu
Harare, London. Reuters, AFP.
RÍKISSTJÓRNIN í Zimbabwe hélt
í gær fund um ástandið í landinu,
jarðanámið og vaxandi óöld og of-
beldi, en ráðherramir neituðu að tjá
sig að honum loknum. Akveðið hef-
ur verið, að framkvæmdastjóri
Breska samveldisins fari til Zimb-
abwe.
„Við höfum ekkert að segja,“
sagði Chen Chimutengwende, upp-
lýsingamálaráðherra stjórnarinnar,
að fundinum loknum en bætti við,
að stjórnmálaráð ZANU-PF,
stjórnarflokksins, myndi efna til
fundar er Robert Mugabe, forseti
landsins, hefði skýrt frá kosninga-
stefnuskrá flokksins. Búist var við,
að hann gerði það í dag. Ekki var
minnst á hvenær kosningar yrðu
haldnar.
Fundur dönsku stjórnarinnar og færeysku heimastjórnarinnar
sátt og samlyndi en nið-
urstaðan fremur óljós
Kaupmannahöfn, Morgunblaðið.
„VIÐ komumst yfir það, sem við ætluðum okkur,“
sagði Poul Nyrup Rasmussen, forsætisráðherra
Dana, er hann kom til blaðamannafundar í gær-
kvöld ásamt Anfinn Kallsberg, lögmanni Fær-
eyja, að loknum fundi um sjálfstæðismál Færey-
inga.
Ætlunin hafði verið að fara yfir drög Færey-
inga að samstarfssáttmála landanna en í raun var
aðeins um kynningu að ræða. Næsti fundur þess-
ara aðila verður 15. júní.
Eins og áður vitnaði Kallsberg iðulega í sam-
bandslagasamning íslands og Danmerkur frá
1918 sem fyrirmynd en í samtali við Morgunblað-
ið sagði Nyrup, að hann áliti aðstæður íslendinga
þá og Færeyinga nú ekki sambærilegar.
Efnahagsmálin enn ásteytingarsteinn
Annað yfirbragð var á Nyrup nú en er hann
mætti til fundarins 17. mars. Pá kom hann einn og
tilkynnti, að Danir sættu sig ekki við meira en
fjögurra ára aðlögunartíma og ekki þau 10-15 ár,
sem Færeyingar hafa nefnt. Nú var hann rólegur
og yfirvegaður og þeir Kallsberg og aðrir voru
sammála um, að fundurinn hefði verið góður.
Nyrup kvaðst hafa áréttað, að fjögur ár væru
eftir sem áður viðmiðun dönsku stjórnarinnar en
Kallsberg kvaðst ekki ánægður með, að Færey-
ingar hefðu ekki eftir sem áður sömu réttindi í
Danmörku og öfugt, rétt eins og gilt hefði milli Is-
lendinga og Dana eftir 1918.
Ekki hægt að bera saman færeyskar
og íslenskar aðstæður
í viðtali við Morgunblaðið sagði Nyrup, að hann
teldi ekki hægt að bera saman færeyskar aðstæð-
ur nú og þær íslensku 1918. Þá hefðu ekki verið
fyrir hendi sömu sáttmálar og nú, til dæmis á milli
Norðurlandanna. Við sjálfstæði væri eðlilegt að
Færeyingar fengju sömu réttindi og hin Norður-
löndin og sjálfsagt að Færeyingar, sem búið
hefðu lengi í Danmörku, héldu fyrri réttindum.
Varðandi fjárhagsstuðninginn sagði Nyrup, að
framlag Dana til íslendinga hefði á þeim tíma ver-
ið sextíu þúsund danskar krónur á ári, sem reikn-
að á verðlagi nútímans jafngilti um 50 millj.
danskra króna. Framlag Dana til Færeyinga er
hins vegar um 1,4 milljarðar. Þarna væri því reg-
inmunur á.
Færeyingar töluðu á fundinum í gær um sjálf-
stæði og einnig ríkjasamband en Nyrup kvaðst
ekki fyllilega átta sig á hvað við væri átt. Sam-
bönd af þessu tagi væru til en sjaldgæf nema í
þriðja heiminum.
Hogni Hoydal sagði í samtali við Morgunblaðið,
að hann efaðist ekki um, að endirinn á viðræðun-
um yrðu drög, sem færeyska landstjórnin þyrfti
ekki að hika við að bera undir þjóðaratkvæði.
Átta manna aðgerðaráð Breska
samveldisins kom saman í London í
gær og var ákveðið, að Don
McKinnon, framkvæmdastjóri sam-
veldisins, færi til Zimbabwe á
næstu dögum til að leggja að stjórn-
völdum að halda frjálsar kosningar.
Bróðir stjórnarandstöðu-
leiðtoga myrtur
Vopnaðir stuðningsmenn Mug-
abes myrtu í gær bróður eins af
leiðtogum stjórnarandstöðunnar og
hefur þá ofbeldið í landinu kostað
a.m.k. 15 manns lífið. Hundruð
manna, fyrrverandi skæruliðar og
landtökumenn, komu saman í gær
til að lýsa yfir stuðningi við leiðtoga
sinn, Chenjerai Hunzvi, en hann
kom þá fyrir rétt, sakaður um að
hafa dregið sér fé úr sjóðum þess-
ara sömu manna. Kemur hann aftur
fyrir rétt í dag þar sem hann verður
inntur eftir hvað hann hafi gert til
að binda enda á jarðanámið en það
hefur verið dæmt ólöglegt í tvígang.
MORGUNBLAÐIÐ 3. MAÍ 2000