Morgunblaðið - 03.05.2000, Blaðsíða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Uppskeruhátíð körfuknattleiksdeildar Grindavíkur
Morgunblaðið/GPV
Verðlaunahafar karla frá vinstri: Einar Einarsson þjálfari, Pétur Guð-
mundsson, Alexander Ermolinskij, Brenton Birmingham, Guðlaugrir
Eyjólfsson og fyrir framan þá er Ágúst Bjarnason.
Morgunblaðið/GPV
Verðlaunahafar kvenna með verðlaunagripi sína frá vinstri: Sandra
Guðlaugsdóttir, Jovana Lilja Stefánsdóttir, Alexander Ermolinskij
þjálfari og Sólveig Gunnlaugsdóttir.
Þjónustu-
hús Kross-
kirkju vígt
Brenton Birmingham bestur
Grindavík - Það var að venju
mikið fjör á uppskeruhátíð körfu-
knattleiksdeildar IJMFG nú á dög-
unum. Boðið var upp á glæsilega
kvöldmáltíð í Festi en það var
veitingahúsið við Bláa lónið,
Jenný, sem sá um eldamennskuna.
Þeir leikmenn sem þóttu skara
framúr hjá kvenfólkinu voru Jov-
ana Lilja Stefánsdóttir fyrir
mestu framfarir en stúlkan sú er
dóttir hins þekkta knattspyrnu-
manns og þjálfara karlaliðs
UMFG í knattspyrnu, Milan (Stef-
áns) Jankovic. Sandra Guðlaugs-
dóttir var kosin besti varnarmað-
urinn og Sólveig Gunnlaugsdóttir
var valinn verðmætasti leikmað-
urinn.
Hjá körlunum var það Guðlaug-
ur Eyjólfsson sem sýndi mestu
framfarirnar, Alexander Ermol-
inskij besti varnarmaðurinn, Pét-
ur Guðmundsson besti liðsmaður-
inn og Brenton Birmingham var
valinn verðmætasti leikmaðuinn
og kemur það sjálfsagt fáum á
óvart.
Holti - Að lokinni páskamessu í
Krosskirkju annan í páskum var
nýreist þjónustuhús kirkjunnar vígt
af sr. Halldóri Gunnarssyni í Holti.
I ræðu formanns sóknarnefndar,
Þorsteins Þórðarsonai- á Sléttubóli,
kom fram að húsið var teiknað á veg-
um húsafriðunarnefndar ríkisins,
tæpir 60 fermetrar á stærð og bygg-
ingaverktakar hefðu verið bræðurn-
ir Ulfar og Gylfi Freyr Albertssynir.
í ræðu sinni minntist Þorsteinn sér-
staklega systkinanna frá Gularási,
þeirra Einars, Guðmundar, Guðnýj-
ar og Þórunnar, en Guðmundur, sem
lifði systkini sín, arfleiddi Kross-
kirkju af öllum eigum sínum, en
hann andaðist 26. febrúar 1998. I
minningu þeirra var afhjúpuð mynd
af systkinunum og húsinu gefið nafn-
ið: Systkinahús.
Húsið býður upp á starfsaðstöðu
fyrir sóknarprest, sóknarnefnd og
kirkjukór, ásamt því að geta haft þar
kirkjukaffi og fundaraðstöðu fyrir
félagsstarf í sveitinni.
Orkuveita Reykjavíkur
tekur við rekstri Hita-
veitu Þorlákshafnar
SAMKVÆMT samningi um kaup
Orkuveitu Reykjavíkur á Hitaveitu
Þorlákshafnar sem gerður var 8.
febrúar sl. tók Orkuveitan við rekstri
Hitaveitu Þorlákshafnar í gær,
þriðjudag.
Kaupverðið er 350 milljónir króna.
Ný reglugerð fyrir Hitaveitu Þor-
lákshafnar hefur verið samþykkt af
iðnaðarráðuneytinu. Gengið hefur
verið írá ráðningu Guðlaugs Sveins-
sonar sem hitaveitustjóra. Engin
breyting verður á rekstri Hitaveitu
Þorlákshafnar fyrst um sinn.
„Orkuveita Reykjavíkur hefur
hug á að beina atvinnustarfsemi til
Þorlákshafnar, bæði eigin starfsemi
og annarri. Lýsing leiðarinnar milli
Þorlákshafnar og Reykjavíkur um
Þrengsli er sameiginlegt hagsmuna-
mál íbúa höfuðborgarsvæðisins og
Suðurlands, m.a. til að tryggja ör-
yggi vegfaranda og hafa Orkuveitan
og bæjarstjórn Ölfuss samþykkt að
vinna saman að þessu verkefni," seg-
ir í frétt frá Orkuveitunni.
Á næsta og þarnæsta ári verða
boraðar rannsóknarholur á hinu
nýja landsvæði Orkuveitu Reykja-
víkur á Hellisheiði.
Morgunblaðið/Halldór
Nýreist þjónustuhús Krosskirkju í Austur-Landeyjum.
Félagsheimili
hestamanna í
Grundarfírði rís
Stykkishólmi - Fréttaritari átti
leið um Grundarfjörð fyrir skömmu
og hitti hóp hestamanna sem voru
með hamar og sög í hendi, en ekki
hnakk og beisli eins reikna mátti
með. Það er enn að finna gamla
ungmennafélagsandann, því hesta-
menn í Grundarfirði tóku sig til og
reistu hús fyrir starfsemi sína.
Hestamenn búa svo vel að eiga út-
lærða húsasmíðameistara og fjölda
laghentra manna svo það vafðist
ekki fyrir þeim að snara upp húsi í
sjálfboðaliðavinnu. Verkið hófst eft-
ir hádegi á föstudegi og seinnipart
laugardags var húsið risið og komið
undir súð. Sökklarnir voru steyptir
s.I. haust. Þótt vel hafi gengið þessa
helgi eru nokkur handtök eftir að
sögn smiðanna og er stefnt að þvi
að fullklára húsið fyrir vorið. Húsið
sem er um 70 fm að stærð, verður
notað fyrir félagsstarfsemina og
kemur þar að miklum notum því
staðsetning þess er miðuð við að
hafa yfirsýn yfir skeiðvöll félagsins.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Arnason
Þeir eru duglegir hestamenn í Grundarfirði og eru þeir að byggja fé-
lagsheimili fyrir starfsemina. Hér eru þeir fyrir framan bygginguna og
búnir að flagga til merkis um það að búið er að reisa það.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Ámason
Fulltrúar á aðalfundi Samfés, samtök félagsmiðstöðva á íslandi, fyrir framan félagsmiðstöðina X-ið í Stykkis-
hólmi, en þangað var gestunum boðið og þeim kynnt starfsemi X-sins.
Samfés þingar í Stykkishólmi
Stykkishólmi - Samfés, samtök
félagsmiðstöðva á íslandi, héldu
aðalfund sinn í Stykkishólmi 27. -
28. apríl. Á þingið mættu um 90
fulltrúar frá 60 félagsmiðstöðv-
um. 8 félagsmiðstöðvar gengu inn
í samtökin á fundinum og innan
raða þeirra eru um 65 félagsmið-
stöðvar. Samtökin eru því alltaf
að stækka og starf þeirra að auk-
ast.
Helstu verkefni samtakanna um
þessar mundir er samstarf við
verkefnið „Island án eiturlyfja"
um að vinna að forvarnarstarfi.
Styrkur fékkst til að gera sjón-
varps- og blaðaauglýsingar og
plakat til að vekja athygli á hætt-
una af áfengi. Þar voru unglingar
í félagsmiðstöðvum fengnir til að
sitja fyrir og taka þátt í verkefn-
inu. Þá ætla samtökin að efla
smiðju-vinnu unglinga næsta vet-
ur.
Fjölbreytt dagskrá í boði
Stefnt er á að bjóða upp á 2-3
smiðjur á mánuði þar sem fjöl-
breytt verkefni eru í gangi. Önn-
ur verkefni samtakanna eru söng-
keppni Samfés, Samfésball, lands-
mót Samfés og samkeppni um
forvarnarmyndband. Það er óhætt
að segja að þeim unglingum sem
stunda félagsmiðstöðvarnar næsta
vetur verði boðið upp á fjöl-
breytta og skapandi dagskrá.
Oskar Dýrmundur Ólafsson var
endurkjörinn formaður samtak-
anna, en hann starfar í félags-
miðstöðinni Miðbergi. Fram-
kvæmdarstjóri er Jón Hilmarsson.