Morgunblaðið - 03.05.2000, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2000 11
Uthlutun orlofshúsa hjá
Stéttarfélaginu Eflingu
Aldraðir eiga
minni möguleika
á umsetnasta
orlofstímanum
MÖGULEIKAR elli- og örorkulíf-
eyrisþega á því að fá úthlutað or-
lofshúsum á umsetnasta tíma árs-
ins hjá Stéttarfélaginu Eflingu eru
minni en annarra félaga vegna þess
punktakerfís sem notað er við út-
hlutunina. Að sögn Fjólu Jónsdótt-
ur, sem sér um úthlutun orlofshúsa
hjá Eflingu, er hins vegar komið til
móts við þennan hóp með sérstöku
tilboði á vorin en á fyrstu þremur
vikum orlofstímabilsins býðst eldri
félögum og öryrkjum orlofshús á
þriðjungi fulls verðs.
Kona á áttræðisaldri sem borgað
hafði iðgjöld stéttarfélagsins allan
sinn starfsferil fékk nýlega neitun
er hún sótti um orlofshús hjá Efl-
ingu jafnvel þó að þetta væri í
fyrsta sinn sem hún sótti um. Fjóla
segir þetta hins vegar alls ekki
þýða að viðkomandi einstaklingur
eigi ekki rétt á úthlutun.
Segir hún að það kerfi sem not-
ast er við vegna úthlutunar orlofs-
I gæslu
vegna hníf-
stungumáls
ÞRÍTUGUR karlmaður, sem
grunaður er um að hafa stungið
átján ára pilt í kviðinn með hnífí
á Laugaveginum aðfaranótt
laugardags, var úrskurðaður í
gæsluvarðhald til 10. maí, í kjöl-
far handtöku hans fljótlega eftir
árásina.
Betur fór en á horfðist með
meiðsl piltsins og var hann fljót-
lega útskrifaður af gjörgæslu-
deild Landspítalans í Fossvogi
og liggur nú á skurðdeild
sjúkrahússins. Lögreglan lítur
málið engu að síður alvarlegum
augum og taldi kröfu um gæslu-
varðhald árásarmannsins nauð-
synlega í þágu rannsóknar- og
almannahagsmuna. Hnífurinn
er í vörslu lögreglunnar.
húsa á sumrin og um páska byggist
á iðgjaldasögu síðustu ellefu ára og
fær viðkomandi félagi tvo punkta
fyrir hvern greiddan mánuð í félag-
ið. Sérstakt tölvukerfi sér um að
úthluta húsunum og skoðar það
einfaldlega hversu margir sækja
um hvert hús á tilteknum tíma, og
hvað þeir hafi marga punkta.
Möguleikarnir minnka með
hverju árinu sem líður
Möguleikar ellilífeyrisþega og
öryrkja á því að fá úthlutun
minnka því með hverju árinu sem
líður frá því að þeir hættu að vinna
enda greiða þeir ekki lengur ið-
gjöld og er þeim þar af leiðandi
ekki úthlutað punktum vegna or-
lofshúsa. Eigi menn enga punkta
inni fá þeir að vísu gefíns punkta
sem samsvara þremur og hálfu ári
en Fjóla viðurkennir að líkurnar á
því að þeir fái úthlutað orlofshúsi á
umsetnasta tíma ársins séu minni
en annarra.
Hún tekur hins vegar fram að
ekki sé byggt á þessu punktakerfi
yfir vetrarmánuðina, auk þess sem
komið er sérstaklega til móts við
þennan hóp í upphafi orlofstíma-
bilsins, eins og áður sagði.
„Það eru auðvitað alltaf skiptar
skoðanir um hvað er réttlátt í
þessu sambandi og hvað ekki,“ seg-
ir Fjóla, en Eflingu bárust um
1.300 umsóknir vegna orlofshúsa í
sumar. „Fólk sem er á fullu á
vinnumarkaðnum í dag rífst líka og
skammast og kvartar undan því að
eldri félagar gangi alltaf fyrir, þeir
fái jú tilboð til sólarlanda og ýmis-
legt annað sem fólk sem er á vinnu-
markaði í dag fær ekki.“
Það liggi hins vegar í augum
uppi að við einhver ákveðin kerfi
verði að notast. Það sé ekki hægt
að fela einni manneskju að vega og
meta hverjum eigi að úthluta or-
lofshúsunum. Menn hafi gert sitt
besta til að finna farsæla lausn í
þeim efnum en aldrei sé hægt að
gera þannig að öllum líki.
Niðurstaða talningar v. kjarasamninga hjá aðildarfélögum VMSÍ-Li
r, iii (II || Fjöldi á Atkvæði i • Auöirog Samningur
Felogin IU « 1 , kjörskrá greiddu ja i\iei ógildir samþykktur
Vlf. Akraness 407 100 25% 65 65% 34 34% ... ^ Já
Vlf. Hörður, Hvalfirði Ekki var kosið um samninginn , y Já
Vlf. Borgarness 297 47 16% 29 62% 18 38% 0 Já
Vlf. Snæfellsbæjar 258 'm 70 27% 45 64% 25 36% 0 Já
Vlf. Stjarnan, Grundarfirði 102 24 24% 17 71% 7 29% 0 Já
Vlf. Stykkishólms 101 31 31% 22 71% 9 29% 0 Já
Vlf. Valur, Búðardal 35 1 3% 0% 1 100% Já 1>
Vlf. Baldur, Isafjörður 269 67 25% 45 67% 22 33% 0 Já
Vlf. Bolungarvíkur 80 32 40% 28 88% 3 9% 1 Já
Vlf. Hólmavíkur 39 22 56% 17 77% 3 14% 2 Já
Vlf. Hrútfirðinga Ekki var kosið um samninginn Já
Stéttarfélagið Samstaða 441 187 42% 76 41% 97 52% 14 Nei
Vlf. Fram-Vkf. Aldan, Sauðárkróki 295 123 42% 47 38% 74 60% 2 Nei
Vlf. Vaka, Siglufirði 180 107 59% 50 47%: 50 47% 7 Já2>
Eining-lðja 2644 1077 41% 565 52% 499 46% 13 Já
Vlf. Húsavíkur 476 216 45% 120 56% 93 43% 3 Já
Vlf. Öxarfjarðar 96 35 36% 15 43% 20 57% 0 Nei
Vlf. Raufarhafnar 121 41 34% 36 88% 5 12% 0 Já
Vlf. Þórshafnar Samningurinn var samþykktur Já
VI. og sjóm.f. Vopnafj. og Skeggjastaðarhr. Niðurstöður bárust ekki 3) |
Vlf. Fljótsdalshéraðs og Borgarfjarðar 194 43 22% 25 58% 15 35% 3 Já
Vmf. Fram, Seyðisfirði 83 35 42% 23 66% 11 31% 1 Já
Vlf. Norðfirðinga 134 93 69% 46 49% ~ 45 48% 2 Já
Vlf. Árvakur, Eskifirði 153 50 33% 31 62% 18 36% 1 Já
Vlf. Reyðarfjarðar 97 26 27% 24 92% 1 4% 1 Já
VI. og sjóm.f. Fáskrúðsfjarðar .. .. .. .“?/( 52 45 87% 2 4% 5 Já
Vökull stéttarfélag 366 158 43% 82 52% 73 46% 3 Já
Vlf. Samherjar, Klaustri Ekki var kosið um samninginn Já
Vlf. Víkingur, Vík Niðurstöður bárust ekki 3)
Vlf. Vestmanneyja - Vkf. Snót 383 125 33% 88 70% 36 29% 1 Já
Vlf. Rangæingur 263 109 41% 71 65% 36 33% 2 Já
VI. og sjóm.f. Bjarmi 46 18 39% 16 89% 2 11% 0 Já
Vlf. Báran-Þór 581 121 21% 71 59% 49 40% 2 Já
VI. og sjóm.f. Boðinn 553 188 34% 121 64% 63 34% 4 Já
Vlf. Grindavíkur 447 56 13% 27 48% 29 52% 0 Já')
VI. og sjóm.f. Sandgerðis 321 105 33% 80 76% 21 20% 4 Já
Samtals allir (38 félög) 9.462 3.359 1.927 1.361 72
1) Samningar samþykktir vegna ónógrar þátttöku. 2) Samþykkt á jöfnum atkvæðum.
| 3) Skoðast samþykktir. Frestur til að skila inn niuðurstöðum rann út kl. 16.00 í gær.
Verð á innfluttum
lyfíum lækkar
VERÐ á innfluttum lyfjum sem
Tryggingastofnun ríkisins tekur
þátt í að greiða hefur lækkað um
8,2% á tímabilinu frá janúar árið
1997 til desember árið 1999. Þetta
kemur fram í grein Guðbjargar AI-
freðsdóttur, formanns lyfjahóps
Samtaka verslunarinnar, sem birt er
í nýútkomnu riti Lyfjatíðinda.
Vitnar Guðbjörg í minnisblað TR
frá síðasta ári máli sínu til stuðnings
en þar segir m.a. að hámarksverð
lyfja í heildsölu hafi í raun lækkað
hérlendis að undanförnu. Bendir hún
auk þess á að hér sé heildsölum og
smásölum heimilt að víkja frá skráðu
hámarksverði og segir margvíslegan
afslátt veittan af lyfjaverði. Rétt sé
að lyfjaverð sé nokkru hærra hér en í
nágrannalöndunum en ástæðan sé
Blaðaskrif í Danmörku um samstarf Bjarkar Guðmundsdóttur og Lars von Trier
Myndin frumsýnd
í Cannes í vor
smæð íslenska markaðarins.
,Aðildjn að EES hefur víðtæk
áhrif á ísland og hún kostar sitt,“
segir Guðbjörg . „íslensk yfirvöld
veita nú svokölluð markaðsleyfi fyrir
þeim lyfjum sem fullnægja evrópsk-
um stöðlum. Þegar markaðsleyfis-
hafa hefur verið úthlutað hámarks-
verð greiðir hann af því allan
kostnað við frumþróun lyfsins, öflun
markaðsleyfis, framleiðslu, markað-
ssetningu, birgðahald og dreifingu.
Þessi tilhögun gerir umboðsaðilum
markaðsleyfishafa m.a. skylt að sjá
um vandsasamar þýðingai- á textum
um lyfin, auk aðildar að hönnun um-
búða þar sem grunnupplýsingar
þurfa að koma fram á íslensku. Þessi
grunnkostnaður, sem er jafnhár og á
milljóna mörkuðum, dreifist á miklu
færri sölueiningar á íslandi.“
---------------------
Skaðabótamáli
Briggs áfrýjað
Kaupmannahöfn. Morgxinblaðiö.
„ÞAÐ segir sína sögu að bæði Björk Guðmunds-
dóttir og Lars von Trier verða viðstödd sömu
frumsýninguna á myndinni í Cannes í maí,“ segir
Scott Rodgers, umboðsmaður hjá útgáfufyrirtæki
Bjarkar One Little Indian, þegar Morgunblaðið
bar undir hann grein í Berlingske Tidende í gær.
Rodgers bendir á að bæði Björk og von Trier séu
mjög ánægð með myndina og niðurstaðan sé það
sem máli skipti.
Utdráttur úr greininni birtist sem aðalfréttin á
forsíðu blaðsins, en sjálf greinin er heilsíðugrein á
forsíðu menningarblaðs Berlingske Tidende. í
greininni er lýst samstarfsörðugleikum danska
leikstjórans Lars von Trier og Bjarkai’ við gerð
nýjustu myndar Triers, „Dancer in the Dark“, þar
sem Björk leikur aðalhlutverk og semur tónlistina.
Rodgers undirstrikar að ástæða sé til að meta
myndina, ekki eltast við sögusagnir, sem á endan-
um skipti engu máli.
Sören Anker Madsen, blaðamaður Berlinske
Tidende, sem skrifaði greinina, segir að hún væri
ekki skrifuð til að gera h'tið úr Björk. Hún hefði
einfaldlega átt erfitt um vik í hlutverki leikkonu og
það gæti tekið á taugarnar að vinna með von Trier.
„Það er ekki við Björk að sakast í þessu máli, held-
ur var hún aðeins undir gífurlegum þrýstingi,“ seg-
ir hann.
Seinkun á vinnslu myndarinnar
„Óreiða ógnaði hinni nýju stórmynd von Triers"
er fyrirsögnin á forsíðu Berlingske Tidende í gær,
þar sem mynd af þeim Björk og von Trier frá upp-
hafi kvikmyndagerðarinnar fylgir með. Þar er rak-
ið að mjóu hafi munað að myndin yrði aldrei full-
gerð, því oft og mörgum sinnum hafi samstarf
tvímenninganna verið að því komið að leysast upp.
Þetta hafi leitt til þess að myndinni hafi ekki verið
lokið fyrr en nú nýlega og rétt í tæka tíð til að koma
henni til Cannes.
Scott Rodgers segir að á endanum sé það hinn
listræni afrakstur sem skipti máli. „Myndinni hefði
ekki verið hleypt af stokkunum ef Björk hefði ekki
verið ánægð og hún myndi heldur ekki taka það að
sér að fara til Cannes á frumsýninguna og ferðast
um allan heiminn með Catherine Deneuve tO að
kynna myndina ef hún væri ekki ánægð með hana.“
Rodges minnir á að ýmislegt hafi gengið á við
tökur ýmissa frægra kvikmynda í gegnum tíðina.
Myndin muni tala sinu máli og þá muni allt annað
gleymast.
Listrænn ágreiningur
Björk Guðmundsdóttir vill ekki tjá sig um þessi
blaðaskrif. Morgunblaðið hefur hins vegar heim-
ildir fyrir því að listrænn ágreiningur hafi verið
milli Bjarkar og Lars von Triers við gerð myndar-
innar. Hann snerist um tónlistaratriði í myndinni
en Björk vildi eiga síðasta orðið um gerð þeirra
sem höfundur tónlistarinnar.
SKAÐABÓTAMÁLI Bretans Kios
Briggs gegn íslenska ríkinu hefur
verið áfrýjað til Hæstaréttar og er
reiknað með að málflutningur fari
fram á næstunni. Gjafsóknarleyfi til
málshöfðunarinnar liggur fyrir, en
Briggs fékk einnig gjafsókn iyrir
héraðsdómi.
Héraðsdómur Reykjavíkur hafn-
aði 27 milljóna króna skaðabóta-
kröfu Briggs 24. febrúar sl. en
Briggs krafðist bótanna fyrir tæp-
lega eins árs frelsissviptingu á með-
an rannsókn á máli hans stóð yfir.
Hinn 16. júlí sl. sýknaði Hæstiréttur
hann af ákæru fyrir að reyna að-
smygla rúmlega 2000 e-töflum til
landsins í september 1998.
Briggs hefur nú afplánað fjóra
mánuði af tólf í fangelsi í Danmörku
fyrir smygl um 800 e-töflna í fyrra.