Morgunblaðið - 03.05.2000, Blaðsíða 76
76 MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
ÍDAG
Hvítasunnukirlq'an Ffladelfía
m i \ ; | | |
|- 'j ijjrv i
| ||j| ''' fflí "TII
Safnaðarstarf
Daníel Karl-
sen gestur
í Fíladelfíu
Daníel Karlsen var einn besti sölu-
maður Noregs með landbúnaðarvél-
ar og hefur fengið mörg verðlaun
fyrir það. Hann tók á móti Jesú sem
- vfrelsara sínum fyrir u.þ.b. 18 árum
og er nú forstöðumaður fyrir Hvíta-
sunnukirkjunni í Beröa í Ósló. Þau
þrjú ár sem Daníel hefur verið for-
stöðumaður hefur söfnuðurinn vaxið
og í honum eru nú um 1.200 manns.
Hann situr í stjóm meðferðarheimil-
is Evangeliesenteret sem er rekið af
hvítasunnumönnum í Noregi.
Daníel ferðaðist mjög mikið og
predikar víða, m.a. í Skandinavíu,
Finnlandi, Svíþjóð, Danmörku, Fær-
eyjum og hér á Islandi var hann aðal-
ræðumaður Kotmótsins 1998. Hann
r hefur talað á öllum sumarmótum í
Noregi og er mjög eftirsóttur ræðu-
maður. Það má segja um Daníel að
sérstök smurning hvíli yfir honum og
snertir hann hjörtu allra sem á hann
hlusta með einföldum en áhrifamikl-
um boðskap sem Guð hefur lagt hon-
um á hjarta.
Daníel verður með raðsamkomur í
Ffladelfíu, Hátúni 2, dagana 4. til 8.
maí kl. 20 nema á sunnudeginum 7.
maí verður samkoma kl. 16.30.
Bústaðakirkja. Félagsstarf aldr-
aðra í dag kl. 13.30.
Dómkirkjan. Samvera fyrir mæð-
ur með ung börn kl. 10.30-12 í safn-
aðarheimilinu. Hádegisbænir kl.
12.10. Orgelleikur á undan. Léttur
- \Tnálsverður á eftir.
Grensáskirkja. Foreldramorgunn
kl. 10-12. Allar mæður velkomnar
með lítil börn sín. Samverustund
eldri borgara kl. 14-16. Biblíulestur,
samverustund, kaffiveitingar. TTT-
starf fyrir 10-12 ára börn kl. 17.
Hallgrímskirkja. Opið hús fyrir
foreldra ungra barna kl. 10-12.
Háteigskirkja. Kvöldbænir og
fyrirbænir kl. 18.
Laugameskirkja. Morgunbænir
kl. 6.45-7.05. Kirkjuprakkarar kl.
14.30. Starf fyrir 6-9 ára börn. TTT
kl. 16, starf fyrir 10-12 ára börn.
Neskirkja. Foreldramorgunn kl.
10-12. Fræðsla: Málþroski og örvun
barna. Hjúkrunarfræðingur af Sel-
j$:. tjamarnesi. Bænamessa kl. 18.05.
Sr. Frank M. Halldórsson.
Seltjarnarneskirkja. Kyrrðar-
stund kl. 12. Söngur, altarisganga,
fyrirbænir. Léttur hádegisverður í
safnaðarheimilinu.
Árbæjarkirkja. Félagsstarf aldr-
aðra. Opið hús í dag kl. 13.30-16.
Handavinna og spil. Fyrirbæna-
guðsþjónusta kl. 16. Bænarefnum er
hægt að koma til presta safnaðarins.
Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund
kl. 12.10. Tónlist, altarisganga, fyrir-
bænir. Léttur málsverður í safnað-
arheimilinu á eftir. Kirkjuprakkar-
ar, starf fyrir 7-9 ára börn kl. 16.
TTT-starf 10-12 ára kl. 17.15.
Fella- og Hólakirkja. Helgistund í
Gerðubergi á fimmtudögum kl.
10.30.
Grafarvogskirkja. Kyrrðarstund
í hádegi kl. 12. Altarisganga og fyrir-
bænir. Léttur hádegisverður.
Hjallakirkja. Fjölskyldumorgnar
kl. 10-12. Starf f'yrir 10-12 ára kl. 17.
Kópavogskirkja. Klúbbur 8-9 ára
í dag kl. 16.45-17.45 í safnaðarheim-
ilinu Borgum. Starf á sama stað með
10-12 (TTT) ára börnum kl. 17.45-
18.45.
Seljakirkja. Kyrrðar- og bæna-
stund í dag kl. 18. Beðið fyrir sjúk-
um, allir velkomnir. Léttur kvöld-
verður að stund lokinni. Tekið á móti
fyrirbænaefnum í kirkjunni og í síma
567-0110.
Víðistaðakirkja. Opið hús fyrir
eldri borgara kf. 14-16.30. Helgi-
stund, spil og kaffi.
Vídalínskirkja. Foreldramorgunn
kl. 10-12. Farið verður í ferðalag,
lagt af stað frá kirkjunni kl. 13.30.
Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðar-
stund kl. 12. Hugleiðing, altaris-
ganga, fyrirbænir, léttur málsverður
á eftir í Ljósbroti, Strandbergi kl.
13.
Keflavíkurkirkja. Kirkjan opnuð
kl. 12. Kyrrðar- og fyrirbænastund í
kirkjunni kl. 12.10. Samverustund í
Kirkjulundi kl. 12.25. Súpa, salat og
brauð á vægu verði. Allir aldurshóp-
ar.
Landakirkja, Vestmannaeyjum.
KI. 20 opið hús unglinga í KFUM &
K-húsinu. K1 20 AGLOW-fundur í
safnaðarheimilinu.
Akraneskirkja. Unglingakórinn.
Söngæfing í Safnaðarheimilinu
Vinaminni kl. 17.30.
Kletturinn, kristið samfélag.
Bænastund kl. 20. Allir velkomnir.
Hólaneskirkja, Skagaströnd.
Bæna- og kyrrðarstund kl. 18.
Ffladelfía. Súpa og brauð kl.
18.30. Kennsla kl. 19.30. Krakka-
klúbbur, unglingafræðsla. Kennsla
fyrir enskumælandi og biblíulestur.
Allir hjartanlega velkomnir.
Boðunarkirkjan. í kvöld verður
16. hluti námskeiðs um Opinberun-
arbók Jóhannesar á sjónvarpsstöð-
inni Omega og í beinni útsendingu á
FM 107. Leiðbeinandi er dr. Stein-
þór Þórðarson. Efni: Dauðinn - Nýtt
líf með Jesú Kristi. Á morgun verður
dr. Steinþór með hugleiðingu á FM
107 kl. 15.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Hljómburð-
ur í Hall-
grímskirkju
ALLT frá því kirkjan var
vigð haustið ’86 hefur verið
leitast við að betrumbæta
þar hljómburð tónlistarinn-
ar og hljóðburð hins talaða
máls. Þetta hefur verið þol-
inmæðisverk í kirkjurúmi
hinna háu hvelfinga. En að
því kom að hið talaða mál
var farið að heyrast nokkuð
vel um allt kirkjuskipið, þ.e.
þegar tækjabúnaðurinn var
rétt stilltur fyrir alla, en
ekki aðeins fyrir þá sem
höfðu fulla heyrn. Þeir sem
stjórna þarna tónlistinni
eru farnir að „kunna vel á
húsið“ og staðsetja flytj-
endur rétt og vel. En nú brá
svo við í morgunguðs-
þjónustu í kirkjunni á
pálmasunnudag að allt virt-
ist úr lagi gengið. Prestur-
inn talaði og talaði og talaði,
en ekki heyrðist hvað hann
sagði, því rödd hans barst
málm-hörð og hvell langt úr
fjarska. Síðasta „endurbót
sérfræðinga“ virðist hafa
verið fólgin í því að stað-
setja hátaiara uppi í hæstu
hæðum kirkjuskipsins og
enginn sást nú lengur við
hlj óð-stilli-borðið fremst í
kirkjusalnum t.h.?
Leitt að þurfa að vekja
athygli á þessu slysi hér, en
svo virðist sem starfsmenn
og stjórnendur þessa mikla
þjóðarhelgidóms hafi ekki
gert sér grein fyrir þessu
óstendi.
I von um skjótar og góð-
ar úrbætur sendast bestu
sumarkveðjur.
H.V.Þ.
Tapad/fundid
Skærgrænn
ungbarna burðar-
poki tapaðist
UM PÁSKAHE LGINA
tapaðist skærgrænn ung-
barna burðarpoki, senni-
lega við skógræktina í
Haukadal eða við Geysi.
Upplýsingar í síma 562-
0152.
Lyklakippa
fannst
LYKLAKIPPA merkt
Moschino fannst við
Hraunbæ fimmtudaginn
27. apríl sl. Upplýsingar í
síma 898-7893.
Gullnisti fannst
GULLNISTI með mynd
fannst mánudaginn 17.
apríl sl. fyrir utan Bónus í
Skeifunni. Upplýsingar í
síma 553-5997.
Dýrahald
Blandaðir skógar-
kettlingar fást gefins
SJO vikna, blandaðir skóg-
arkettlingar fást gefins.
Upplýsingar í síma 695-
1483.
Falleg læða
fæst gefíns
FALLEG fjögurra mánaða
læða fæst gefins á gott
heimili vegna óviðráðan-
legra aðstæðna. Upplýsing-
ar í síma 565-5607 eða 692-
9837.
Alþjóðlegt stærðfræðiár
Finndu tölurnar
Alþjóðasamband stærðfræðinga ákvað árið 1992 að árið 2000
skyldi veraalþjóðlegt stærðfræðiár. Af þvi tilefni eru starfandi
nefndir í mörgum löndum heims sem vinna að markmiðum
stærðfræðiársins en þau eru:
■ að vekja athygli á viðfangsefnum stærðfræðinnar á 21. öldinni
■ að varpa Ijósi á lykilhlutverk stærðfræðinnar í allri þróun og
■ að fjalla um ímynd stærðfræðinnar í hugum almennings
og sjórnvalda.
Á Islandi er starfandi samstarfsnefnd um Alþjóðlega stærð-
fræðiárið en f henni eiga sæti fulltrúar frá Hl, KHl, Félagi raun-
greinakennara, Islenska stærðfræðafélaginu og Fleti, samtök-
um stærðfræðikennara. Nefndin stendur fyrir mörgum viðburð-
um á árinu s.s. útgáfu bóka, ráðstefnu, greinaskrifum, fyrirlestr-
um og fleiru. Eitt af þeim er þessi dálkur í sem nú mun verða
birtur vikulega út árið. Ein stærðfræðiþraut verður lögð fyrir
lesendur í viku hverri og í næstu viku á eftir kemur lausnin og
ný þraut. Við munum einnig í þessum dálki vekja athygli á
þeim viðburðum sem eru á döfinni hverju sinni. Tilgangurinn
er að vekja athygli almennings á stærð-fræði og vonum við
að sem flestir hafi gaman af.
Þrautl
Finndu tölurnar sem vantar í kassana og notaðu sömu reikn-
ingsaðferðir og eru notaðar í tveimur fyrstu dæmunum.
Notaðu margföldun, deilingu, samlagningu og frádrátt.
Engin brot eða negatívar tölur eru með f dæmunum.
a)
b)
m 4 5 3 1 1 0
7 9 3
16 4 2 6 4 10 ?
4 6 6
Hér eru 3 vefslóðir fyrir http://wvwv.ismennt.is/vefir/heilabrot/
þá sem vilja spreyta sig http://syrpa.khi.is/-stae/krakkar.htm
á stærðfræðiþrautum. http://www.raunvis.hi.is/~stak/
SKAK
llinsjón llelgi Áss
Grétarsson
Meðfylgjandi
staða kom upp
á milli pólska
stórmeistarans
Aleksander
Wojtkiewicz,
hvitt, (2.563)
og Finnans
Timo Lampen
(2.307) á XIX.
Reykjavíkur-
skákmótinu.
22. Hxc6+!
Kb8 23. Hc8!+
Bxc8 24. Da8+
Kc7 25. Re6+
Kd6 26. Rxd8
Re5 Svartur
verður mát eft-
ir 26. - Hxd8 27. Dc6 27.
Rf7+! Ke6 Enn var ridd-
arinn friðhelgur þar sem
eftir 27. - Rxf7 mátar hvít-
ur með 28. Dc6 28. Rxh8
og svartur gafst upp.
Hvítur á leik.
Víkverji skrifar...
REKSTUR Byrgisins, heimilis
fyrir vímuefnafíkla, er án efa
merkilegur. Þótt Víkverji hafi ekki
kynnt sér hann sérstaklega er
hann þeirrar skoðunar að þeir sem
starfa vilja meðal þessa hóps eigi
hrós skilið.
Þessi hópur, sem oftast á sér
formælendur fáa, þarf ákveðna
umönnun og í Byrginu hefur hún
verið veitt undir stjórn manns sem
nefndur er Mummi í Mótorsmiðj-
unni og fleiri.
Á dögunum varð að rýma Byrg-
ið þar sem húsnæðið þótti ekki
boðlegt vegna þess að brunavörn-
um var áfátt. Reksturinn hefur átt
undir högg að sækja fjárhagslega
og því verið erfitt að gera allt
þannig úr garði að reglur séu upp-
fylltar. Eflaust á þetta ákveðnar
skýringar eins og alltaf en Víkverji
er á því að hér þurfi einhver að-
stoð að koma til, opinber eða
einkaaðstoð. Byrgið og önnur slík
heimili eru því miður nauðsyn í
nútímaþjóðfélagi með öllum kost-
um þess og göllum og við hljótum
að þurfa að sinna slíkum málum.
xxx
EKKI er langt í að Eyrarsunds-
brúin verði opnuð en hún
tengir sem kunnugt er saman
Danmörku og Svíþjóð. Þetta risa-
mannvirki, sem Islendingar hafa
kannski helst séð þegar þeir eru
að fljúga um Kaupmannahafnar-
flugvöll, hlýtur að gjörbreyta sam-
göngu- og flutningamynstri um
svæðið og reyndar hafa áhrif langt
út fyrir nágrennið. Hefur Víkverji
jafnvel séð bent á að flutningar
með bílum muni aukast og þeir
sem flytja varning til suðurhluta
Evrópu frá norðursvæðum Noregs
og Svíþjóðar muni endurskipu-
leggja flutningakerfi sín.
Þessi framkvæmd er umdeild
eins og flest verk okkar, ekki síst
af því að þetta er svo umfangsmik-
ið mannvirki. Leiðir það hugann
að samgöngumannvirkjum á ís-
landi en þau eru nánast öll um-
deild. Við höfum sérstakt lag á að
deila og rökræða um þýðingu
gangbrauta, brúa yfir umferðar-
æðar, hraðamörk, jarðgöng, tvö-
falda eða einfalda þjóðvegi og þar
fram eftir götunum.
Víkverji er á því að við ættum
að hafa opin augu fyrir öllu sem
verða má til bóta í samgöngumál-
um. Fáist fé til verkefna þar eig-
um við að taka því fagnandi. Ekki
kannski mæla með hvaða fram-
kvæmd sem vera skal en þeim sem
verða til þess að auðvelda mönnum
ferðir um landið, hvort sem um er
að ræða fámennar byggðir eða
þéttbýli.
XXX
FARFUGLAR sem snúa aftur
til landsins eftir vetursetu úti
eru helsta teikn um vor- og sumar-
komu. Fjölmiðlar gæta þess líka
að upplýsa okkur vel og vandlega
um það hvenær ákveðnir fuglar,
helst lóa og kría, skila sér, hvar á
landinu þeir lenda fyrst og hvernig
þeir virðast hafa það.
Víkverja er til efs að slíkur
fréttaflutningur tíðkist hjá helstu
fjölmiðlum nágrannaríkjanna.
Sumarkoman er þeim kannski ekki
eins mikið atriði og okkur; við höf-
um beðið hennar með óþreyju
langan og rysjóttan vetur. Vonandi
verður ekkert lát á þessum frétt-
um fjölmiðla og þessu til viðbótar
má nefna að hér í blaðinu hafa iðu-
lega birst myndir og fréttir af
flækingum sem rekast hingað.
Fuglaskoðarar fylgjast grannt
með, taka myndir og segja frá
þessum sjaldséðu gestum og eru
þetta áreiðanlega mikið lesnar
fréttir.