Morgunblaðið - 03.05.2000, Blaðsíða 74
74 MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Ekki er sopið
kálið þó í aus-
una sé komið
Smáfólk
TMI5 15 HOU) UJE FINP
UJATER IN THE 6R0UNP..
U)E CALL IT "POW5ING"
5EETHE 5TICK? IT'S
M0VIN6! IT'S P0INTIN6.
RIGHTTO
UJ00P5T0CK1
PRINKIN6
FROM HI5
CANTEEN,
Svona förum við að því að
finna vatn í jörðu, það heitir
„spákvistur".
Sjáðu sprotann.
Hann hreyfist, hann bendir.
Beint á Bíbí að drekka
úr bnisanum sínum.
Frá Guðmundi Jóhannssyni:
SVO hljóðar gamalt máltæki sem
mér datt í hug þegar ég heyrði og sá
fréttir af afmælisveislu iðnaðarráð-
herra og síðustu fréttir af því fyrir-
bæri, að hún ætlaði sjálf að standa
straum af sínu eigin afmæli. Mér
varð hugsað til ummæla þessa sama
ráðherra (að vísu var hún bara þing-
maður þá) er hún fullyrti að aldraðir
og öryrkjar hefðu fengið sinn hluta
af góðærinu. Getur verið að hún hafí
talið sig hlunnfarna af góðærinu og
ætlað að leiðrétta hlut sinn með
þessum hætti? Annars er það íhug-
unarefni, þótt það sé í raun vonlaust,
að setja sig í þankagang ráðamanna
þjóðarinnar, sem misnota vald sitt
við að láta ríkið borga hluta af af-
mæli sínu. Þetta er að vísu fram-
hjáhlaup frá því sem ætlunin var
með þessum línum, en það var að
lýsa ánægju minni með að Félag
eldri borgara í Reykjavík stefnir að
því að sækja rétt félaga sinna á hinni
umdeildu skattlagningu lífeyris-
sjóðsgreiðslna til dómstóla fyrst al-
menn rök duga ekki á stjómvöld,
sem eru alveg skotheld fyrir öllum
rökum og réttiæti, samanber yfir-
lýsingar fjármálaráðherra í Morg-
unblaðinu 16. og 18. febrúar þar sem
hann reynir að telja lífeyrisþegum
trú um að núverandi kerfi sé það
besta sem þeir eiga völ á. Er ég las
þessar yfirlýsingar ráðherrans vor-
kenndi ég sjálfum mér fyrir hvað ég
væri tregur að skilja ekki rök. Eg vil
trúa því að dómstólar séu almennt
með þeim hætti að réttlætið sigri.
En að sjálfsögðu eru dómar þess eðl-
is að sjaldnast verða allir ánægðir
með niðurstöður þeirra. Er þar
skemmst að minnast „Stóra-dóms“
varðandi kvótamálin, þar varð marg-
ur maður fyrir vonbrigðum og ekki
hvað síst þeir sem hafa verið búnir
að gera sér vonir um tíu mánaða
veru á Kanaríeyjum samkv. spá for-
sætisráðherra, og að sjálfsögðu með
hann í farar-
broddi, ef dómur-
inn hefði gengið í
öndverða átt við
það sem varð.
Miðvikudaginn
15. mars gerði ég
mér ferð á þing-
palla til að hlusta á
utandagskrárum-
ræðu um kjaramál
aldraðra og ör-
yrkja. Fátt eitt
kom fram í þessum
umræðum, nema hvað ég fékk frek-
ari staðfestingu á afstöðu stjórn-
valda um að sitja við sinn keip og
leiðrétta ekki það sem umræddir
hópar hafa gegnum tíðina verið
hlunnfærðir um.
Mér fannst dálítið skondið að
heyra rök forsætisráðherra um
þessi mál sem ég hef raunar heyrt
nokkrum sinnum áður (keimur af
orðasennu götustráka) þar sem hon-
um er tamt að minna á kaupmáttar-
hrun þessara aðila, fyrir nokkrum
árum. Ég spyr; átti forsætisráð-
herra nokkurn þátt í þessari skerð-
ingu? Og hvers vegna var hún gerð?
Svo er hin hliðin á málinu, að það
hefur löngum þótt dyggð að greiða
skuld sína þegar efni standa til. í
seinni tíð hefur mikið verið gumað
af góðæri og velmegun og skal það
ekki dregið í efa, en henni hefur ver-
ið ansi misskipt meðal þegnanna og
með þetta góðæri í huga ætti að
vera metnaður stjómvalda að greiða
skuld sína við þessa láglaunahópa.
Varla þarf að ætla að ráðherrann
dragi dul á, samkvæmt sínum eigin
ræðum, að þessir hópar hafi verið
hýrudregnir. Það liggur hins vegar
ljóst fyrir að hér er um ógreidda
skuld að ræða. Ég sleppi hér öllum
prósentutölum, en þær liggja fyrir
þegar þurfa þykir.
GUÐMUNDUR JÓHANNSSON,
eftirlaunaþegi.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Uinalína ®. 1 Rauða krossins - Úkeypis símaþjónusta þegar þár er vandi á höndum - Ert þú 18 ára eða eldri og þarft að ræða við einhvern í trúnaði? ~~ Uinalínan sími 800 6464 frá kl. 20-23 öll kvöld
AUGLYSINGADEILD
V/D mbl.is
\usrAf= errrnvAo
Sími: 569 1111, Bréfsimi: 569 1110
Netfang: augl@mhl.is