Morgunblaðið - 03.05.2000, Blaðsíða 71
rir
’Sameinaði
lífeyrissjóSurinn
slmi 510 5000
iifeyrir.is
|
Þekkir þú rétt þinn?
LÍFEYRISSJÓÐURINN
#®Lífiðn
Séreignarsparnaður
Enn fleiri valkostir í séreignarsparnaði á árinu 2000
Á árinu 1999 var boðið upp á 5 Qárfestingaleiðir í séreignardeildum Sameinaða lífeyrissjóðsins
og Lífeyrissjóðsins Lífiðn. Tvær leiðir sem byggja að mestu á innlendum verðbréfum og þrjár
erlendar hlutabréfaleiðir. Erlendu hlutabréfaleiðirnar eru boðnar í samvinnu við Verðbréfastofuna,
löggilt verðbréfafyrirtæki, og bandaríska sjóðafyrirtækið Vanguard, sem er annað stærsta fyrir-
tækið á þessu sviði í Bandaríkjunum.
Á árinu 2000 ætlar Sameinaði lífeyrissjóðurinn og Lífeyrissjóðurinn Lífiðn að bjóða sjóðfélögum
sem leggja inn i séreignardeild upp á þrjár nýjar fjárfestingaleiðir þar sem fjárfest er í hlutabréfa-
sjóðum hjá bandaríska sjóðafyrirtækinu Janus. Um þessar mundir nýtur Janus mikillar velgengni
vestra og sem dæmi má nefna að rúmur helmingur allra greiðslna í verðbréfasjóði í Bandaríkjunum,
sem af er árinu 2000, runnu í sjóði fyrirtækisins. Fjárfestar hafa því mikla trú á fyrirtækinu enda
hafa sjóðir þess sýnt afburða góða ávöxtun.
Janus var stofnað árið 1969 og er staðsett í Denver, Colorado, í Bandaríkjunum. Fjöldi fjárfesta
í sjóðum Janus er 2 millj. og nema heildareignir fyrirtækisins 273 billj. dollara. Fjöldi starfsmanna
er um 2000.
Þrír nýir valkostir í séreignarsparnaði
Leið 6 - Twenty Fund Sjóðurinn leitast við að halda langtíma ávöxtun með fjárfestingum í 20-30 fyrir-
tækjum sem mynda einskonar kjarna. Flest fyrirtækin í sjóðnum eru tæknifyrirtæki eða rúm 70%.
Þannig eru stærstu eignir sjóðsins hlutir í tæknifyrirtækjum eins og Nokia, America Online Inc.
og Cisco Systems Inc. Sjóðurinn er uppbyggður á þann hátt að til skamms tima getur ávöxtun
sveiflast mikið, bæði upp og niður, en líta verður á sjóðinn sem langtima ijárfestingu.
Ávöxtunartölur sjóðsins hafa verið mjög góðar. Má þar nefna að árleg meðaltals ávöxtun sjóðsins
sl. 10 ár hefur verið 27.6% á ári en 43.1% sl. 5 ár. Ávöxtun ársins 1999 var 73.1%.
Leið 7 - Global Technology Fund Global Technology Fund er sérhæfður vaxtasjóður sem fjárfestir í
hlutabréfum fyrirtækja hvaðan að úr heiminum. Leitast er við að kaupa hluti í fyrirtækjum sem
eiga eftir að hagnast á þróun og framförum í tækniiðnaði, til að mynda hugbúnaði, síma-, fjar-
skipta- og tölvufyrirtækjum. Ávöxtun sjóðsins fyrir árið 1999 var afburða góð, eða 211.5%, og
er til vitnis um sterka stöðu hans.
Leið 8 - Global Life Science Fund Global Life Science Fund er sérhæfður vaxtasjóður sem fjárfestir
Líkt og Global Technology Fund í hlutabréfum fyrirtækja hvaðanæva að úr heiminum. Keypt er í
fyrirtækjum með dreifðum hætti, sem tilheyra Líftækniiðnaði. Má þar nefna sjúkrahús, rannsókna-
fyrirtæki, sjúkraheimiLi, fyrirtæki sem framLeiða hugbúnað fyrir heiLbrigðisstofnanir og mörg
önnur fyrirtæki. Ávöxtun sjóðsins árið 1999 var 61.0%.
ALLar framangreindar ávöxtunartöLur eru reiknaðar í BandaríkjadöLum. Rétt er að minna á að hægt
er að skipta um fjárfestingarLeið hvenær sem er á sparnaðartímanum án aukakostnaðar. Einnig
er unnt að nýta sér eina fjárfestingarLeið eða fLeiri og byggja þannig upp sitt eigið verðbréfasafn.
Frekari upplýsingar veita starfsfólk Sameinaða lífeyrissjóðsins og Lífeyrissjóðsins Lífiðn.
Sími: 568 1438
www.lifidn.is