Morgunblaðið - 03.05.2000, Síða 71

Morgunblaðið - 03.05.2000, Síða 71
rir ’Sameinaði lífeyrissjóSurinn slmi 510 5000 iifeyrir.is | Þekkir þú rétt þinn? LÍFEYRISSJÓÐURINN #®Lífiðn Séreignarsparnaður Enn fleiri valkostir í séreignarsparnaði á árinu 2000 Á árinu 1999 var boðið upp á 5 Qárfestingaleiðir í séreignardeildum Sameinaða lífeyrissjóðsins og Lífeyrissjóðsins Lífiðn. Tvær leiðir sem byggja að mestu á innlendum verðbréfum og þrjár erlendar hlutabréfaleiðir. Erlendu hlutabréfaleiðirnar eru boðnar í samvinnu við Verðbréfastofuna, löggilt verðbréfafyrirtæki, og bandaríska sjóðafyrirtækið Vanguard, sem er annað stærsta fyrir- tækið á þessu sviði í Bandaríkjunum. Á árinu 2000 ætlar Sameinaði lífeyrissjóðurinn og Lífeyrissjóðurinn Lífiðn að bjóða sjóðfélögum sem leggja inn i séreignardeild upp á þrjár nýjar fjárfestingaleiðir þar sem fjárfest er í hlutabréfa- sjóðum hjá bandaríska sjóðafyrirtækinu Janus. Um þessar mundir nýtur Janus mikillar velgengni vestra og sem dæmi má nefna að rúmur helmingur allra greiðslna í verðbréfasjóði í Bandaríkjunum, sem af er árinu 2000, runnu í sjóði fyrirtækisins. Fjárfestar hafa því mikla trú á fyrirtækinu enda hafa sjóðir þess sýnt afburða góða ávöxtun. Janus var stofnað árið 1969 og er staðsett í Denver, Colorado, í Bandaríkjunum. Fjöldi fjárfesta í sjóðum Janus er 2 millj. og nema heildareignir fyrirtækisins 273 billj. dollara. Fjöldi starfsmanna er um 2000. Þrír nýir valkostir í séreignarsparnaði Leið 6 - Twenty Fund Sjóðurinn leitast við að halda langtíma ávöxtun með fjárfestingum í 20-30 fyrir- tækjum sem mynda einskonar kjarna. Flest fyrirtækin í sjóðnum eru tæknifyrirtæki eða rúm 70%. Þannig eru stærstu eignir sjóðsins hlutir í tæknifyrirtækjum eins og Nokia, America Online Inc. og Cisco Systems Inc. Sjóðurinn er uppbyggður á þann hátt að til skamms tima getur ávöxtun sveiflast mikið, bæði upp og niður, en líta verður á sjóðinn sem langtima ijárfestingu. Ávöxtunartölur sjóðsins hafa verið mjög góðar. Má þar nefna að árleg meðaltals ávöxtun sjóðsins sl. 10 ár hefur verið 27.6% á ári en 43.1% sl. 5 ár. Ávöxtun ársins 1999 var 73.1%. Leið 7 - Global Technology Fund Global Technology Fund er sérhæfður vaxtasjóður sem fjárfestir í hlutabréfum fyrirtækja hvaðan að úr heiminum. Leitast er við að kaupa hluti í fyrirtækjum sem eiga eftir að hagnast á þróun og framförum í tækniiðnaði, til að mynda hugbúnaði, síma-, fjar- skipta- og tölvufyrirtækjum. Ávöxtun sjóðsins fyrir árið 1999 var afburða góð, eða 211.5%, og er til vitnis um sterka stöðu hans. Leið 8 - Global Life Science Fund Global Life Science Fund er sérhæfður vaxtasjóður sem fjárfestir Líkt og Global Technology Fund í hlutabréfum fyrirtækja hvaðanæva að úr heiminum. Keypt er í fyrirtækjum með dreifðum hætti, sem tilheyra Líftækniiðnaði. Má þar nefna sjúkrahús, rannsókna- fyrirtæki, sjúkraheimiLi, fyrirtæki sem framLeiða hugbúnað fyrir heiLbrigðisstofnanir og mörg önnur fyrirtæki. Ávöxtun sjóðsins árið 1999 var 61.0%. ALLar framangreindar ávöxtunartöLur eru reiknaðar í BandaríkjadöLum. Rétt er að minna á að hægt er að skipta um fjárfestingarLeið hvenær sem er á sparnaðartímanum án aukakostnaðar. Einnig er unnt að nýta sér eina fjárfestingarLeið eða fLeiri og byggja þannig upp sitt eigið verðbréfasafn. Frekari upplýsingar veita starfsfólk Sameinaða lífeyrissjóðsins og Lífeyrissjóðsins Lífiðn. Sími: 568 1438 www.lifidn.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.