Morgunblaðið - 03.05.2000, Blaðsíða 66
66 MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
BANS
ur-amerískum dönsum. Fyrst voi-u
það Sigursteinn Stefánsson og Elísa-
bet Sif Haraldsdóttii- árið 1996 og
svo Benedikt Einarsson og Berglind
Ingvarsdóttir ári seinna. Eins hafa
Islendingar nokkuð oft hampað 1.
verðlaunum í eins og tveggja dansa-
keppnum. Má þar nefna pör eins og
Brynjar Örn Þorleifsson og Sesselju
Sigurðardóttur, sem unnu samba-
keppnina og jive-keppnina árið 1996.
Arið 1999 unnu svo Gunnar Hrafn
Gunnarsson og Sigrún Ýr Magnús-
dóttir jive keppnina í flokki 12-15
ára.
I flokki 11 ára og yngri hafa Is-
lendingar margoft sigrað, fyrst
Brynjar Örn og Sesselja sem sigr-
uðu í jive árið 1992, þá Haraldur Ant-
on Skúlason og Sigrún Ýr Magnús-
dóttir, aftur í jive árið 1995. Sama ár
sigruðu Gunnar Hrafn Gunnarsson
og Ragnheiður Erla Eiríksdóttir í
cha,cha,cha. Áiið 1996 sigruðu Davíð
Gill Jónsson og Halldóra Sif Hall-
dórsdóttir einnig í cha,cha,cha og
jive-keppninni, ásamt því að vinna
báðar „stóru“ keppnimar.
í cha, cha, cha og rúmbu-keppni í
aldursflokknum 12-13 ára hafa ís-
lendingar tvisvar átt sigurvegara,
árið 1994, þau Sigurstein og Elísa-
betu, og árið 1995 þau Benedikt og
Berglindi, sem bæði eru hér nefnd að
ofan. Við þetta má svo bæta að fjöl-
mörg íslenzk pör hafa komist í úrslit
í keppnunum í Blackpool, þó svo þau
hafi ekki komist í fyrsta sæti, en það
að komast í úrslit í Blackpool er svo
sannarlega glæsilegur árangur.
Hér á eftir verður hver dagur fyrir
sig tekinn fyrir og sagt frá því sem
gerðist markverðast þann daginn.
Mánudagur
Eins og venja er hófst keppnin á
öðrum degi páska og keppti yngri
flokkurinn þar í jive, en í þessum ald-
ursflokki eru pör sem eru 11 ára og
yngri. Af þeim 70 pörum sem skráð
voru til leiks voru 9 íslenzk og kom-
ust þau öll áfram í aðra umferð. í 24
para undanúrslit komust Baldur
Kári Eyjólfsson og Ema Halldórs-
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
íslcnsku keppendurnir á danshátíðinni í Blackpool á Englandi. Friðrik Árnason, Sandra Júlia Bernburg, Davíð Már Steinarsson, Sunneva Sirrý Ólafs-
dóttir, Agnar Sigurðsson, Elín Dröfn Einarsdóttir, Thelma Arngrímsdóttir, Jóhanna Berta Bernburg, Grétar Ali Kahn, Halldóra Sif Halldórsdóttir,
Davíð Gill Jónsson, Sandra Espersen, Sigurður Ragnar Arnarsson , Bryndís María Bjömsdóttir, Ásgrímur Logason. Fremri röð: Ásgeir Erlcndsson,
Hanna María Óskarsdóttir,Björn Einar Björnsson, Herdís Helga Arnalds, Jakob þór Grétarsson, Anna Björg Guðjónsdóttir, Ingólf Davíð Petersen,
Laufey Karlsdóttir, Nadine Guðrún Hannesdóttir, Þorsteinn Sigurðsson, Ema Halldórsdóttir, Baldur Kári Eyjólfsson, María Carrasco, Stefán Claesen,
Ásta Bjarnadóttir, Þorleifur Einarsson, Ásta Björg Magnúsdóttir og Björn Ingi Pálsson. Á myndina vantar Þorlák Þór Guðmundsson.
Islenzkir dansarar gerðu
það gott í Blackpool
Jóhanna Berta Bernburg og
Grétar Ali Khan.
dóttir og Þorleifur Einarsson og
Ásta Bjarnadóttir. Þau síðarnefndu
fóru svo alla leið í úrslitin og gerðu
sér lítið fyrir og unnu til fyrstu verð-
launa, með fjömgum og léttum
dansi, en þau áttu svo sannarlega
eftir að láta að sér kveða á næstu
dögum.
I flokki 12-15 ára var einnig keppt
í einum dansi þennan fyrsta keppnis-
dag og var það vínarvals. Til leiks
vom skráð 146 pör frá öllum heims-
hornum, þar af 9 frá íslandi, en 2
þeirra drógu sig til baka. Öll íslenzku
pörin komust áfram í 2. umferð, en
þar við sat, nema hjá Grétari Ali
Khan og Jóhönnu Bertu Bernburg,
sem komust í þriðju umferð og
áfram í 24 para úrslitin. Þau dönsuðu
vínarvalsinn ákaflega vel og fallega
og hefði ekki verið ósanngjarnt að
þau hefðu komist lengra.
Þriðjudagnr
Þriðjudagurinn var fyrsti stóri
keppnisdagurinn, en þennan dag
keppti yngri hópurinn í sígildum
samkvæmisdönsum. Af þeim 66 pör-
um sem skráð vora til leiks, vom 9
frá íslandi. Keppnin var mjög hörð
og einstaklega vel dönsuð og komust
7 íslenzk pör áfram í 2. umferð. í
þriðju umferð, sem jafnframt vom
24 para undanúrslit, fóm Baldur
Kári Eyjólfsson og Erna Halldórs-
dóttir, Björn Ingi Pálsson og Ásta
Björg Magnúsdóttir og Þorleifur
Einarsson og Ásta Bjarnadóttir. Að
þessu sinni komust íslenzku pörin
ekki lengra, þrátt fyrir góðan dans
og mikla útgeislun. Sigurvegaramir
komu frá Rússlandi, þau Nikita
Brovko og Anastasia Krechetova og
annað rússneskt par fylgdi fast á
hæla þeim. Flokkur 12-13 keppti í
cha, cha, cha og rúmbu, á þriðjudeg-
inum og vora hátt í 70 pör skráð til
leiks, þar af 4 frá íslandi og fóm þau
öll í 2.umferð. Þau Sigurður Ragnar
Björn Ingi Pálsson og Ásta
Björg Magnúsdóttir.
Arnarsson og Sandra Espersen
komust í 24 para undanúrslit, en þar
við sat. Sigurvegarar í þessum flokki
vom frá Italíu, þau Raimondo Tod-
aro og Jenny Buonfiglio. Að mínu
mati bára þau af í þessum flokki og
rúmban þeirra er ein sú glæsilegasta
sem undirritaður hefur séð hjá pari í
þessum aldursflokki.
Flokkur 12-15 ára keppti í sömbu
og vom 174 pör skráð í keppnina, þar
af 8 frá Islandi. Fimm þeirra fóm
áfram í 2. umferð, en aðeins eitt
þeirra fór í þá þriðju. Sigurvegarar í
þessum flokki vom frá Rússlandi,
þau Evgenii Smagin og Anna Ginko.
Af þeim 7 pöram sem vora í úrslitum
vom 3 frá Rússlandi, 2 frá Ástralíu, 1
frá Ítalíu og 1 frá Englandi. Rússar
sýndu það og sönnuðu að þeir eiga
gífurlegan fjölda af sterkum keppn-
ispöram, pöram sem era mörg hver
á heimsmælikvarða.
I eldri flokknum var einnig boðið
upp á liðakeppni, sem samanstóð af
liðum frá 6 löndum, en hvert lið sam-
anstóð af 4 pörum. Islenzka liðið var
skipað þeim Sigurði Ragnari Arn-
arssyni og Söndra Espersen, Grétari
Ali Khan og Jóhönnu Bertu Bern-
burg sem dönsuðu sígilda sam-
kvæmisdansa og Davíð Gill Jónssyni
og Halldóru Sif Halldórsdóttur og
Davíð Má Steinarssyni og Sunnevu
Sirrý Ólafsdóttur sem dönsuðu suð-
ur-amerísku dansana. Það er
skemmst frá því að segja að Breta
unnu þessa keppni nokkuð öragg-
lega og lið Slóveníu varð í öðra sæti.
Miðvikudagur
Yngri hópurinn keppti í Paso
Doble á þriðja degi keppninnar og
vora 67 pör skráð til leiks og enn og
aftur vora íslenzku pörin 9 mætt á
dansgólfið og fóra þau öll inn í 2. um-
ferð. Fjögur þeirra komust í 25 para
undanúrslit. Það vora: Björn Ingi
Pálsson og Ásta Björg Magnúsdótt-
Sigurður Ragnar Arnarsson og
Sandra Espersen.
ir, Björn Einar Björnsson og Herdís
Helga Ai-nalds, Baldur Kári Eyjólfs-
son og Erna Halldórsdóttir og Þor-
leifur Einarsson ogÁsta Bjarnadótt-
ir. Þau síðastnefndu héldu svo áfram
í 13 para undanúrslit svo enn áfram í
úrslit, þar sem þau höfnuðu í 3.sæti,
á eftir rússnesku pöranum tveimur,
sem sigruðu í samkvæmisdönsunum
á þriðjudeginum.
Flokkur 12-15 ára keppti í
„stóra“-samkvæmisdansakeppninni,
sem var með sterkara móti, að þessu
sinni. Skráð pör í keppnina vora 160,
þar af 7 pör frá íslandi. Fjögur
þeirra fóra áfram í 2. umferð og eitt
fór í 52 para undanúrslit, sem getur
talist mjög gott, þegar horft er á
hversu sterk þessi keppni er. Sigur-
vegararnir komu frá Englandi, þau
Mark Elsbury og Kerry Anne Don-
aldson. Það er ekki laust við að
mönnum hafi þótt þessi dómur nokk-
uð pólitískur, ekki svo að skilja að
enska parið dansi ekki vel, heldur
vora þarna pör sem að margra mati
dönsuðu miklu betur. Það er kannski
rétt a geta þess hér að dómarar
keppninnar era 9 ENGLENDING-
AR!
Fimmtudagur
Flokkur 11 ára og yngri keppti
einungis í einum dansi, vínarvalsi og
gekk það nokkuð vel. Áf þeim 66 pör-
um sem skráð höfðu verið til leiks
vora 9 frá íslandi. Komust 8 þeirra
áfram í 2. umferð og í 24 para undan-
úrslit komust Björn Einar Bjöms-
son og Herdís Helga Arnalds, Bjöm
Ingi Pálsson ogÁsta Björg Magnús-
dóttir og Þorleifur Einarsson og
Ásta Bjarnadóttir, sem komust alla
leið í úrslit og unnu til 4. verðlauna.
Sigurvegaramir komu hinsvegar frá
Úkraínu og heita Artem Matiash og
Maria Makhankova. í þessum flokki
var einnig boðið upp á liðakeppni,
eins og hjá eldri hópnum. íslenzka
GLÆSILEG SÉRVERSLUN MEÐ ALLT I BAÐHERBERGIÐ
BAÐSTOFAN
B/EJARLIND 14, SÍMI S64 57 OO
________________
I) a n s h á l í ð b a r n a
o g ii n g I i n g a í
B I a c k p o o I
JIANSHÁTÍÐ bama og unglinga, 15
ára og yngri, í Blackpool hefur löng-
um verið ein sterkasta og virtasta
danskeppni, sem haldin er fyrir
þennan aldurshóp. Til Blackpool
fara allir þeir beztu, sumir segja
jafnvel að erfiðara sé að vinna Black-
poolkeppni en heimsmeistaramót,
hvað sem til er í því. En engu að síð-
ur er þessi keppni mikil veizla fyrir
dansara og dansunnendur.
Keppnina í unglingaflokknum má
rekja allt aftur til ársins 1958 og hef-
ur hún verið haldin á hverju ári síð-
an. Margir af virtustu danskennur-
>um og dönsurum heims hafa sigrað í
þessari keppni og má þar fremsta
nefna John Lewis, Peter Maxwell,
Mareus Hilton, Kim og Cecilie Rygel
og svo mætti lengi telja. Keppni í
yngri flokkunum hófst hinsvegar
ekki fyrr en árið 1989.
Islendingar hafa fjölmennt á
keppnina hin síðari ár, svo mjög að
menn hafa tekið á leigu þotu og flog-
ið beint til Blackpool. Hefð hefur
skapast fyrir því að flogið er út á
laugardeginum fyrir páskadag og
aftur heim aðfaranótt mánudagsins
8 dögum síðar. Keppnisdagarnir era
6, en þeir era misjafnlega atburða-
ríkii- hveram sig. Suma dagana era
einsdans-keppnir, suma daga eru 2ja
..dansa keppnir, liðakeppnir o.s.frv.
en hvor aldursflokkur um sig keppir
tvisvar í því sem kallað hefur verið
„stórar keppnir“, þ.e. annarsvegar í
öllum suður-amerísku dönsunum og
hinsvegar í öllum sígildu samkvæm-
isdönsunum.
íslendingar oft átt sigurvegara
íslendingar hafa átt sigurvegara í
báðum aldursflokkum keppninnar
oftar en einu sinni. Benedikt Einars-
son og Berglind Ingvarsdóttir vora
fyrst Islendinga til þess að hampa 1.
•'verðlaunum í „stóra suður-amer-
ísku“ dansakeppninni í aldursflokkn-
um 11 ára og yngri og var það árið
1993. Fjóram áram síðar sigraðu
Davíð Gill Jónsson og Halldóra Sif
Halldórsdóttir, bæði í suður-amer-
ísku dönsunum og hinum sígildu og
eru þau jafnframt eina íslenzka parið
sem hefur sigrað í keppni í sígildum
samkvæmisdönsum í Blackpool. I
flokknum 12-15 ára hafa Islendingar
tvisvar hampað 1. verðlaunum í suð-
Miklu sterkara fyrir liða-
mótin og líka miklu ódýrara
APÓTEKIN