Morgunblaðið - 03.05.2000, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2000 31
Reuters
Munaðarleysingjar í Jóhannesarborg í Suður-Afríku er greinst hafa
með HlV-veirusmit en veiran er talin valda alnæmi.
Alnæmi ógnar
þjóðaröryggi
Bandaríkj anna
EMBÆTTISMENN stjómar Bilis
Clintons Bandaríkjaforseta álíta að
útbreiðsla alnæmis sé að verða að
hamförum sem ógni öryggi þjóðar-
innar vegna upplausnar sem sjúk-
dómurinn veldur í þriðja heiminum,
að sögn The Washington Post. Hag-
fræðingurinn Jeffrey Sachs fagnaði
því að stjómvöld í Bandaríkjunum
væm farin að gera sér grein fyrir al-
vöm vandans en AFP-fréttastofan
hafði eftir honum að hraða þyrfti að-
gerðum við að gefa fátækum ríkjum
eftir skuldir. Þá myndu þau fremur
hafa efni á að grípa til aðgerða er
hefta myndu útbreiðslu alnæmis.
Talið er að um 34 milljónir manna í
heiminum séu nú með alnæmi, lang-
flestir í þróunarlöndunum. I Afríku
era sýktir um 23 milljónir.
Þjóðaröryggisráð Bandaríkjanna,
sem aldrei fyrr hefur fjallað um bar-
áttu gegn smitandi sjúkdómum, er
nú að láta endurskoða stefnuna
gagnvart alnæmi. Er meðal annars
ætlunin að tvöfalda fjárhæðina sem
Bandaríkjamenn hugðust nota til að
berjast gegn útbreiðslu sjúkdómsins
í öðmm löndum og stofnaður hefur
verið sérstakur vinnuhópur með fuil-
trúum margra stofnana.
Bandarískir Ieyniþjónustumenn
gerðu í janúar skýrslu þar sem reynt
var að sjá fyrir pólitískar og félags-
legar afleiðingar sem alnæmisfar-
aldurinn gæti haft í ýmsum erlendum
ríkjum, einkum í Afríku. Eining var
um það meðal sérfræðinga stjóm-
valda að hætta væri á að fjórðungur
íbúa suðurhluta Afríku létist úr al-
næmi og dánartíðnin myndi aukast
enn á næstu ámm. Ef marka mætti
vísbendingar myndi sams konar ferli
geta hafist í Suður-Asíu og ríkjum
Sovétríkjanna gömlu.
Herskari munaðar-
leysingja
„Sum af ríkjunum þar sem ástand-
ið er verst gætu staðið andspænis
lýðfræðilegum hamfömm, fyrst í
löndunum sunnan við Sahara og síð-
ar í öðmm hlutum álfunnar," segir í
skýrslunni. „Þetta mun valda því að
hinir fátæku og oft einnig millistéttin
verða enn fátækari og afleiðingin
verður herskari blásnauðra mun-
haðarleysingja sem ekki geta bjarg-
að sér og auðvelt verður að misnota
og gera að róttæklingum.“
Skyndilegur samdráttur í ævilík-
um er helsti áhættuþátturinn er vald-
ið getur „byltingarstríðum, styrjöld-
um milli þjóðarbrota, þjóðarmorði og
upplausn vegna falls gamalla vald-
hafa og valdatöku nýrra“ í þróunar-
löndunum, segir í skýrslunni. Gerð er
söguleg samanburðarrannsókn á alls
75 þáttum sem hafi tilhneigingu til að
grafa undan stöðugleika ríkisstjórna
og segja skýrsluhöfundar að alnæmi
virðist „tengjast sérstaklega líkunum
á því að ríkisvaldið hrynji í ríkjum
sem era að nokkm leyti lýðræðisleg".
Bandarískir stjómmálamenn úr
röðum blökkumanna, þar á meðal
fulltrúadeildarþingmaðurinn Jesse
L. Jackson frá Illinois, hafa lagt sig
fram um að vekja athygli á alnæmis-
vandanum í Afríku. Hafa þeir tekið
höndum saman við ýmsa sem berjast
gegn útbreiðslu sjúkdómsins í
Bandaríkjunum og Evrópu og krefj-
ast þess að verð á dýmm lyfjum sem
notuð hafa veruið til að hafa hemil á
alnæmi verði lækkað. Lyfin era allt
of dýr til þess að þeim verði beitt að
nokkru ráði í þróunarríkjunum.
Kofi Annan, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, hefur sett sam-
tökunum það markmið að dregið
verði úr tíðni alnæmis um 25% á
næstu fimm ámm en ljóst þykir að
eigi það að nást verður að veita mun
meira fé til verkefnisins. Er til dæmis
talið að það myndi kosta nær tvo
milljarða dollara að koma á viðunandi
forvörnum í Afríku og annað eins að
lækna þá sem em þegar sjúkir.
„Hrikalegast af öllu og það er fólk
fyrst núna að byrja að skilja er að
vandinn í Afríku er aðeins tindurinn
á ísjakanum," segir Sandra Thurman
sem stjómar stjórnarskrifstofu í
Washington er mótar stefnuna gagn-
vart alnæmi.
Handboitinn á Netinu
.wmbl.is
ALLTAF EITTHVAO NYTJ
Það eina sem þú þarft að gera er að hringja í
síma 800 6090 og þú fœrð frídós af Felix
fyrir köftinn þinn.
Felix er vinsœlasti kattamatur f Evrópu.
Við bjóðum upp ó 7 girnilegartegundir
af nœringarríkum, grófskornum
kjöt- eða fiskbitum f hlaupi með
öllum þeim bœtiefnum sem
kötturinn þinn þarf ó að halda.
Felix kattamaturinn inniheldur
hvorki kornmeti né sojaprótein.
Síminn er 800 6090
9llE3ElESXl!l
0WARBARKAUP S?4kR ijy>ínvfnlun
JÍttUUÚÍuiim