Morgunblaðið - 03.05.2000, Blaðsíða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2000
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
SÝNINGARSKRÁ
í tengslum við vöru- og þjónustusýninguna í íþróttahöllinni á Akureyri dagana 12.-14. maí nk. gefur
Morgunblaðið út sérstaka sýningarskrá. Skránni verður dreift til allra áskrifenda Morgunblaðsins frá
Hvammstanga og austur á Egilsstaði. Þá verður Morgunblaðinu ásamt sýningarskránni dreift inn á
öll heimili á Akureyri föstudaginn 12. maí nk.
Sérblað Morgunblaðsins Daglegt líf verður þennan dag helgað fjölbreyttu mannlífi á Akureyri með
margvíslegum viðtölum og greinum.
DREIFT Á SÝNINGUNNI
Skránni verður einnig dreift á sýningarsvæðinu en gert er ráð fyrir 8.000-10.000 gestir komi á sýninguna.
HAPPU SAMBAND!
Allar nánari upplýsingar veita sölu- og þjónustufulltrúar auglýsingadeildar Morgunblaðsins í síma 569 1111.
Einnig verða sölufulltrúar á skrifstofu Morgunblaðsins á Akureyri í Kaupvangsstræti
1 dagana 2.-3. maí nk. í síma 461 1600.
Skilafrestur auglýsingapantana er til kl. I^Urmj^tudaginn 4. maí.
JltorgitmMfjMfr
AUGLÝSINGADEILP
Sími 569 1111 • Bréfasími 569 1110 • Netfang: augl@mbl.is
...fyrir þá sem
í sér heyra
í H Jj A J!K V ''
« 8 « fl K i
Morgunblaðið/Helgi Vilberg/Menningarvefur Akureyrar
Pétur Þór Jónasson, Jónas Sigurjónsson, Hallfríður Einarsdóttir, Birgir
Helgason, Freyja Magnúsdóttir, Sigurður Arni Sigurðsson, Einar
Helgason, Logi Már Einarsson, Fanney Hauksdóttir og Daníel Þor-
steinsson að lokinni athöfn þar sem tilkynnt var um starfslaun lista-
manna Akureyrarbæjar, veittar viðurkenningar fyrir menningarmál,
hönnun nýbygginga og viðhald eldri húsa.
Tilkynnt um
val á bæjar-
listamönnum
Akureyrar
TVEIR listamenn deila með sér
starfslaunum listamanna Akureyr-
bæjar að þessu sinni, þeir Daníel
Þorsteinsson píanóleikari og Sigurð-
ur Arni Sigurðsson myndlistarmað-
ur.
Daníel er fæddur á Neskaupstað
árið 1963. Hann var við píanónám í
fæðingarbæ sínum frá 8 ára aldri og
síðar í Reykjavík en hann útskrifað-
ist árið 1993 frá Tónlistarskóla Sig-
ursveins D. Kristinssonar. Hann var
við framhaldsnám í Reykjavík og í
Amsterdam þaðan sem hann lauk
prófi í píanóleik og kennslufræði.
Haustið 1993 hóf hann kennslu í
píanóleik við Tónlistarskólann á Ak-
ureyri og hefur gengt því starfi síð-
an.
Daníel hefur mikið látið að sér
kveða á tónlistarsviðinu, m.a. leikið
með Caput tónlistarhópnum og Sin-
fóníuhljómsveit Norðurlands, þá
hefur hann ásamt Sigurði Halldórs-
syni sellóleikara haldið tónleika víða
um land og eins hefur hann leikið
með Björgu Þórhallsdóttur söng-
konu, en þau eru nú að undirbúa út-
komu geisladisks þar sem fluttir
verða söngvar eyfirskra tónskálda
við ljóð eyfirskra ljóðskálda.
Sigurður Árni er fæddur á Akur-
eyri árið 1963, hann nam við Mynd-
listarskólann á Akureyri, Myndlista-
og handíðaskóla Islands og var við
framhaldsnám í Frakklandi. Hann
Tónleikar
Kórs MA
KÓR Menntaskólans á Akur-
eyri heldur tónleika í Akureyr-
arkirkju í kvöld, miðvikudags-
kvöldið 3. maí, og hefjast þeir
kl. 20.30. Stjórnandi kórsins er
Guðmundur Óli Gunnarsson.
Gestakór á þessum tónleikum
er Kór Fjölbrautaskólans á
Sauðárkróki, en stjómandi
hans er Hilmar Sverrisson.
Efnisskráin er fjölbreytt,
m.a. íslensk þjóðlög og enskir
madrigalar. Miðaverð á tón-
leikana er 1000 krónur, en 500
krónur fyrir 13 til 20 ára,
ókeypis er á tónleikana fyrir 12
ára og yngri.
hefur haldið fjölda einkasýninga og
tekið þátt í samsýningum víða um
heim og verk eftir hann eru til á
listasöfnum, m.a. á íslandi, Frakk-
landi og Sviss. Sigurður Árni hlaut
fyrstu verðlaun fyrir verk sitt, Sól-
öldu, sem sett verður upp og vígt við
Sultartangavirkjun í ár og þá var
verk eftir hann valið sem merki
Reykjavíkur, menningarborgar
Evrópu árið 2000. Á síðasta ári var
Sigurður Árni fulltrúi íslands á al-
þjóðlegu listsýningunni, Feneyja-
tvíæringnum í Feneyjum.
í hófi, svonefndri Vorkomu þar
sem tilkynnt var um starfslaunin,
hlutu þeir Birgir Helgason tónlistar-
maður og Einar Helgason mynd-
listarmaður viðurkenningar menn-
ingarmálanefndar fyrir kennslustörf
og störf í þágu menningarmála.
Kenndu myndlist og
tónlist í um 40 ár
Birgir starfaði óslitið við Bama-
skóla Akureyrar, síðar Brekkuskóla,
frá árinu 1939 til ársins 1998 eða í 39
ár, en hann kenndi söng og hljóð-
færaleik við skólann. Hann stýrði
barnakór skólans sem kom fram við
hin ýmsu tækifæri. Þá starfaði hann
sem organisti við sunnudagaskóla
Akureyrarkirkju í 25 ár og hefur frá
árinu 1966 verið organisti við Glæsi-
bæjarkirkju og í fleiri kirkjum í ná-
grenni Akureyrar. Hann hefur sam-
ið mörg lög og hafa komið út eftir
hann 4 sönglagahefti. Auk þess
samdi hann tónlist við söngleiki hjá
Leikfélagi Akureyrar.
Einar kenndi myndmennt og
íþróttir við grunnskóla Akureyrar í
40 ár, lengst af kenndi hann myndlist
við Gagnfræðaskólann á Akureyri og
þá var hann við kennslu í Náms-
flokkum Akureyrar til fjölda ára.
Hann tók teiknikennarapróf árið
1952 og íþróttakennarapróf 1953.
Fyrstu einkasýninguna hélt hann á
Hótel Varðborg á sjötta áratugnum,
en hefur síðan efnt til fjölda sýninga
á verkum sínum, m.a. á Akureyri,
Eskifirði, Hrísey og Grenivík. Einn-
ig hefur hann tekið þátt í samsýning-
um.
Þeir sem hlutu viðurkenningu
menningarmálanefndar Akureyrar-
bæjar að þessu sinni fengu gripi sem
hannaðir voru og smíðaðir af Krist-
ínu Petru Guðmundsdóttur, gullsmið
á Akureyri.