Morgunblaðið - 03.05.2000, Blaðsíða 75
morgunblaðið
MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2000 75
BREF TIL BLAÐSINS
Flug Gullfaxa -
var ekki skip-
stjóri á Gullfossi
Frá Jóhannesi R. Snorrasyni:
VINUR minn Arngrímur Jóhanns-
son flugstjóri, stofnandi og stjórnar-
formaður flugfélagsins Atlanta,
flaug nýlega risaþotu félagsins til
Suður-Afríku, í einum áfanga. í
Morgunblaðinu hinn 18. þ.m. segir
frá þessu lengsta beina flugi með
farþega frá íslandi. Ai-ngrímur get-
ur þess í viðtali við blaðamanninn,
að þessi sama leið hafi einu sinni áð-
ur verið flogin frá íslandi, þ.e.
snemma á sjöunda áratugnum og að
ég hafi verið við stjórnvöllinn á Gull-
fossi í þeirri ferð.
An efa hefur þetta skolast til í
handriti blaðamannsins þar sem sú
ferð var farin snemma á sjötta ára-
tugnum og ekki var ég skipstjóri á
flaggskipi Eimskipafélags íslands,
Gullfossi, sem tæplega hefði komist
þessa löngu leið á 4-5 sólarhringum:
Umrædd ferð til Suður-Afríku var
farin snemma í aprílmánuði árið
1958 og var það fyrsta ferð íslenskr-
ar flugvélar suður yfir miðbaug.
Þessi ferð tók fimm daga, en
tveggja daga töf varð í Kaupmanna-
höfn, þar sem áhöfnin var bólusett
gegn gulu, en það bóluefni var þá
ekki til hér.
Við komumst því til Jóhannesar-
borgar á fjórða degi frá Kaup-
mannahöfn. Flugvélin var Gullfaxi,
Skymasterflugvél Flugfélags ís-
lands, sem kom til landsins sumarið
1948 og var um árabil farsæll far-
kostur. Ekki var Gullfaxi þó fyrsta
millilandaflugvél Flugfélagsins, það
yar Gamli Pétur, Catalinaflugbátur-
inn, sem var fyrsta millilandaflugvél
Islendinga og fór 3 ferðir með far-
þega til Bretlands og Danmerkur
sumarið 1945. Flugbáturinn gat
flutt 20 farþega og flogið án við-
komu milli Evrópulanda og Islands.
Þá var almennt farþegaflug enn
ekki hafið í Evrópu, sem var að
miklu leyti enn í rústum eftir lok
ófriðarins.
Snemma árs 1958 var Gullfaxi
seldur Afric-Air, gullnámafélagi í
Jóhannesarborg, sem var voldugt
fyrirtæki og hafði margar Douglas
Dakota flugvélar í þjónustu sinni.
Gullfaxi var fyrsta fjögurra hreyfla
fiugvélin, sem félagið eignaðist og
því kom það í hlut okkar Asgeirs
Magnússonar flugvélstjóra að þjálfa
fyrstu tvær áhafnir félagsins á
Skymasterflugvél. Alls vorum við
fjórir í áhöfn Gullfaxa, en Aðalbjörn
Kristbjarnarson aðstoðarflugmaður
og Rafn Sigurvinsson loftskeyta- og
siglingafræðingur, sem báðir eru nú
látnir, fóru fljótlega aftur heim til
Islands.
Við Ásgeir dvöldum hjá Afric-Air
í tvær vikur við flugæfingar.
Til gamans ætla ég að greina hér
frá ferð okkar suður eftir endilangri
Afríku fyrir 42 árum. Hinn 28. mars
flugum við til Kaupmannahafnar og
vorum á flugi 7 klst. Hinn 30. mars
flugum við til Tripoli í Lýbíu og vor-
um 7 klst. og 30 mínútur. Hinn 1.
*BRÚÐARGJAFIR
*k SÖFNUNARSTELL
*GJAFAKORT
apríl flugum við í einum áfanga til
Livingstone í Rhódesíu, við hina
fögru Viktoríufossa og vorum 11
klst. og 55 mínútur á lofti. Hinn 3.
apríl lukum við ferðinni og flugum
til Rand Airport í nágrenni Jóhann-
esarborgar. Sú ferð varði aðeins 3
klst. og 15 mínútur. Þessi ferð var
farin á þeim tímum þegar tækni til
leiðsögu og fjarskipta yfir Afríku,
var á frumstæðu stigi. Við nutum
þess að okkur var leyft að fljúga
suður yfir gresjur Rhódesíu og víð-
ar, niður undir trjátoppum og hjörð-
um villtra dýra.
Alls tók ferð okkar á gamla Gull-
faxa 41 klukkustund á flugi. Ný
geystist Arngrímur á risaþotu sinni,
með nálega 500 manns innanborðs,
á rúmum tólf klukkustundum þessa
sömu leið. Við siluðumst áfram og
virtum fyrir okkur hjarðir hinna
ýmsu dýra á gresjunum, bústaði
frumbyggjanna og þurftum einu
sinni að þíða meðan fílar gengu í
halarófu yfir brautina sem við áttum
að lenda á.
Ég óska Arngrími og Þóru konu
hans til hamingju með glæsta far-
kosti og óska þeim öllum velfarnað-
ar á flugi yfir lönd og höf.
JÓHANNES R. SNORRASON,
flugskírteini nr. 5.
FRETTIR
Rætt um málefni
hæfileikaríkra barna
JOAN Freeman, enskur prófessor
í uppeldissálarfræði, flytur fyrir-
lestur á vegum Rannsóknastofnun-
ar Kennaraháskóla Islands
fimmtudaginn 4. maí. Fyrirlestur-
inn verður í stofu M-201 í aðal-
byggingu Kennaraháskólans við
Stakkahlíð, hefst klukkan 16.15 og
er öllum opinn.
Kenningar Joans Freemans,
„Freeman’s Sports Approach"
hafa víða vakið athygli en sam-
kvæmt þeirri kenningu gildir sama
lögmálið um afburðaframmistöðu í
námi og í íþróttum þar sem keppn-
isfólki er sköpuð aðstaða sem
hvetur til árangurs.
Joan Freeman heldur því fram
að stór hluti hæfileikaríkra og af-
burðagreindra barna nái ekki
þeim árangri í skólastarfi sem
efni standa til. Meginástæðan sé
sú að skólanum yfirsjáist stór
hópur nemenda sem búi yfir af-
burða hæfileikum á ýmsum svið-
um og veiti þeim ekki námsað-
stöðu við hæfi. Afleiðingin sé sú
að margir þeirra falli í skuggann
og nái aldrei þeim árangri sem
skyldi.
Joan Freeman hefur skrifað
fjölda bóka og greina um þróun
námshæfileika og rannsóknir sem
gerðar hafa verið á þessum sviðum
°g byggir á 25 ára reynslu í starfi.
Árið 1998 kom út á vegum
menntamálaráðuneytisins í Bret-
landi bók hennar: The Edueation
of the Very Able: Current Interna-
tional Research. Þar er vikið að
miðvikudag og
fimmtudag
4-1!
uvum
Kvenfataverslun, Garðatorgi 7,
stöðu þessara mála í dag og greint
frá helstu alþjóðlegu rannsóknum
sem gerðar hafa verið síðustu ára-
tugina.
Dr. Freeman hefur flutt fyrir-
lestra víða um heim. Hún er dokt-
or í sálarfræði frá háskólanum í
Manchester og starfar nú sem pró-
fessor við háskólann í Middlesex í
Englandi.
Hópþjálfun
Gigtarfé-
lagsins hafím
HÓPÞJÁLFUN Gigtarfélags ís-
lands er byrjuð aftur eftir páskafrí
og er öllum velkomið að vera með.
I boði eru mismunandi hópar. Má
þar nefna létta leikfimi, vefjagigtar-
hópa, bakleikfimi fyrir karlmenn og
vatnsleikfimi. Auk þess er boðið upp
á jóganámskeið sem aðlagað er ein-
staklingum með gigt.
Markmið félagsins er að bjóða upp
á leikfimi fyrir alla, líka þá sem lítið
geta og vilja fara rólega af stað.
Þjálfunin fer fram á mismunandi^
tímum dags og ættu allir að geta
fundið hóp og tíma sem hentar. Þjálf-
unin fer fram í húsi GÍ í Ármúla 5 og
vatnsþjálfunin í Sjálfsbjargarlaug í
Hátúni. Skráning og nánari upplýs-
ingar eru á skrifstofu GÍ, Armúla 5.
Helgarferðir til
London
18. og 25. maí
frá kr. 27.990
LonrtflU9 tU ,
fi°nt,0nalla 1
Heimsferðir bjóða þér einstakt tilboð til
London, helgamar 18. og 25. maí, þar sem þú getur
notið hins besta í heimsborginni á hreint frábærum kjömm.Við höfum
nú fengið nokkur herbergi á sértilboði á Grand Plaza hótelinu í
Bayswater, i hjarta London. Öll herbergi með baði, sjónvarpi og síma,
einnig móttaka, bar og veitingastaður. Bókaðu strax og tryggðu þér
sæti meðan enn er laust.
Verð kr. 7*90( )
Flugsætí önnur leiöin til London Verðkr. 27.90Í )
Flug fram og til baka, gisting mcð morgunverði í 4 nætur í 2ja manna hcrbergi, skattar.
Austurstræti 17, 2. hæð, sími
595 1000. www.heimsferdir.is
Sólin er ekkert notaleg...
...á skrifstofunni!
y
f
FILMA
A GLUGGANN LÉTTIR ÞÉR LÍFIÐ
• 3M "Scotchtint" sólarfilma
endurkastar allt að 80% af geislum sólarinnar.
• "Scotchtint" filman endurkastar allt að 99% af UV geislum sólar.
Munir í sýningargluggum verslana upplitast ekki fyrir vikið.
• "Scotchtint" er einnig fáanleg sem öryggisfilma.
Ef rúðan brotnar, heldur filman glerinu saman.
• Þeir sem hafa sett "Scotchtint" filmuna á gluggann hugsa hlýtt
til hennar á meðan öðrum er alltof hlýtt.
• Ásetning filmunnar er innifalin í verði.
Hafðu samband og fáðu verðtilboð.
ArvIk
ÁRMÚL11 • REYKJAVÍK • SÍMI 568 7222 • MYNDRITI 568 7295