Morgunblaðið - 03.05.2000, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2000 25
VIÐSKIPTI
Betri afkoma FBA á fyrsta ársfjórðungi en áætlanir gerðu ráð fyrir
Hagnaðar fyrir skatta
133% meiri en í fyrra
SAMKVÆMT óendurskoðuðu árshlutauppgjöri
FBA nam hagnaður bankans fyrir skatta á
fyrsta ársfjórðungi þessa árs 842 milljónum
króna og 545 milljónum króna eftir reiknaða
skatta. Hagnaður fyrir skatta á síðasta ári nam
362 milljónum króna. Vöxtur hagnaðar fyrir
skatta er því 133%. í rekstraráætlun var gert
ráð fyrir að heildarhagnaður ársins fyrir skatta
yrði um 1.763 milljónir króna. Nær helmingur
þeirrar áætlunar hefur nú þegar náðst.
Hluthafar í FBA eru 4.338 talsins. Á næstu
dögum fá þeir greiddar út samtals 1.224 millj-
ónir króna í arð.
Vöxtur meiri en áætlanir gerðu ráð fyrir
Vöxtur efnahagsreiknings var 15% á fyrstu
þremur mánuðum ársins, sem er meira en áætl-
anir gerðu ráð fyrir. Heildareignir FBA námu
106 milljörðum króna 31. mars en þær voru
92,2 milljarðar í árslok 1999. Vöxtur útlána var
einnig meiri en áætlanir gerðu ráð fyrir eða
13,5% . Heildarútlán í lok fyrsta ársfjórðungs
námu 84,7 milljórðum króna. Hreinar vaxta-
tekjur námu 305 milljónum króna fyrstu þrjá
mánuði ársins sem er 18% meira en fyrstu þrjá
mánuði síðasta árs.Eigið fé FBA að loknum
fyrsta ársfjórðungi nam um 7,9 milljörðum
króna.
Aukið vægi markaðshlutabréfa
I tilkynningu frá FBA kemur fram að
snemma á árinu var ákveðið að draga úr vægi
markaðsskuldabréfa í eigu bankans og auka
vægi markaðshlutabréfa. í samræmi við þetta
drógust eignir í markaðsskuldabréfum bankans
saman um 4,2 milljarða króna, úr rúmum 9
milljörðum í árslok 1999 í 4,8 milljarða 31.
mars. Á sama tíma jókst eign bankans í hluta-
bréfum um 2,1 milljarð úr tæpum 3,5 milljörð-
um í um 5,6 milljarða.
Bankinn selur hlutabréf í Talentu hf.
Hluti af verðbréfaeign FBA 1 Hátækni- og
Internetsjóðnum Talentu hf., dótturfélags
bankans, var seldur á tímabilinu og myndar
það nokkurn söluhagnað. Ekki fékkst uppgefið
hjá bankanum hver sá hagnaður var, en rúmur
þriðjungur hans er tekjufærður á fyrsta árs-
fjórðungi. Söluhagnaðurinn verður að fullu
tekjufærður þegar sjóðirnir eru ekki lengur í
meirihlutaeigu FBA.
Kauphallirnar í Lettlandi, Eistlandi og Litháen
Stefnt að samstarfi við NOREX
KAUPHALLIRNAR í Lettlandi,
Eistlandi og Litháen skrifuðu í
gær undir viljayfirlýsingu þess
efnis að þær stefni að samstarfi
við norrænu kauphallirnar í NOR-
EX. Skipaður verður starfshópur
með fulltrúum NOREX og kaup-
hallanna í Riga, Tallinn og Vilnius.
Hópurinn mun vinna að sam-
ræmingu reglna um skráningu og
viðskipti, eftirlit á markaði, og
Netverslun
með þjóð-
legar vörur
opnuð
OPNUÐ hefur verið ný alþjóð-
leg vefverslun hér á landi sem
sérhæfir sig í þjóðlegum vör-
um. Ber hún nafnið buynation-
al.com. Er ráðgert að fyrsta
verslunin verði opnuð innan
skamms undir heitunum is-
lenskt.is og buyicelandic.com.
Meirihlutaeigendur buy-
national.com eru Talenta-
Intemet hf. og Baugur.net hf„
sem samtals eiga 67% hluta-
íjár. Eigendurnir stefna að því
að koma á fót keðju netversl-
ana með þjóðlegar vörur um
allan heim, að því er fram kem-
ur í fréttatilkynningu frá þeim.
Verslunin mun m.a. annast
sölu, pökkun og sendingu á
þjóðlegum vörum fyrir við-
skiptavini sína hvert sem er í
heiminum. buynational.com
var stofnað í lok sfðasta árs af
Amóri H. Amórssyni, Finn-
boga R. Alfreðssyni og Stefáni
P. Bustos, sem jafnframt er
framkvæmdasljóri félagsins.
Stefnir fyrirtækið að því að
starfsemi þess verði komin í
gang á nokkrum markaðs-
svæðum heims síðar á þessu
ári. Settar verða upp vefversl-
anir á viðkomandi markaðs-
svæði í samstarfi við sterka
dreifingaraðila með það að
markmiði að skapa einstakl-
ingutn jafnt sem fyrirtækjum
hagræði og spamað með því
að kaupa þjóðlegar vörar
hvers svæðis á Netinu. Nú þeg-
ar er hafinn undirbúningur að
stofnun vefverslana á Bret-
landseyjum, í Skandinavtu og
víðar í Evrópu og síðar á árinu
er stefnt að stofnun vefversl-
ana í Norður-Ameríku, Suður-
Ameríku og Asíu.
þjálfun og fullgildingu miðlara.
Mikilvægur þáttur í þeirri vinnu
verður að laga lög og reglur í
Eystrasaltsríkjunum að evrópsku
lagaumhverfi.
I tilkynningu til Verðbréfaþings
íslands kemur fram að kauphall-
irnar í Eystrasaltsríkjunum voru
stofnaðar á miðjum síðasta áratug
þegar lýðveldin höfðu fengið sjálf-
stæði á nýjan leik. Alþjóðlegir ráð-
gjafar voru hafðir með í ráðum
þegar kauphallirnar voru stofnað-
ar enda fullnægja þær evrópskum
tilskipunum um starfsemi kaup-
halla.
NOREX var stofnað af dönsku
og sænsku kauphöllinni í janúar
1998 með áherslu á sameiginlegan
norrænan verðbréfamarkað. Frá
því í júní á síðasta ári hafa danska
og sænska kauphöllin notað sama
viðskiptakerfi fyrir hlutabréf og
samræmdar viðskiptareglur og í
haust munu skuldabréfaviðskipti
fara fram í sama kerfi.
Verðbréfaþing Islands hf. skrif-
aði undir viljayfirlýsingu um að
ganga í NOREX þann 21. mars sl.
og stefnt er að undirritun samn-
inga í júní. Kauphöllin í Osló skrif-
aði undir samskonar yfirlýsingu í
nóvember í fyrra.
f
hrífandi
heimur!
fegurð, slökun
og uppbygging
Dedeor-snyrtivörulínan er leið-
andi merki á heilsusetrum og
SPA-stöðum um allan heim.
Hún hefur slakandi áhrif, er
örvandi, nærandi, grennandi,
vatnslosandi og byggir upp
húðina á sérstakan hátt vegna
þess að hún er unnin beint úr
náttúrunni.
Kynning verður á Decleor-
snyrtivörullnunni þriðjudaginn
2. mal til föstudagsins 5. ma( I
Planet Esju, Suðurlandsbraut 2
(Hótel Esju), annari hæð, milli
kl. 20.00 og 22.00.
Þeir sem koma á kynninguna
geta fengið frían prufutima á
Planet Esju. Athugið að slfkan
tíma verður að panta hjá
ráðgjafa.
t^MM /s Mí
ICELANO
Umboðs- og heíldverslun
Hótel Esju • Suðurlandsbraut 2 • Slmi: 588 1700
h A é) s
ÁRÖMESSENCR
VtSAGE NEROLf