Morgunblaðið - 03.05.2000, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Auðlindir og al-
mannahagsmunir
SAMFYLKINGIN
heldur stofnfund sinn á
föstudag og laugardag í
Borgarleikhúsinu. Þar
verður m.a. fjallað í
nokkrum málstofum
um margvísleg álitaefni
í íslenskum stjórnmál-
um og leitað svara hjá
fólki sem þekkir vel til
mála.
Ein þessara málstofa,
sem undirritaður stýrir,
fjallar um auðlindir og
almannahagsmuni og
titillinn vísar tO sam-
bands milli auðlindanýt-
ingar og hagsmuna al-
mennings. Pólitískar
deilur um fiskveiðistjómunarkerfið
hafa verið lengi og á síðasta og þessu
ári voru miklar deilur milli þeirra sem
vildu virkja fyrir austan og náttúru-
verndarsinna.
Umhverfismál eru orðin óaðskilj;
anlegur þáttur í auðlindaumræðu. í
málstofunum hjá Samfylkingunni
verður ekki dregin upp pólitísk rétt-
trúnaðai-lína heldur rætt á yfirvegað-
an hátt um viðkvæm mál, m.a. af ein-
staklingum sem eru sérfræðingar á
sínu sviði og sem sumt vill sem minnst
af pólitík vita. Það sýnir styrkleika
hjá hinni nýju hreyfingu að leggja
málefnaumræðu upp á þennan hátt.
Málstofur á fundi
Samfylkingarinnar
í málstofunni um auðlindir og al-
mannahagsmuni munu fjórir frum-
mælendur innleiða umræðuna og
sitja fyrir svörum. Svanfríður Jóna-
sdóttir alþingismaður mun einkum
fjalla um sjávarútvegs-
mál en hún á m.a. sæti í
auðlindanefndinni
margfrægu. Ekki sér
fyrir endann á þeirri
vinnu og þeirri spurn-
ingu er ósvarað hvort
nokkuð breytist fyrr en
ný ríkisstjórn hefur tek-
ið við enda er betra að
skýrir pólitískir kostir
liggi fyrir frekar en út-
vatnaðar málamiðlanir
sem engum líkar.
Guðmundur Páll Ól-
afsson, rithöfundur og
náttúrufræðingur, mun
fjalla um umhverfismál
í víðu samhengi en hann
hefur vakið athygli fyrir einarðan
málflutning. Umhverfismál standa
ekki ein sér heldur fléttast í vaxandi
mæli inn í ákvarðanir í efnahagslegu,
menningarlegu og félagslegu tilliti.
Frjáls samtök fjarri stjómmálaflokk-
um sem vinna að afmörkuðum málum
hafa rutt sér víða til rúms erlendis.
Þetta er eitt hinna nýju birtingar-
forma í lýðræðislegu starfi almenn-
ings.
Friðrik Már Baldursson rannsókn-
arprófessor mun sem frummælandi
einkum beina athyglinni að skipulagi í
raforkumálum. Ymislegt á því sviði
sem tengist regluverki Evrópusam-
bandsins og er hlutiEES-samnings-
ins er lítið þekkt hérlendis. Friðrik er
rannsóknarprófessor við Háskóla ís-
lands með orkumál sem sérgrein.
Hann þekkir reyndar íslenskt at-
vinnulíf út og inn, m.a. sem fyrrver-
andi forstjóri Þjóðhagsstofnunar.
Ingvi Þorsteinsson náttúrufræð-
Stofnfundur
Málstofurnar á stofn-
fundi Samfylkingarinnar,
segir Ágúst Einarsson,
eiga að vera skemmtileg-
ar og hvernig umræðan
mun þróast á næstu
misserum.
ingur lítur á þessi mál frá enn einu
sjónarhominu en þekking hans og
vinna á sviði gróðurvemdar er
landskunn. Þar höfum við skyldur
gagnvart komandi kynslóðum og
hvergi á hugmyndafræðin um sjálf-
bæra þróun betur við en einmitt á
sviði gróðurvemdar.
Vor nýrrar aldar
með nýjum flokki
Málstofumar á stofnfundi Sam-
fylkingarinnar eiga að vera skemmti-
legar og sýna hvemig umræðan mun
þróast á næstu misserum. Það eru all-
ir velkomnir á málstofurnar þótt þeir
sitji ekki stofnfundinn að öðru leyti.
Samfylkingin er opinn flokkur sem
leitar eftir skoðanaskiptum við al-
menning.
Það blása nýir straumai- í íslensk-
um stjórnmálum þar sem dreifa skal
valdi og engin réttindi eru án ábyrgð-
ar. Samfylkingin ætlar með umræðu
að leggja línumar á pólitískum lausn-
um á margvíslegum álitaefnum. Það
eru forréttindi fyrir fólk að taka þátt í
mótun nýs flokks frá fyrsta degi. Vor
nýrrar aldar í íslenskum stjómmálum
hefst með stofnfundi Samfylkingar-
innar á föstudaginn.
Höfundur er prófessor og einn
málstofustjóra á stofnfundi
Samfylkingarinnar.
Ágúst
Einarsson
MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2000 63
ROGA
nyrtivörur
Bankastræti 3, sími 551 3635.
. . „ PÓSTKRÖFUSENDUM
Utsölustaoir: -----------------------------------------
Stella Bankastræti, Snyrtistofa Lilju, Stillholti Akranesi, Lyf og heilsa *
(Stjörnuapótek), Akureyri, Fríhöfnin Keflavík
*
rlUSASKILTI
10% afsláttur ef pantað er
fyrir 15. maí.
PIPAR OG SALT
Klapparstíg 44 ^ Sími 562 3614 j
Ársfundur 2000
Ársfundur Sameinaóa lífeyrissjóðsins árið 2000 verður haldinn mánudaginn 15. maí kl. 16:00
að Grand Hótel; Reykjavík, Sigtúni 38.
Dagskrá
— 1. Venjuleg ársfundarstörf samkvæmt samþykktum sjóðsins.
— 2. Tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins.
— 3. Önnur mál löglega upp borin.
Fyrir fundinum liggur tillaga stjórnar um 7% aukningu áunninna réttinda umfram verðbólgu.
Þeim sjóðfélögum sem hafa áhuga á kynna sér tillögur um breytingar á samþykktum Sameinaða lífeyríssjóðsins er bent
á að hægt er að nálgast þær á eftirfarandi hátt:
1. Á skrifstofu sjóðsins að Borgartúni 30, Reykjavík
2. Fá þær sendar með því að hafa samband í sima 510-5000
3. Fletta þeim upp á heimasíðu sjóðsins á slóðinni www.lifeyrir.is
Sameinaði lífeyrissjóðurinn er 4. stærsti lífeyrissjóóur landsins og voru heildareignir hans 39,6 milljarðar í árslok
1999. Rekstur sjóðsins gekk afar vel á árinu 1999 og er tillaga um réttindaaukningu lögð fram í Ljósi þess. Raunávöxtun
sjóðsins var 17,8% og rúmlega 10.000 sjóðfélagar greiddu til hans.
Reykjavík 17. april 2000,
stjórn Sameinaða tífeyrissjóðsins
Borgartún 30 • 105 Reyigavík • sfmi 510 5000 • fax 510 5010 • mottaka@lifeyrir.is • tífeyrir.is