Morgunblaðið - 03.05.2000, Page 29

Morgunblaðið - 03.05.2000, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Víða í Evrópu var efnt til óeirða 1. maí Hörð átök við lögreglu í Berlín og London London, Berlín. AP, AFP, Daily Telegraph. AP Stytta af Winston Churchill sést hér krýnd móhíkanakambi gerðum úr grastorfi. Tölu- vert eignatjón varð í óeirðum sem komu upp á stöku stað í borginni á 1. maí. og er tjónið metið á um 60 milljónir króna. HÁTT á annað hundrað lög- regluþjóna varð fyrir meiðsl- um og hundruð öfgasinna voru handtekin í óeirðum sem urðu í Berlín 1. maí, á hátíðis- degi verkalýðsins. Einnig kom til óeirða í miðborg London þar sem 95 voru handteknir, 38 særðust og eignatjón er talið nema um hálfri milljón punda, eða um 60 milljónum króna. I London voru það mótmæli gegn alþjóða kapítalisma sem leystust á stöku stað upp í átök milli óeirðaseggja og lög- reglu, þótt mótmæli færu í flesta staði friðsamlega fram. Við hlið Downingstrætis, þar sem breski forsætisráðherr- ann býr, var lögregla grýtt með múrsteinum og flöskum og þá segir fréttastofa BBC verslanir víða hafa verið rændar í miðborginni og bíl- rúður brotnar, auk þess sem óeirðaseggir hafi kastað bæði múrsteinum og flöskum. Að sögn Scotland Yard særðust níu lögregluþjónar í átökunum á mánudag, sem Tony Blair, forsætisráðherra Breta, hefur fordæmt sem „til- gangslaust ofbeldi“. Viðbúnaður Lundúnalögreglunnar vegna mót- mælanna var með mesta móti og voru rúmlega 5.500 lögreglumenn á vakt, auk þess sem 9.000 lögreglu- menn til viðbótar voru á bakvakt. Neil Simms, einn mótmælend- anna, sagði í viðtali við dagblaðið Daily Telegraph að hann hefði komið til London til þess eins að valda vandræðum. „Ég er hér ... til að notfæra mér rétt minn til að vera stjórnleysingi. Vonandi eigum við eftir að valda glundroða og eyðileggingu,“ sagði Simms. Hundruð mótmælenda voru handtekin í Kreuzberg, einu hverfa Berlínar, á mánudags- kvöldið þegar hátt í 10.000 vinstri öfgasinnar grýttu lög- reglu og skutu að henni flug- eldum. Pá reistu óeirðasegg- irnir einnig götuvígi sem þeir kveiktu í og urðu á annað hundrað lögreglumenn fyrir meiðslum í átökunum. Undan- farin ár hafa vinstri öfgasinn- ar efnt reglulega til óeirða í Berlín á frídegi verkamanna og voru á sjöunda þúsund lög- reglumenn á vakt í borginni af þessu tilefni. I austurhluta Berlínar efndu síðan um 1.200 nýnas- istar til mótmælagöngu undur ströngu eftirliti lögreglu, veif- uðu þýska fánanum og hróp- uðu „Þýskaland fyrir Þjóð- verja“. Ekki kom þó til óeirða þar sem lögregla hindraði hóp 150 stjórnleysingja í að brjót- ast inn í gönguna. Einnig kom til óeirða í Hamborg í Þýskalandi og þá voru sex manns handteknir í Kaup- mannahöfn. Mótmælagöngur fóru þó víðast annars staðar friðsamlega fram og tóku m.a. tugir þúsunda þátt í mót- mælagöngu í Madrid á Spáni. MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2000 2S MM Úr 3. málsgrein 27. greinar umferðariaga nr. 50/1987 Lögreglan í Reykjavík • Eigi má stöðva ökutæki eða leggja því á gangstétt eða gangstíg, nema annað sé ákveðið. • Sama á við um umferðar- eyjar og svipaða staði. |! Bílastæðasjóður Reuters Palestínskur íbúi Bagdad hreinsar íbúð sína eftir að hún varð fyr- ir flugskeyti í fyrrakvöld. Tvær mágkonur hans og fjögur barna- börn særðust í árásinni. Irönum kennt um árásir á Bagdad Bagdad. AFP. ^ ÁTTA íbúar Bagdad særðust í flugskeytaárásum á borgina nokkrum klukkustundum eftir að íranskir skæruliðar með bæki- stöðvar í írak skutu sprengjum á höfuðborg írans í fyrrakvöld. Ir- aska fréttastofan INA kenndi stjórnvöldum í Iran um flug- skeytaárásirnar á Bagdad. Eitt flugskeytanna lenti í svefn- herbergi íbúðar í eigu Palestínu- manns. „Tvær mágkonur mínar, sem eru báðar barnshafandi, og fjögur barnabörn mín særðust," sagði eigandi íbúðarinnar, Said Mahmoud Said. Said missti meðvitund þegar flugskeytið sprakk en særðist ekki. INA sagði að sex fjarstýrðum flugskeytum hefði verið skotið á borgina og tveir karlmenn hefðu særst, auk palestínsku kvenn- anna og barnanna. Fréttastofan sagði að „útsendar- ar í þjónustu stjórnarinnar í íran“ hefðu verið að verki. „írakar gera stjórnvöld í íran ábyrg fyrir þess- ari löðurmannlegu árás og áskilja sér rétt til að svara henni." Sex manns særast í Teheran Nokkrum klukkustundum áður særðust sex manns þegar sprengj- um var skotið á Teheran. Hreyfing íranskra skæruliða, sem eru með bækistöðvar í írak, lýsti sprengju- árásunum á hendur sér. Hreyfing- in kvaðst hafa skotið sprengjunum á höfuðstöðvar írönsku öryggislög- reglunnar til að fylgja eftir mót- mælum námsmanna gegn harð- línumönnum í klerkastjórninni í Iran. Skrifstofur VÍS eru opnar frá 8-16 alla virka daqa í sumar. VÍjr þar sem tryggingar snúast um fólk Skrifstofur VÍS í útibúum Landsbankans á Höfn f Hornafirði og í Ólafsvík eru opnar frá 9:15-16:00. Sími 560 5000 í þjónustuveri VÍS er opinn frá 8:00-19:00 alla virka daga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.