Morgunblaðið - 03.05.2000, Page 32

Morgunblaðið - 03.05.2000, Page 32
32 MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Nýtt dansverk eftir Helga Tómasson frumflutt í New York Helgi Tómasson: „Ekki eins og liðið hafi fimmtán ár.“ Eftirlætis- sonur snýr til baka „EFTIRLÆTISSONUR snýr til baka,“ var fyrirsögnin á viðtali við Helga Tómasson í sunnu- dagsblaði The New York Times, en Helgi hefur nú samið dansverk fyrir New York City-dansflokk- inn. Frumsýning á þessu nýja verki er í kvöld, en Helgi dansaði með New York City-flokknum í fimmtán ár áður en hann söðlaði um og tók við starfi listræns stjórnanda San Francisco-dans- flokksins. Þetta nýja verk heitir „Prism“ og er samið við pianokonsert nr. 1 eftir Beethoven en við þetta tækifæri verða einnig flutt verk eftir tvo aðra höfunda, þá Peter Martin og Christopher Wheeldon. í fyrsta sinn sem tækifæri gefst í viðtali The New York Times við Helga kemur fram að Peter Martin hjá New York City-dans- flokknum hafi undanfarin ár ít- rekað beðið hann um að koma og vinna með þeim, en tækifærið hafi ekki gefíst fyrr en nú þar sem Helgi hafi ætíð verið svo önnum kafinn. En auk þess að leiða dansflokk sinn í San Francisco til nýrra dáða og al- þjóðlegrar viðurkenningar hefur Helgi samið 25 ballettverk fyrir flokkinn og sett upp sinar eigin útfærslur á fjórum klassískum dansverkum, frá því hann tók við starfi listræns stjórnanda árið 1985. „Þetta er í fyrsta sinn sem ég er ekki bundinn í San Francisco," segir Helgi í viðtal- inu. „Ég setti saman dagskrá þar með sex frumsýningum á nýjum verkum eftir unga efnilega dans- höfunda, svo ég gat vikið mér frá.“ Ég var með mótaða hugmynd í huga Varðandi hið nýja verk „Prism“ og tónlist Beethovens segir Helgi að hann hafi verið að hugsa um þessa tónlist árum saman og ver- ið viss um að hún gæti orðið að frábæru dansverki. „Tónlistin er frá því snemma á ferli hans og mér fannst hún svo dansleg þegar ég hlustaði á hana - og jafnframt á einhvern máta svolítið ógnvekj- andi. Þegar tækifæri gafst til að vinna með City-dansflokknum varð mér hugsað til þessarar tónlistar og fannst hún eiga vel við þennan flokk. Ég eyddi svo mörgum árum hérna og nú þegar ég sneri aftur á nýjum forsendum langaði mig til að skapa hreinan dans í klassisku tilliti, nota klass- íska tækni. Ég var með mjög mót- aða hugmynd í huga, sem byggð- ist á því hvernig ég heyrði upp- bygginguna í tónlistinni. Þetta er hljómmikið verk; ég vildi hafa mikið af fólki á sviðinu," segir Helgi ennfremur í viðtalinu. Umskiptin voru eldskírn Um þær breytingar sem urðu í lífi hans þegar hann lauk dans- ferli sínum hjá New York City- dansflokknum til að fara til San Francisco segir Helgi: „Það voru ekki auðveld umskipti, heldur eldskírn," og er þá að vísa til þeirrar vinnu sem fór í að móta fiokkinn eftir hans höfði jafn- framt því að láta hann standa undir miklum kröfum. „Þetta hef- ur verið mjög ögrandi, gjöfult en erfitt, - mikil vinna allan sólar- hringinn." Nú þegar hann er kominn til baka á „heimaslóðir“ í New York hefur blaðið eftir Helga að það sé „ótrúlegt; ekki eins og liðið hafi fimmtán ár. Þegar ég geng inn í salinn er það næstum eins og ég hafi verið þar í gær“. ARSFUNDUR LÍFEYRISSJÓÐS SJÓMANNA Ársfundur Lífeyrissjóðs sjómanna 2000 verður haldinn miðviku- daginn 10. maí 2000 kl. 16.00 að Grand Hótel, Hvammi. D a g s k r á 1. Venjuleg ársfundarstörf samkvæmt samþykktum sjóðsins. 2. Önnur mál. Rétt tii setu á ársfundi með málfrelsi og tillögurétti eiga allir sjóðfélagar svo og elli- og örorkulífeyrisþegar sjóðsins. Meðlimir fulltrúaráðs eiga rétt til setu á ársfundi með málfrelsi, tillögu- og atkvæðisrétti. Reykjavík, 27. apríl 2000. Stjórn Lífeyrissjóðs sjómanna. Lífeyrissjóður sjómanna Þverholt 14 • 105 Reykjavík Sími 551 5100 • Fax. 562 1940 Skollaleikur skallapopparanna ERLENDAR BÆKUR Spennusaga „LUXURY AMNESIA“ eftir David Huggins. Faber and Faber 2000.210 síður. DAVID Huggins heitir breskur rit- höfundur sem er að reyna íyrir sér á spennusagnasviðinu með nýiTÍ bók sem heitir „Luxury Amnesia" eða Minnisleysi. Hún kom út fyrir skemmstu í vasabroti hjá Faber og Faber og segir frá tveimur vinum sem áður voru í hljómsveitinni Over- load og fengu sínar fimmtán mínútur af frægð, sem eru útrunnar fyrir margt löngu. í dag eru þeir hálfgerðir iðjuleys- ingjai-, eða a.m.k. annar þeiira, en ut- an í honum hangir hryllilega ríkt ung- menni að nafni Mark sem er meira og minna út úr heiminum en telur sig eiga möguleika á að koma hljómsveit- inni í gang aftur. Það er þeim því nokkur harmdauði þegar Mark finnst látinn. Ekki síst þar sem böndin gætu auðveldlega borist að þeim. Glataðir snillingar Huggins þessi er fæddur í London og hefur áður sent frá sér söguna The Big Kiss eða Kossinn langi og hann vinnur nú við sögu sem mun eiga að fjalla um þijár kynslóðir leikara og heitir Ég ég ég eða Me Me Me. Hann einskorðar sig því ekki við spennu- sögur enda byggir Luxury Amnesia ekki eingöngu á spennuforminu þótt um klassíska gátusögu sé að ræða. Sagan fjallar um leit að morðingja og söguhetjan hefur ákveðna aðila grun- aða, en það myndast í raun aldrei veruleg spenna í kringum morðmálið, sem rakið er í svart-kómískum stíl að hætti kannski bresku bíómyndarinn- ar Shallow Grave. Sögumaður bókarinnar er bassa- leikari Overload-hljómsveitarinnar þremur árum eftir stutta heims- Á köldu KVIKMYNDIR Itfohöllin MYSTERY, ALASKA •k'k Leikstjóri Jay Roach. Hand- ritshöfundar David E. Kelley og Sean O’Byrne. Tónskáld Carter Burwell. Kvikmyndatökusljóri Pet- er Deming. Aðalleikendur Russell Crowe, Hank Azara, Mary Mc- Cormack, Burt Reynolds, Colm Meany, Lolita Davidovich. Maury Chaykin, Ron Eldard. Lengd 118 mín. Framleiðandi Hollywood Pict- ures. Árgerð 1999. GALLINN er sá að reynt er að segja svo margt að ekki verður neitt úr neinu. Charles Danner (Hank Azara), íþróttafréttaritari Sports III- ustrated og fyrrverandi íbúi krummaskuðsins Mystery í Alaska, reynir að slá sér upp á grein um ís- hokkíáhugann í gamla heimabænum þar sem allt snýst um laugardagseft- irmiðdagsleikinn, ævaforna hefð. Þarna er líka þokkalegt lið á útnára- mælikvarða, skipað einstaklingum þessa undarlega bæjarfélags. Fyrir- liðinn er Biebe (Russell Crowe), lög- reglustjóri, sem lítur út fyrir að vera staðnaður rótari hjá þungarokks- hljómsveit, eða afbrotamaður. Hann fer fyrir hópnum sem skipaður er kvennabósa bæjarins, Skank (Ron Etard), sem þægir m.a. Jessie (Lol- ita Davidovitch), konu bæjarstjórans (Colm Meany). Annar er verðandi tengdasonur dómarans (Burt Reyn- olds), sem reynist einnig fyrrverandi frægð. Hann heitir Andy Hayes og er kominn nokkuð á fertugsaldurinn og tilheyrir skallapoppurum en vinnur við að gera upp íbúðir. Hann tregar ekki beint horfna dýrðardaga en þeir skipa þó ákveðinn sess í huga hans. Bandið náði í annað sæti bandaríska listans með plötunni „Luxury Amn- esia“ en þegar átti að fylgja sigrinum eftir dó plata númer tvö drottni sín- um og hljómsveitin fór í hundana, búin að tapa miklum peningum. Þannig er að dag einn bankar gamli söngvari hljómsveitarinnar, Phil Jenkins, upp á hjá Andy og hefur margt á pijónunum eins og venju- lega. Hann er með í eftirdragi ríkan erfingja að átta milljónum punda sem veit hvorki í þennan heim né annan vegna áfengis- og eiturefnaneyslu og hefur þá hugmynd að hægt sé að hafa fé út úr fjölskyldu stráksins með krókaleiðum. tít um þúfur Allt fer það út um þúfur þegar þeir koma að drengnum dauðum í íbúð sem Andy hefur að láni og við tekur undarleg atburðarás þegar skalla- poppararnir reyna að fela líldð og komast í leiðinni að raun um hver er morðinginn. Það er varla að maður finni til sam- úðar með nokkurri manneskju í bók- inni ef undan er skilin aðalpersónan. Kaldhæðnislegur frásagnarstfllinn gerir persónurnar upp til hópa fráhrindandi og leiðinlegar, sérstak- lega söngvarann Phil Jenkins, og lík- ingamálið, nóg er af því, er stundum full hversdagslegt ef ekki hreinlega hallærislegt. Heilinn á mér snerist eins og vagnhjól í vestra er eitt dæmi. Ég var eins ráðalaus og stjómleys- ingi með stöðumælasekt er annað. Annað á þessu sviði er ívið betur heppnað. Hin gráa glettni sem drífur frá- sögnina áfram er aðeins skopleg upp að vissu marki en inn í fléttuna bland- ast áhugaverð hliðarsaga sem fjaliar um ástina í lífi aðalsöguhetjunnar. Á endanum virkar bókin aðeins sem sæmileg afþreying en ekkert meira. Arnaldur Indriðason tn klaka íshokkíþjálfari og lumar á nokkrum brögðum, sem koma til góða þegar greinin í Sports IUustrated hefur komið því til leiðar að hokkflið New York Rangers kemur í heimsókn. Það sem tekur við eftir að New York Rangers birtast á svæðinu er Rocky á ís. Lítið spennandi eða for- vitnilegt og áhorfandinn hálfkafnað- ur í óspennandi aukasögum af göml- um ástamálum, dapurri réttarhalds- kómedíu, þar sem seinheppinn sölumaður er skotinn í fótinn; ferða- lagi lögmanns bæjarfélagsins (Maury Chaykin) til New York til að bjarga heiðri Mystery og deyja síð- an o.s.frv. Þetta skiptir engan máli. Alltof löng myndin sniglast áfram og greinilegt að leikstjórinn, Kay Roach, á auðveldara með fást við heilaskaddaðar gamanmyndir á borð við Austin Powers. Myndin er í sjálfu sér ekki alvond, heldur innan- tómar tilraunir sem allar renna máttleysislega út í sandinn. Og óvart aulalegar. Samkvæmt breiddargráð- unni á að vera brunagaddur í Myst- ery, þó eru menn ýmist berhöfðaðir eða vettlingalausir og vitaskuld eng- in frostmóða úr vitum. Ódýrt er að kippa því í liðinn ef höfð er hugsun á því. Skást er Mystery, Alaska, þegar gert er grín að hlutunum, líkt og þegar Mike Myers (í annars litlaus- um leikarahóp) þenur sig sem sjón- varpsfréttamaður, kominn til að lýsa hokkíleiknum. Því miður eru slík augnablik alltof fá og höfundamir (þ. á m. David E. Kelley, eftirsóttur sjónvarpspenni), lengst af uppteknir við að taka sig hátíðlega með engum árangri. Sæbjörn Valdimarsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.