Morgunblaðið - 03.05.2000, Síða 38

Morgunblaðið - 03.05.2000, Síða 38
38 MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Morgunblaðið/Sverrir „Mót sem þessi eru kóramenningunni afar nauðsynleg. Við höfum heyrt hér í mörgum góðum kórum og nokkrum frábærum," segir meðal annars í um- Qöllun um lokatónleika Norræna kvennakóramótsins sem haldnir voru í Valsheimilinu siðastliðinn sunnudag. Raddir þús- und kvenna TONLIST Valsheimilið NORRÆNT KVENNAKÓRAMÓT Kórar Norræna kvennakóramóts- ins sungu saman; kórstjórar voru Sigrún Þorgeirsdóttir, Margrét J. Pálmadóttir, Tove Ramlo, Solvieg Ágren, Sibyl Urbancic, Anne-Mari Taulio, Raakel Solvin og Jóhanna Þórhallsdóttir. Sunnudag kl. 17. NORRÆNA kvennakóramótinu, sem haldið hefur verið í höfuðborg- inni síðustu daga, lauk á sunnudag- inn með stuttum tónleikum í Vals- heimilinu þar sem allir kórar mótsins sungu saman nokkur lög. Það er nú reyndar vafamál hvort orðið tónleik- ar eigi við um slíka samkomu; - fyrst og fremst er þetta félagslegt fyrir- bæri að konurnar komi allar saman, því varla gerir nokkur ráð fyrir því að söngur meir en níu hundruð kvenna geti verið af sömu gæðum og söngur hvers kórs fyrir sig. í fyrsta lagi eru hópamir ekki samæfðir nema rétt fyrir þessa tónleika; í öðru lagi er stærðin ein svo yfirgengileg að einn kórstjóri getur varla haft yf- irsýn yfir allan hópinn, hvað þá að all- ur hópurinn sjái vel hvað kórstjórinn er að gera. Valsheimilið dugði varla til, því konumar stóðu í mörgum röð- um meðfram langveggnum og einnig meðfram báðum skammveggjunum. Hljóðið barst líka til áheyrenda í lif- andi „stereói" en vandamálið var bara að erfitt reyndist að halda jöfn- um hraða hjá kórnum stóra. Þá var það líka vandamál að hver þjóð söng „sín“ lög af mestum þrótti. Mest var það áberandi í grænlenska laginu, þar sem grænlenski kórinn tók ekk- ert tillit til stjórnandans og söng sitt lag fullum rómi og af miklum móð og hita og nánast stakk hinar m'u hundr- uð konurnar af. Það sem best kom út var mótslagið, Sápukúlur eftir Hildi- gunni Rúnarsdóttur við ljóð Stein- gerðar Guðmundsdóttur, en lagið var samið fyrir mótið, og sennilega það sem mest hefur verið æft af þessu sameiginlega prógrammi. Hægu lög- in voru undantekningarlaust betri en þau hröðu; Hvile eftir Agathe Backer Grondahl var mjög vel sungið, - lagið líka sérstaklega fallegt. Annað slíkt lag var finnska þjóðlagið On suuri sun rantas autius. Þar náði kórinn upp mjög góðum samhljóm og þá varð þessi risavaxni kórhljómur líka undursamlegur. Abbalagið Thank you for the music stóð hjörtum kvennanna greinilega nærri, og þessi frábæra útsetning Ingegerds Idars var mjög fallega flutt og af hjartans einlægni. I tónleikalok var mótslagið Sápukúlur flutt aftur. Þar með lauk fyrsta norræna kvennakóramótinu sem haldið er. Mót sem þessi eru kóramenningunni afar nauðsynleg. Við höfum heyrt hér í mörgum góð- um kórum og nokkrum frábærum. Kóramir hittast, bera saman bækur sínar og bera sig saman hver við ann- an. Það hlýtur að vera þeim bæði hollt og gott. Niðurstaðan hlýtur að verða meiri söngur og betri söngur og það er mikilvægt. Bergþóra Jónsdóttir bara konur“ Gunnar Gunnarsson og Sigurð- ur Flosason. Nýjar plötur • SÁLMAR lífsins er ný plata þar sem Sigurður Flosason saxófónleik- ari og Gunnar Gunnarsson organisti leika 14 sálmalög frá ýmsum tímum. Lögin eru útsett af þeim félögum og er áhersla lögð á spuna af ýmsum gerðum. Margir sálmanna tengjast stórhátíðum kirkjuársins og ýmsum kirkjulegum athöfnum, svo sem skím, fermingu, brúðkaupi og útför. Elstu sálmalögin em frá 15. öld, en þau yngstu frá síðustu áratugum. Sigurður og Gunnar fluttu sálma- spuna sinn á tvennum tónleikum í Hallgrímskirkju sl. haust og á jóla- tónleikum í Langholtskirkju. Utgefandi erMál ogmenning. Upptökur fóru fram í Hall- grímskirkju afStafræna hljóðupp- tökufélaginu. Upptökumaður var Sveinn Kjartansson. Verð: 2.190 kr. TONLIST Ýmir NORRÆNT KVENNAKÓRAMÓT Fjórir norrænir kórar sungu: Finlands Svenska Damkörsför- bund, sljórnandi Anne-Mari Taulio; Florakören, stjórnandi Ulf Lángbacka; Gospel-systur, stjórnandi Margrét Pálmadóttir; Vantaan Naislaulajat, stjórnandi Ari Pamanen; og Vandaamit, stjórnandi Kaisa Párnánen. Föstudagskvöld kl. 22. ÞAÐ kom upp í huga mér á föstudagskvöldið gamalt Dátalag; Konur, þar sem Rúnar Gunnarsson söng svo innilega vísindalega sann- færandi: „Uti í heimi eru konurnar svo margar, - að kringum jörðina þær næðu ef þær stæðu í röð“. Konur fylltu hvern _ krók og kima Karlakórshússins Ýmis - mörg hundrað norrænar konur sem sam- an voru komnar til að syngja og í röð hefðu þær hefðu orðið drjúgur spotti í röðinni hans Rúnars. Flest- ir tónleikagesta vora augljóslega líka þátttakendur í Norræna kvennakóramótinu sem stendur yf- ir hér þessa dagana, og hefðu tæp- lega fleiri komist fyrir í húsinu svo stappað var þar. Finnlands-sænska kvennakórasambandið reið á vaðið. Urval kóra innan þessa sambands söng saman nokkur lög og byrjaði vitaskuld á Vem kan segla förutan vind. Þetta kunnu konurnar mæta- vel og sungu fallega. Rómantískt ættjarðarljóð, En sommardag i Kangasala eftir Alfred Anderssen, var líka prýðilegt. Annað sem þessi 140 kvenna kór söng var fremur dauft og slappt, innkomur óklárar og í heild illa samæft. Þá steig á stokk hluti þessa finnsk-sænska stórkórs; Florakoren, sem starf- ræktur er við háskólann í Ábo eða Turku. Stjórnandi þessa kórs var Ulf Lángbacka. Þessi ung-kvenna- kór söng aðeins tvö lög, en gerði það snilldarlega vel. Söngstíllinn var þjóðlegur; - hvað á maður að segja; - finnsk-úgrískur? og minnti svolítið á hina frábæru karelísku kvennasveit og kantelegrúppu Várttiná. Þessi hressilegi söngur gladdi mjög. Stórkór finnsk- sænska kvennakórasambandsins tók svo við aftur og söng nokkur lög, þar á meðal hið finnska „undir dalanna sól“, Kalliolle kukkulalle, sem jafnvel smæstu kórar á Islandi hafa í handraðanum. Söngurinn var sem fyrr frekar daufur og litlaus. Það vantaði hins vegar hvorki lit né líf í íslenskar Gospelsystur undir stjórn Margrétar Pálmadóttur. Þessi kór syngur dável og með sönggleðina að vopni hlýtur hann að hræra við jafnvel harðsvíruðustu spýtukörlum. Eins og nafn kórsins gefur til kynna er efnisvalið að mestu amerísk og afró-amerísk lög, bæði negrasálmar og soul-stand- ardar svo eitthvað sé nefnt. Lítil grúppa innan úr kórnum söng sóló á móti rest í laginu Feeling Good, og gerði það mjög vel. Vel hefði farið á því að fá góðan einsöngvara til liðs við kórinn, því flest ef ekki öll þessara laga bjóða upp á að góð- ur soul- eða blues-söngvari sýni þar listir sínar. Besta lag Gospelkórsins var Oh Happy Day. Vantaan Naislaulajat-kórinn frá Finnlandi var jafn stilltur og penn og Gospelkórinn var frjálslegur og lifandi. Söngur finnska kórsins var líka ekki bara litlaus heldur einnig líflaus með öllu. Merkilegt hvað mikið var státað af velgengni kórs- ins í prógrammtexta. Stjórnandinn var stífur og ómúsíkalskur og kór- inn eins. Það besta hjá þessum kór var dægurslagarinn The Land of Music eftir Ilkka Kuusisto. Innan þessa kórs er svo starfræktur ann- ar minni, Vandaamit, sem Kaisa Párnánen stjórnar. Litli kórinn söng aðeins tvö lög; - tvo negra- sálma, og skilaði með stakri prýði. Bergþóra Jónsdóttir Frábær Flóru- kór TONLIST R á ð h ú s R e y k j a v í k 11 r NORRÆNT KVENNAKÓRAMÓT Florakören frá Háskólanum í Ábo í Finnlandi söng norræn lög; stjórnandi Ulf Lángbacka. Laugardagskvöld kl. 20.30. Á FÖSTUDAGSKVÖLDIÐ söng Florakören frá Ábo í Finnlandi tvö lög á kvennakóratónleikunum í Ými. Það var greinilega nóg til að kveikja í mörgum til að koma og hlusta á heila tónleika með þessum skínandi góða kór á laugardag- skvöld. Ef það er hægt að lýsa töfr- um þessa kórs í einu orði, þá er verður það sköpunargleðin sem verður fyrir valinu. Verkefnavalið hlýtur að skrifast á ábyrgð kór- stjórans, Ulfs Lángbacka, og það er frábærlega saman sett blanda af gömlu og nýju; tónlist sem samin er fyrir kvennakóra, og jafnvel fyrir akkúrat þennan kór, og þjóðlögum og eldri tónlist í góðum útsetning- um. Kórstjórinn býr greinilega yfir mikilli hugmyndaauðgi og öllum göldrum er beitt til að ná fram því ríkasta og auðugasta í söngblæ sem ég minnist að hafa heyrt. Litróf kórhljómsins er ótrúlega mikið og margslungið. Þar þjónar hljómur- inn tónlistinni fyrst og fremst. Hljómmikill höfuðtónn er ekki alltaf það sem gildir, og stundum er gróf- ur og breiður brjósttónn það sem þjónar tónlistinni best. Það virðist heldur ekki vera neinn ótti við að experimenta í þessum fína kór; bæði raddlega, músíkalskt og á ann- an hátt. Ég veit ekki hvort framleg- ar uppstillingar, dansspor, hreyf- ingar og jafnvel tilbrigði við macarena eru skrifuð inn í þá tón- list sem slíkt var viðhaft í, en alltént dillaði kórinn sér bæði og dansaði í nokkram laganna; allt greinilega vel æft og mótað af tónlistinni. Heppinn er Flórukórinn að því leyti að þar era margir fínir ein- söngvarar innanborðs, og fengu tónleikagestir að heyra í mörgum þeirra. Minna Nyberg söng afar fal- lega einsöng í tregaþrungnu þjóð- lagi Láksin miná kesáyöna kaymáán í útsetningu Einars Eng- lunds. Dreams eftir verðlaunatón- skáldið Erik Bergman er feikna- skemmtilegt verk, með alls kyns hljóðum og óhljóðum, og kórinn naut þess að búa til þessa mögnuðu munnhljóðafantasíu draumalands- ins. Triumph att finnas till eftir annað verðlaunatónskáld, Karin Rehnqvist, við ljóð Edith Söder- gran var ekki síður frábær tónsmíð. Þetta var sterkt og svipmikið verk þar sem styrkleikinn var byggður í kringum ögrandi ómstríður lítilla tvíunda. Laulusild við kvæði úr Kalevala var aldeilis frábært með tígulegri kóreógrafíu. Finnsku þjóð- löginn sem Flórakórinn söng vora flest útsett af Jenny Wilhelms og vora stórkostlega flutt. Jenny þessi útsetti líka fyrir kórinn íslenska Hjaðningarímu, þar sem einkenni íslenska þjóðlagsins, taktskipti og tvísöngur, voru nýtt, en á allt öðra vísi hátt en nokkru íslensku tón- skáldi hefur hingað til dottið í hug að gera. Tónleikum Flórakórsins lauk með Finlandiasálminum. Það væri gaman að fá að heyra einhvern tíma aftur í þessum skemmtilega kór. Ulf Lángbacka er greinilega frábær kórstjóri, sem kann lagið á að vinna með ungu fólki, og hefur þor til að bjóða upp á nýja, flotta og forvitnilega tónlist og sitthvað fleira í mjög svo óhefðbundnum búningi. Þetta var frábær skemmtun. Bergþóra Jónsdóttir
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.