Morgunblaðið - 03.05.2000, Síða 40

Morgunblaðið - 03.05.2000, Síða 40
40 MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Reuters Keisarakommóða aftur á sinn stað BARBARA Mundt, forstöðumaður lista- og hand- höfðu á brott með sér frá Rússlandi í seinni heimsstyrj- verkssafnsins í Berlín, og forvörðurinn Hans-Wemer öld. Gripnum, sem tilheyrði keisarafjölskyldunni á sín- Pape standa við forláta kommóðu sem þýskir hermenn um tírna, var skilað til Rússlands um helgina. Hollywood afgreiðsla hjúskap- arrauna Spænsk g-ítar- tónlist á Siglufírði PÉTUR Jón- asson gítar- leikari heldur tónleika í sal Tónlistarskól- ans á Siglu- firði í kvöld, miðvikudags- kvöld, kl. 20:30. Á tónleik- unum mun Pétur leika spænska gítartónlist eftir Francisco Tárrega, Isaac Alb- éniz og Manuel de Falla, en einnig íslensk verk sem samin hafa verið sérstaklega fyrir hann af Atla Heimi Sveins- syni og Eyþóri Þorlákssyni. Pétur Jónasson nam gítar- leik hjá Eyþóri Þorlákssyni og var síðar við framhalds- nám í Mexíkó og á Spáni. Einnig hefur hann sótt al- þjóðleg námskeið, m.a. hjá Ándrés Segovia í Los Angel- es. Hann hefur haldið ein- leikstónleika í á þriðja tug landa, leikið í útvarpi, sjón- varpi og á geisladiskum. Pét- ur hlaut heiðursstyrk úr Sonning-sjóðnum í Kaup- mannahöfn og var tilnefndur til Tónlistarverðlauna Norð- urlandaráðs árið 1990. Tónleikarnir eru á vegum Tónlistarfélags Siglufjarðar og styrktir af Félagi ís- lenskra tónlistarmanna og menntamálaráðuneytinu. Listsýning í Digranes- kirkju í DIGRANESKIRKJU verður opn- uð listsýning í tilefni afkristnitöku- hátíð í dag, miðvikudag, kl. 15. Sýn- ingin er í samstarfi við Dvöl, heimili Rauða krossins fyrir geðfatlaða í Kópavogi. Á sýningunni verða ýmsir listmunir, leirlist og málverk. Sýningin er opin á opnunartíma kirkjunnar, þriðjudaga til fostudaga milli kl. 9 og 17 og á sunnudögum kl. 11-13. Sýningin stendur út maímán- uð. TOJVLIST Hallgrfmskirkja KÓRTÓNLEIKAR Helgisöngvar úr Codex Calixtinus í konsertútfærslu Damiens Pois- blauds. Einsöngvarar: Damien Poisblaud, Christian Barrier, Marcin Bornus-Szczyncinski, Robert Pozarski, Frédéric Richard og Frédéric Tavemier. Karlakór- inn Fóstbræður (a'fingarstj. Ámi Harðarson). Stjórnandi: Damien Poisblaud. Laugardaginn 29. apríl kl. 16. GÍFURLEG aðsókn var að tón- leikum Menningarborgar 2000 á laugardaginn var og Hallgrímskirkja bókstaflega full út að dyrum. Kom það manni óneitanlega á óvart, og margir hljóta að hafa spurt sig sömu spurningar og undirritaður hvort skyldi vega þyngra, útbreiddur áhugi á fomri helgitónlist eða máttur auglýsinga. Viðfangsefnið virtist í fljótu bragði ekki það aðlöðunarvænt að jafna mætti við vinsældir popp- skurðgoða eða skagfirzkra karla- kóra, en hafi aðstreymið verið raun- hæf vísbending um almennt tilhöfðunargildi fomtónlistar á Is- landi ættu hérlendir iðkendur henn- KVIKMYIVDIR II í« b o r g i n, B í« h ö 11 i n THE STORY OF US 'h Leikstjóri Rob Reiner. Hand- ritshöfundar Alan Zweibel, Jessie Nelson. Tónskáld Eric Clapton, Mark Shaiman. Kvikmyndatöku- sljóri Michael Chapman. Aðal- leikendur Bruce Wilis, Michelle Pfeiffer. Lengd 95 mín. Framleið- andi Wamer Bros. Árgerð 1999. TITLARNIR koma upp á tjaldið. Orðin í nafninu birtast, eitt og eitt í einu, undir tregafullri tónlist Clapt- ons. The Story of Us. Stafimir U og s fjalægjast síðan hægt en ákveðið hvor annan. Maðui' verður örlítið snortinn, þetta er vel gert og tónninn settur í kvikmynd sem maður kann- ast ekkert við, þrátt fyrir stórstjöm- urnar. Þetta er greinilega upphaf hjúskapardrama þó Willis passi ekki alveg inn í myndina. Því miður, þar með er áhugaverða kafla The Story of Us lokið, og sjálf- sagt farið framhjá flestum. Það sem tekur við er hörmulegasta upplifun sem hægt er að komast í í kvik- myndahúsi. Myndin segir frá vissu- lega vandmeðfomu, alþekktu ástandi; hjúskaparvandamálum fólks ar að geta horft glaðir fram á veg. Tónleikamir vora samstarfsverk- efni evrópsku menningarborganna, og var að sögn tónleikaskrár um að ræða heimsframflutning á saman- tekt franska söngvarans, kórstjór- ans og fræðimannsins Damiens Pois- blauds á söngvum úr 12. aldar handritinu Codex Calixtinus. Verða þeir síðan endurfluttir í hinum menningarborgunum með sömu sex sólistum en með þátttöku karlakórs frá hverjum stað fyrir sig. Til marks um metnað og viðhöfn voru tónleik- amir jafnframt hljóðritaðir til út- vörpunar, auk þess sem veglegur bæklingur með textum á latínu og ensku úr umræddu miðaldahandriti auk fjölda litmynda var á boðstólum. Því miður var tónlistin ekki að öllu leyti flutt í sömu röð og fram kom af bæklingstexta, og fréttist á skot- spónum, að endanleg tónleikaskrá þar að lútandi hefði ekki náð úr prentun í tæka tíð. Helgisöngvahandritið Codex Cal- ixtinus, kennt við Calixtus páfa II sem uppi var á skráningartíma þess á miðri 12. öld, er varðveitt í Jak- obskirkju í Santiago de Compostela sem er komið yfir kúrfuna og farið að endurmeta lífið. Ben (Brace Will- is) og Katie Jordan (Michelle Pfeiff- er), era um miðjan aldur, 15 sambýl- isár að baki. Bömin að verða stór, eldheitar tilfinningar sokkabandsár- anna langt að baki. Þá myndast gjarnan tímabundið tómarúm ef fólk uggir ekki að sér, það þarf að brúa en það er ekki heil brú í þessu hand- riti. Fólk er að eldast og yfirleitt þroskast, svo er ekki farið með aðal- persónumar í The Story of Us. Það sem við blasir era svo illa skrifaðar persónur að þær verða óþolandi teiknimyndafígúrur án tilfinninga, gjörsamlega steingeldar hvað snert- ir allt sem nefnist mannleg sam- skipti. Látin arga og garga hvort á annað, hvergi örlar á vitrænum tjáskiptum. (Hvar haldið þið að pabbinn vilji tilkynna börnunum frá þeirri sorglegu niðurstöðu að þau séu að skilja? Á uppáhaldsveitinga- húsinu þeirra, Flest annað eftir því.) Þau era ekki að vaxa hvort frá öðra í á Spáni og mun skv. fróðlegri tón- skrárgrein hafa stuðlað að því að festa staðinn í sessi sem hinn þriðja helgasta í kristni eftir Jerúsalem og Rómaborg, enda sóttu þangað marg- ir pílagrímar einkum á 12. og 13. öld, m.a. frá íslandi. í vestrænni tónlist- arsögu er handritið talið meðal merkustu heimilda frá 12. öld og hef- ur auk einraddaðra laga að geyma nokkur elztu dæmi um tvíraddað organum af „melismatískri" gerð, þ.e. með mörgum tónum á hvert textaatkvæði. Ekki ósvipaðan stíl má finna í samtíma handritum St. Marti- al-klaustursins í Limoges á S-Frakk- landi, enda talið sennilegt að náinn samgangur hafi verið þar á milli, og jafnvel við fyrirrennara Notre Dame-skólans í París. Calixtinus- handritið var til skamms tíma einnig frægt fyrir elzta dæmi um nóteraða þríröddun, „Congaudeant catholici" í Benidicamus-þættinum, þótt nú sé líklegra talið að víxlröddin við aðal- röddina (báðar „syllabískar" eða með 1 nótu á atkvæði og fyrir neðan org- anum-röddina) sé hugsuð sem stað- gengill aðalraddar. Um það er þó örðugt úr að skera. Áheyrendur þessari meðhöndlun heldur öskra. Við fáum enga haldbæra ástæðu fyr- ir því hvers vegna hjónabandið end- aði í þessu víti, frekar en að rifrildis- efnin eru aldrei athyglisverð né málefnaleg. Einsog hjónin koma fyrir frá hönd- um Zweibels, Nelsons og Reiners, þá er þetta treggáfað fólk, ótrúverðugt og verður, sjálfsagt óvart, gjörsam- lega óþolandi rakkarapakk sem allir sniðgengu í raunveraleikanum og skipta mann engu máli á tjaldinu. Efnið minnir örlítið á Ameríska feg- urð; karlamir kenna konunum um hvemig málum er komið. „Hvar er stúlkan sem setti á sig lampaskerm- inn,“ segir Ben. „Hvar er stúlkan sem hljóp nakin eftir þakinu,“ eitt- hvað á þessa leið segir Lester Bum- ham (Kevin Spacey), og höfða báðir til atvika, skemmtilegra minninga þegar spúsur þeirra vora kátar, hressar og heillandi. Þar með er sam- líkingum lokið því Amerísk fegurð var besta mynd síðasta árs, þessi sú fengu hér að heyra þrírödduðu út- gáfuna, og hljómaði hún vissulega nógu vel til að koma til greina. Samantekt Poisblauds, eða „Missa Sancti Jacobi“ eins og kölluð var á sérblaði, var ekki samfelld messu- gjörð, enda heilstæðar messur óvíða varðveittar í tónum frá svo fomum tíma; t.a.m. var ekkert Credo. Þætt- imir vora teknir héðan og þaðan úr handritinu og fyrst og fremst hugs- aðir til konsertflutnings. Það sem áheyrendur fengu að heyra var því fremur e.k. sýnishorn eða meðaltai úr ýmiss konar helgihaldi án talaðs texta, en hvert atriði um sig aftur á móti sungið líkt og vænta má að tíðk- azt hafi fyrram, að svo miklu leyti sem ráðið verður 8 öldum síðar af frumstæðri nótasjón hámiðalda. Sem kunnugt er mun vandi túlk- enda á elztu skráðu tónlist Vestur- landa ekki sízt fólgin í að rata á rétta hrynjandi. Nótasjón fram að 14. öld var „ómæld" - lengdargildi nótna kemur ekki fram - og verður því helzt að styðjast við hljómfall söng- textans, sem oftast má sjá af bundnu máli. Fróðlegt hefði verið að fá ein- hverja frekari innsýn í nálgunarað- Nýjar piötur • TYRKLAND - lagasafnið 7 er með 16 lögum eftir ýmsa höfunda. Platan er til styrktar munaðarlaus- um börnum í Tyrklandi vegna jarð- skjálfta sem dundu yfir Tyrkland í ágúst í fyrra. Tyrkneski Rauði hálf- máninn kom á föt búðum fyrir þessi börn þar sem hlúð er að þeim og þeim gert kleift að halda áfram skólagöngu. Þröstur Sigtryggsson, fyrrverandi skipherra hjá Landhelgisgæslunni, hefui- samið þrjú laganna. Auk hans eiga lög Arni Brynjólfsson, bóndi á Vöðlum í Onundarffrði, Christian Whitefield Didier, Kristófer Kiistó- fersson, Þröstur Sigtryggsson, Sæ- vai' Ái’nason, Jósep Gíslason, Kol- beinn Þorsteinsson, Gylfi Ægisson, Kristján Blöndal, Alsæla og hljóm- sveitin Gyllinæði. Textahöfundar era Christian Whitefield Didier, Guðrún Sigurgeirsdóttir, Gylfi Ægisson, Sævar Amason, Kristján Hreinsson, Kolbeinn Þorsteinsson, Árni Bi-ynj- ólfsson, Kristján Jónsson, Torfi Olafsson, Oskar Þór, Tómas Guð- mundsson og hljómveitin Gyllinæði. Útgefandi erStöðin ehf. en Skífan sér um dreifíngu. Gutenberg prent- aðiplötubækling. Laga- ogljóðahöf- undargefa vinnu sína sem ogaðrir er unnu að plötunni. Hagnaðuraf sölunni rénnur óskiptur til Rauða kross Islands. versta sem ég hef séð til þessa. Veldur hver á heldur. Sú var tíðin að Rob Reiner gerði úrvalsmyndir, það bólar hvergi á manninum sem gerði This is Spinal Tap, Stand By Me og When Harry Met Sally. Ná- unginn sem skapaði North og The Ghosts of Mississippi, virðist sestur að þriflegum búk Reiners. Sá er ekki áhugaverður. Það er ekki við Willis að sakast, þó Ben sé ekki sú manngerð sem hann skilar best. Pfeiffer er mistæk og á, ásamt handritshöfundinum, sterk- astan þátt í að gera versta kafla vondrar myndar, lokaatriðið, gjör- samlega óþolandi. Svo væmið og veraleikafirrt að Óskarsáfall Gwyn- eth Paltrow er heillandi í saman- burði. Þarna toppar Hollywood öll fyrri met í óraunsæi og andleysu og er það mikið sagt. Aukahlutverkin era ægilega mönnuð (Tim Matheson er enn á meðal vor), og jafnvand- ræðaleg og illa skrifuð. Vinkonur Katie, einkum Rita Wilson sem eig- inkona Stans (Reiner), bæta gráu of- an á svart í framsögn og túlkun. Þeg- ar svo handritshöfundar hugðust hressa upp á verkið sitt með vísvit- andi óþolandi persónum (hjónin í Feneyjum), horfði undirr. löngunar- augum á næstu útgönguleið. Fyrir hvern er þetta gert? Sæbjörn Valdimarsson ferð stjómandans í tónleikaskrá, en því var ekki að heilsa. I staðinn mætti segja að heyrn væri sögu rík- ari, því margt verkaði afar sannfær- andi í röggsömum söng einsöngvar- anna, sem var opnari og ferskari en menn hafa átt að venjast hjá slétt- róma miðaldatúlkendum á borð við Paul Hillier og The Gothic voices. Gilti þar augljóslega svipað og með „upprunatúlkun" barokk-flytjenda, að öllu veldur hver á heldur. Því eldri tónlist, því fleiri túlkunarleiðir; eng- inn fræðimaður lumar hvort eð er á lokasvari, og ómúsíkölsk tjáning fell- ur æ um sjálfa sig, sama hversu mik- ið rýnt er á milli lína í fornheimild- um. Með ofangreindum fyrirvara um uppranaleika var mikU og sérstæð reynsla að lifa sig inn í löngu liðinn tónheim, sem landar og samtíma- menn Ara fróða og Hvamm-Sturlu hafa sumir fengið að heyra í suðurför til borgar heilags Jakobs. Hér fór loksins tónlist sem hentar Hall- grímskirkju vel. Flutningur allra var að flestu leyti hrífandi og að öllu örðulaus, og voldugur einradda- hljómur hinna kuflklæddu Fóst- bræðra í kórinnslögum var ekki sízt meðverkandi tU að festa viðburðinn í minni sem einn af hápunktum menn- ingarborgarársins. Ríkarður Ö. Pálsson Pétur Jónas- son gítar- lcikari A vit Jakobs postula
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.