Morgunblaðið - 03.05.2000, Qupperneq 50

Morgunblaðið - 03.05.2000, Qupperneq 50
50 MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR JÓNA KRISTÍN . HARALDSDÓTTIR + Jóna Kristúi Haraldsdóttír fæddist í Reykjavík 19. október 1937. Hún lést á gjörgæsludeild Landspítalans 25. apríl síðastliðinn. For- eldrar hennar voru þau hjónin Laufey Guðmundsdóttir, hús- móðir, og Haraldur Ingvarsson, bifreiðar- sljóri. Jóna eignaðist eina systur sem lést um þriggja mánaða aldur. Uppeldissystír Jónu er Guðmunda Lilja Sigvalda- dóttir, f. 10. janúar 1933, húsfreyja í Reykjavík. Eiginmaður hennar var Sverrir Sigurðsson. Börn Guð- mundu eru Lóa Guðný, f. 1954, og Margrét Ingibjörg, f. 1958. Fyrri maður Jónu var Gunnar Geirsson, tæknifræðingur, f. 18. desember 1934. Foreldrar hans voru Geir Egill Benediktsson og Sigríður Guðríður Gottskálksdótt- ir. Börn þeirra eru: 1) Sigríður Gunnarsdóttir, kenn- ari, f. 5.4. 1955, maki Stefán Hallgrímsson. Börn þeirra eru Hall- grímur, f. 9.12. 1996 og Laufey, f. 11.2. 1999. 2) Haraldur Gunnarsson, við- skiptaftæðingur, f. 20.9.1960, maki Ingi- björg Gísladóttír. Böm þeirra em Ingv- ar, f. 30.10. 1991 og Sigurður Þór, f. 2.2. 1995. Hinn 31.12. 1974 giftíst Jóna eftírlifandi eiginmanni sínum, Krisfjáni Vemharðssyni, vélstjóra, f. 7. febrúar 1936. For- eldrar hans vom Vemharður Kristjánsson og Nanna Magnús- dóttir. Lengsta starfsævi vann hún við verslunarstörf en síðari ári starfaði hún í mötuneyti við Borgartún 6. Útför Jónu fer fram frá Fossvog- skirlqu í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Fyrir íimm vikum fengum við þá vsorgarfrétt að mamma hefði greinst með lungnakrabbamein sem yrði erf- itt að lækna. Mamma tók þessari nið- urstöðu með reisn eins og henni var líkt. Mamma ákvað strax að láta ekki í minni pokann átakalaust. Hún sló oft á létta strengi og gerði grín að sjálfri sér. Hún sagði t.d. að það væri gott að hún hefði nú misst nokkur aukakíló. Baráttuvilji mömmu kom vel í ljós í þessum veikindum, hún kvartaði sjaldan. Hún hafði meiri áhyggjur af mér þegar ég var að aðstoða hana við að komast í lyfjameðferðina en henni ^íjálfri. Hún tók það aldrei í mál að ég labbaði með henni upp á þriðju hæð þegar komið var heim í Grýtubakk- ann þó að hún hafi átt h'tíð þrek eftir. Mamma var einstök kona sem hugsaði betur um aðra en sjálfa sig. Mamma hafði alla tið gaman af að hafa böm í kringum sig og veitti það henni mikla ánægju að geta glatt böm. Sælgætisskálamar á Grýtu- bakkanum hafa verið vinsælar hjá bömunum sem hafa heimsótt mömmu í gegnum tíðina. Þau em mörg bömin sem hafa verið á jóla- gjafalistanum hennar. Það var því mömmu mikil ánægjustund þegar fyrsta bama- bamið, hann Ingvar, fæddist íyrir Ææplega níu ámm. Mamma gerði allt sem hún gat fyrir bamabömin sín, Ingvar, Sigurð Þór, Hallgrím og Lau- feyju. Þegar um böm var að ræða þá var orðið nei ekki til í orðaforða OSWALDS simi 551 3485 I ÞJÓNUSTA ALLAN I SÓLARHRINGINN I AI»AI S IUi ! f iB ® !<)f íir VKIAVH' Dítvið Inger Útfitntvstj. I 'tjimtvstj. Ólíftir l 'tfiintistj. IIK'KISTl'Vf NNIJSTOFA HYVINDAR ÁKNASONAR mömmu. Það gladdi mömmu mikið þegar ég ákvað að fara í háskólanám eftir að stúdentsprófi lauk. Þó að við spjölluðum ekki mikið um námið gerði hún allt til að mér liði sem best heima meðan á náminu stóð. Ég hef oft sagt við vini mína að ég hafði búið á fimm stjömu hóteli í Grýtubakkan- um. Mömmu fannst einstaklega gam- an að halda matarboð eða veislur. Þær era ófáar afmælis- og fermingar- veislumar þar sem mamma kom að skipulagingu skreytinga og matar- gerðar. Margir af vinum mömmu hafa oft sagt að það væri ekki hægt að halda veislu nema að Jóna væri höfð með í ráðum. Ég veit að mamma er komin á stað þar sem hún verður látin hugsa betur um sjálfa sig en hún hefur gert núna síðari ár. Minning þín mun alltaf lifa innra með mér, elsku mamma. Þinn sonur Haraldur. Ástkær tengdamóðir mín, Jóna Kristín Haraldsdóttir, er nú látin eftir stutta baráttu við erfiðan sjúkdóm. Þá baráttu háði hún eins og allt það sem hún hefur tekist á við í lífinu; með reisn og án þess að missa móðinn. Hún Jóna kvartaði aldrei, hvort sem hún bjó við litlar tekjur, heilsuleysi eða stóð frammi íýrir öðram erfiðleik- um í lífinu. Ef eitthvað bjátaði á hélt hún þvf íyrir sig og vildi ekki íþyngja öðram með sínum vandamálum. Ef hins vegar var hægt að veita öðrum hjálparhönd mætti hún fyrst og fór síðust. Þau vora ófá skiptin sem hún kom til okkar til að létta und- ir á hvem þann hátt sem hún gat. Kæmi hún til að passa litlu drengina Gróðrarstöðin ® ^0 0^ micm ♦ Hús blómanna Blómaskreytingar við öll tækifæri. Dalveg 32 Kópavogi sími: 564 2480 Sérfræðingar — í blómaskreytingum við öll tækifæri Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími 551 9090. okkar þá var líka búið að þrífa húsið þegar við komum heim. Stæði til að þeir færa í næturpössun hjá henni og Dadda fannst þeim sjálfsagt að koma til okkar til að sækja þá og þá gjaman tveimur tímum áður en þess gerðist þörf svo við hefðum góðan tíma fyrir okkur. Væram við að undirbúa veislu var hún mjög ráðagóð og hugsaði fyrir öllum þáttum og með hennar hjálp var fljótlegt að koma heimilinu í veislubúning. Þá var ekkert hálfkák á hlutunum. Hún hafði yndi af veisluhöldum og var sérstaklega góður kokkur og rausnarlegur gestgjafi. Hún veitti vel og passaði að öllum liði vel. Jólin vora hennar uppáhalds- tími og þá fengu margir að njóta ör- lætis hennar - jafnt bömin sem bjuggu í nágrenninu sem og skyld- menni. Jóna hugsaði um heimilið af mikilli alúð og þar leið henni vel. Hún hafði ekki mikla þörf fyrir ferðalög eða þátttöku í félagslífi. Hennar stolt í líf- inu vora bömin og bamabömin sem hún gekk ávallt með myndir af í vesk- inu. Enda mátti hún vera stolt af því að hafa komið bömum sínum tO mennta þrátt fyrir oft og tíðum bág kjör á uppvaxtartíma þeirra. Elsku Jóna mín, þú fórst frá okkur alltof snemma. Það er svo margt sem ég hefði vdjað gera fyrir þig. En nú er það orðið of seint. Ég fæ ekki tæki- færi tíl að endurgjalda þér aUt sem þú gerðirfyrirmig. Ég mun hinsvegar reyna að fremsta megni að passa uppá það sem var þér dýrmætast í þessu lífi; ijöl- skylduna. Ég mun líka passa að minn- ingin um hlýjuna og góðvOd þína varðveitist í brjóstum drengjanna minna. Þín tengdadóttir Inga. Þetta era nokkur kveðjuorð til hennar Jónu vinkonu minnar sem ég hef þekkt síðan við voram 5 ára gaml- ar og þjuggum á Kárastígnum. Vinskapur okkar hélst öll þessi ár þótt ég byggi í Bandaríkjunum frá því að við voram 19 ára gamlar. Alltaf vora send jóla- og afmæUskort, svo að ég tali nú ekki um móttökumar sem ég fékk þegar ég kom heim tíl íslands öll þessi ár. Jóna var í nokkur ár einstæð móðir með bömin sín tvö, Siggu og HaUa, sem vora stolt hennar og gleði, og hafði hún mikinn metnað fyrir þeirra hönd. Og síðan komu tengdabömin og bamabömin sem veittu henni einnig mikla gleði. Jóna giftist eftirlifandi eiginmanni sínum og félaga, Kristjáni Vem- harðssyni, fyrir 25 áram. Það var mér og manni mínum heitnum Poul, til mikUlar ánægju að Jóna og Kristján heimsóttu okkur í Westboro, Massa- chusetts, árið 1986. Nú er ég að nokkra leyti flutt heim eftir 44 ár erlendis en þá kveður hún Jóna mín, en hún gleymist ekki okkur sem eftir Ufum. ■ Lára G. Nielsen. + Ólöf Einarsdúttir fæddist á Merkin- esi í Höfnum 8. núv- ember 1905, en flutt- ist með fjölskyldu sinni til Hafnarijarð- ar á fyrsta ári, þar sem hún úlst upp. Hún lést 21. apríl síð- astliðinn. Ólöf var yngst fimm barna hjúnanna Rannveigar Mar- teinsdúttur og Einars Þúrðarsonar. Systk- ini hennar voru Mar- teinn, Guðbjörg, Þúrður og Guðríður. Hinn 21. desember 1934 giftist hún Júnasi Lárussyni, f. 2. júni Ég kynntist tengdamóður minni sumarið 1961, þegar dóttir hennar og ég vorum farin að draga okkur saman. Við vorum bæði við nám í Danmörku þar sem við kynntumst og vorum í sumarfríi á Fróni. Mér varð strax hlýtt til þessarar smá- vöxnu, fíngerðu og laglegu konu. Ef til vill var það glaðværð henn- ar, jafnlyndi og einstaklega hlýlegt viðmót sem heillaði mig. Ég sá hana aldrei skipta skapi, aldrei verða reiða. Hún tók öllu og öllum vel. Hún hafði svo góð áhrif á allt og alla, allt varð fagurt í kringum hana. Ólöf lifði langa og farsæla ævi, en á fyrri áratugum þessarar aldar hafði fólk ekki úr miklu að spila og lærði hún af því hagsýni og nýtni sem hún bjó að alla tíð. Guð gaf henni góða heilsu sem entist henni í níutíu ár. Hún hreyfði sig mikið og hreyfði sig hratt. Gekk rösklega og hljóp upp tröppurnar í Stangarholtinu komin á níræðisaldurinn. Mér er minnis- stætt þegar dóttir hennar náði henni ekki á götu því að tengda- mamma, þá á áttræðisaldri, gekk svo hratt. Það var gott að koma í Stangar- holtið með drengina okkar, því amma tók ávallt vel á móti þeim og hændust þeir að henni. Hún var líka reiðubúin að geyma þá fyrir okkur í lengri eða skemmri tíma og aldrei man ég eftir því að þeir hafi mótmælt því. En allt tekur enda. Fyrir um það bil tveimur árum gaf hin góða heilsa sig og gat Ólöf ekki dvalist á heimili sínu eftir það. Hún fluttist að Vífilsstöðum þar sem hún hlaut frábæra umönnun hins góða starfsfólks sem þar er. Þar dvaldi hún ásamt eiginmanni sínum, þar til hún andaðist á föstudaginn langa. Þetta eru erfiðir dagar fyrir tengdapabba, því eins og hann sagði við fráfall konu sinnar: „Hafi 1907. Dætur þeirra: 1) Ragnhildur, f. 3. júlí 1936, d. 25. sept- ember 1997, barn: Ólöf Margrét. 2) Rannveig, f. 14. des- ember 1939, maki: Trygve Fagerás. Börn: Kolbjörn, Sunniva, Ingunn Edda og Trygve Brynjar. 3) Lára, f. 11. júní 1942, maki: Birgir Karel Johns- son. Börn: John Kar- el, Andri Hlynur og Heimir Arnar. Útför Ólafar fer fram frá Há- tcigskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. maður átt eitthvað sem manni er kært, er missirinn mikill." Megi góður Guð blessa hann og gefa honum styrk í sorg hans. Birgir Karel Johnsson. Mig langar til með nokkrum fá- tæklegum orðum að minnast Ól- afar Einarsdóttur, sem lést hinn 21. apríl sl. á 95. aldursári sínu. Ég er búin að þekkja Ólöfu og vera í næstu nálægð hennar um hálfrar aldar skeið og á henni svo óendanlega margt að þakka. Það er vissulega Guðs blessun að fá að kynnast gegnum góðu fólki strax í æsku sinni, svo ekki sé talað um að fá að lifa með því öll uppvaxtar- og fullorðinsár sín, hlusta á það, læra af því og leitast við að líkja eftir því. Ólöf var mín Guðs bless- un og holdgervingur þess besta, sem prýddi hina margrómuðu aldamótakynslóð, í dugnaði sínum, æðruleysi, trúmennsku, heiðar- leika, nægjusemi og elsku við ná- ungann. Fjölskylda mín og þau Ólöf, Jónas og dætur þeirra, þær Hilda, Nanný og Lára, urðu næstu nágr- annar rétt upp úr 1950. í minningu minni frá þessum árum á ég erfitt með að greina hvar atburðirnir gerðust. Var það heima hjá Nanný eða heima hjá mér? Heimilishald Ólafar og dætr- anna var að því leytinu sérstakt, að Jónas, sem veikst hafði af berklum nokkrum árum áður, varð, vegna sjúkdóms síns, alla tíð síðan fastur heimilismaður að Víf- ilstöðum, en fékk að vera með fjöl- skyldu sinni um helgar. Þegar yngsta dóttirin var komin af hönd- um, fór Ólöf út á vinnumarkaðinn, til þess að létta undir með heimil- ishaldinu og hóf að vinna hjá ísa- foldarprentsmiðju og Morgunblað- inu og vann þar um 30 ára skeið, hvort sem var að nóttu eða degi. Það er alveg aðdáunarvert, hversu vel Ólöfu tókst hlutverk sitt sem móðir og fyrirvinna. Heimilið var mjög snyrtilegt og húsbragur allur ljúfur og elskulegur, góður ilmur úr eldhúsi, en Ólöf var listakokkur og bjó til góðan mat og bakaði áv- allt allt til heimilisins. Mér eru sérstaklega minnisstæðar pönnu- kökurnar hennar, sem voru engum líkar. Dætur mínar nutu þess líka á afmælum sínum í bernsku að fá sendan hlaða af nýbökuðum pönnukökum frá Ólöfu. Eigi hún kærar þakkir fyrir þá hugulsemi, eins og margt, margt annað, sem hún sýndi mér og mínum. Ólöf var fríð kona með blíðan svip, fremur lágvaxin en rösk í hreyfingum, ávallt snyrtilega klædd, hvort sem var hvunndags eða á helgum dögum. Hún var hamingjusöm í einkalífi sínu og undi glöð við sitt, eignaðist þrjár góðar dætur, tengdasyni, átta barnabörn og fjögur barnabarna- börn. Ég þakka Ólöfu samfylgdina og votta eftirlifandi aðstandendum innilega samúð mína og fjölskyldu minnar. Blessuð sé minning henn- ar. Birting afmælis- og minningargreina MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birting- ar endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangs- stræti 1, Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/sendanda fylgi. Um hvern látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skfrnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar eru birtar af- mælisfréttir ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi út- prentuninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa sem í daglegu tali eru nefndar DOS-textaskrár. Þá eru ritvinnslukerfin Word og Wordperfect einnig auðveld í úrvinnslu. ÓLÖF EINARSDÓTTIR Ása Hanna.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.