Morgunblaðið - 03.05.2000, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 03.05.2000, Qupperneq 52
52 MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Elskulegur eiginmaður, faðir, sonur, bróðir, tengdasonur og mágur, BALDUR BALDURSSON, Klapparstfg 10, Njarðvík, lést af slysförum sunnudaginn 30. apríl. Iða Brá Vilhjálmsdóttir, Bergný Th. Baldursdóttir, Anna Guðmundsdóttir, Harpa J. Möller, Vilhjálmur Þorsteinsson, Sigurbergur Baldursson, Oddný Baldursdóttir, Bára Baldursdóttir, Ómar Baldursson, Ásta Baldursdóttir, Smári Baldursson, Sigurður Ingóifsson, Stefanía Júlíusdóttir, Lára Leósdóttir, Stefán E. Sigurðsson, Margrét Kristinsdóttir, Svanberg Jakobsson, Bergþóra Sófusdóttir, Bassi og Mei Mei, Árni Vilhjálmsson, Marianne Maul Vilhjálmsson, Anna Katrín Sigurðardóttir, Soren Jakubsen, Bylgja Sigurðardóttir, Jesper Winther-Sorensen. + Mágkona mín, föðursystir okkar og frænka, KRISTJANA KÁRADÓTTIR, Skjólbraut 1a, áður til heimilis í Melgerði 26, Kópavogi, lést að morgni mánudagsins 1. maí. Sigríður Magnúsdóttir, Kári Stefánsson, Bjarnheiður Elfsdóttir, Björg Stefánsdóttir, Þorsteinn Steinþórsson, Ernir Kárason, Elísa Káradóttir, Sunna Þorsteinsdóttir, Sigríður Björg Þorsteinsdóttir, Steinþór Örn Þorsteinsson. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, ELÍSABET WAAGE, andaðist á hjúkrunarheimilinu Skjóli að morgni þriðjudagsins 2. maí. Fyrir hönd systkina og annarra vandamanna, Kristfn Waage, Hákon Jens Waage, Margrét S. Guðnadóttir, Elísabet Indra Ragnarsdóttir, Magnús Ragnarsson, Gunnar Emil Ragnarsson, Indriði og Inga Þórunn Waage. + Ástkær eiginmaður minn, stjúpfaðir, sonur, bróðir og mágur, GUNNLAUGUR KRISTJÁNSSON kerfisfræðingur, Laufengi 136, Reykjavík, lést á heimili sínu 30. apríl sl. Sigríður Kristjánsdóttir, Sveinn Þórir, Pétur Þór, Brynjar Ingi Helga Þórðardóttir, Anna Kristjánsdóttir, Jón H. Jónasson, Unnur Dóra Kristjánsdóttir, Þórður Kristjánsson, Tina Kristjánsson. + Móðir okkar, LÍNEY KRISTINSDÓTTIR, lést mánudaginn 1. maí. Tómas Antonsson, Sigríður Antonsdóttir, Kristinn Antonsson, Sigurlína Antonsdóttir, Auður Antonsdóttir. r HARALDUR SIGURGEIRSSON + Haraldur Sigur- geirsson fæddist á Akureyri 6. októ- ber 1915. Hann lést á Dvalarheimilinu Hlfð 15. aprfl sfðastliðinn og fór útför hans fram frá Akureyrar- kirkju 26. aprfl. Deyr fé, deyja frændur, deyrsjálfuriðsama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. Þessar ljóðlínur Hávamála komu mér í hug er ég frétti lát Haraldar Sigur- geirssonar, samstarfsmanns míns um áratuga skeið. Haraldur var af þingeysku bergi brotinn, yngstur í stórum systkina- hópi og alinn upp á miklu menning- arheimili, þar sem tónlistin skipaði heiðurssess. Hann átti alla tíð heima á Akur- eyri og var mjög fróður um bæinn, bæði menn og málefni, og er óhætt að fullyrða að Akureyri var honum einkar hjartfólginn staður. Ungur að aldri hóf Haraldur versl- unarstörf og hygg ég að flestir Akur- eyringar á þeim tíma hafi kannast við Ijúfan og lipran afgreiðslumann í Brauns-verslun, eða Giila í Braun eins og hann var þá oftast nefndur. Það var þó ekki fyrr en um það leyti, sem Brauns-verslun leið undir lok að kynni okkar Haraldar hófust. A vordögum 1957 skipuðust mál þannig á skrifstofum Akureyrarbæj- ar að undirritaður tók þar við starfi bæjargjaldkera, en því fylgdi að sjá einnig um bókhald bæjarins. Akveð- ið var að ráðinn skyldi sérstakur af- greiðslugjaldkeri, sem yrði náinn samstarfsmaður bæjargjaldkerans. Starfið var auglýst og meðal um- sækjenda var Haraldur Sigurgeirs- son. Akveðið var af bæjarstjóm að veita honum starfið. Starf sitt á bæjarskrifstofunum, sem þá voru í Landsbankahúsinu við Ráðhústorg, hóf Haraldur í maí- mánuði 1957. Ekki veit ég hvaða hugsanir bærðust í huga hins nýja starfsmanns, en í mínum huga var tilhlökkun en þó ofurlítill beygur vegna þeirra breytinga, sem í vænd- um voru. Kom hvort tveggja til að ég hafði ekki haft mannaforráð áður og hinn nýi starfsmaður var mér bæði nokkru eldri og mun lífsreyndari. Eg hygg að við höfum báðir lagt okkur fram um að vel mætti til takast og komst ég fljótt að raun um að beygur minn var með öllu ástæðulaus. Þægi- legri mann í samstarfi hefði ég vart getað kosið mér. Hann virtist hafa fullan skilning á minni stöðu og hafði til að bera mannkosti, sem mér féllu einkar vel: traustur, lipur, vandvirkur og vel skipulagður og rækti öll sín störf af einstakri samviskusemi. Samstarf okkar var- aði síðan samfleytt í 32 ár og minnist ég þess ekki að þar hafi nokk- urn tíma borið skugga á. Atti Haraldur miklar þakkir skyldar fyrir hvernig til tókst. Sakir ljúfmennsku sinnar og lipurðar ávann hann sér líka vináttu og traust starfsfólksins og viðskiptavina. Haraldur var mjög félagslyndur maður og tók þátt í margvíslegu fé- lagsstarfi. Var hann á þeim vettvangi valinn til ýmissa trúnaðarstarfa. Eftir að hann hóf störf hjá Akur- eyrarbæ var hann kosinn í stjórn Starfsmannafélags bæjarins og átti þar sæti um árabil. Utan síns fasta vinnutíma sinnti Haraldur ýmsum áhugamálum sín- um. Hann var mjög músíkalskur, svo sem hann átti kyn til. Um tíma tók hann nemendur heim til kennslu í píanóleik. Síðar tók hann sér fyrir hendur að gera upp gömul orgel m.a. gömul kirkjuorgel, sem sum hver voru mjög illa farin. Hér var um mjög þarft og gott verk að ræða, sem hann leysti af hendi af sinni alkunnu vandvirkni. Hann útbjó sér vinnuað- stöðu í þröngu plássi í kjallaranum sínum og var unun að sjá hve öllu var þar skipulega fyrir komið. Eins og áður er minnst á var Haraldur mjög fróður um menn og málefni á Akureyri og lagði sig mjög fram um að afla sér öruggra heimilda á því sviði. Leituðu margir til hans um upplýsingar. Hann var t.d. feng- inn til þess að bera kennsl á gamlar myndir frá Akureyri og semja myndatexta í hina glæsilegu og myndríku bók Steindórs Steindórs- sonar: Akureyri, höfuðborg hins bjarta norðurs, sem út kom 1993. Þá var hann einnig fenginn til að semja myndatexta í bók um Akureyri 1895- 1930 með ljósmyndum Hallgríms Einarssonar, sem út kom 1982. Skömmu fyrir andlátið heimsótti ég Harald, þar sem hann dvaldi á Dvalarheimilinu Hlíð. Fagnaði hann mér innilega og við fengum tækifæri til að rifja lítillega upp liðna tíma frá okkar sameiginlega vinnustað, þótt mjög væri hann þrotinn af kröftum. Nú þegar leiðir skilur er ég mjög þakklátur fyrir að hafa kynnst þeim góða dreng Haraldi Sigurgeirssyni. Við Sigrún sendum bömum Har- aldar, venslafólki og afkomendum svo og eftirlifandi bróður innilegar samúðarkveðjur. Valgarður Baldvinsson. Legsteinar í Lundi við Nýbýlaveg, Kópavogi Sími 564 4566 Þegar andlát ber að höndum Önnumst alla þætti útfararinnar. Við Útfararstofu kirkjugarð- anna starfa nú 14 manns með áratuga reynslu við útfaraþjónustu. Stærsta útfararþjónusta landsins með þjónustu allan sólarhringinn. m Prestur Kistulagning Kirkja Legstaður Kistur og krossar Sálmaskrá Val á tónlistafólki Kistuskreytingar Dánarvottorð Erfidrykkja UTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA EHF. Þau orð sem mér fannst eiga við um minningu Haraldar Sigurgeirs- sonar er að hann hafi verið „perfect gentleman". Öll framkoma hans og beiting raddarinnar miðaði að fágun og vandaðri framsetningu, en samt er sterkast í minningunni brosið sem oftast lék um andlit hans. Haraldur starfaði lengst af sem af- greiðslumaður í Braunsverslun og á bæjarskrifstofum Akureyrarbæjar síðustu árin. Kynni okkar Haraldar voru mest eftir að starfsvettvangur- inn var kominn heim í Spítalaveg 15, þar sem hann með elju og áhuga æskumannsins hélt áfram að starfa. Sem dæmi þá var hann sjálfmennt- aður orgelviðgerðarmaður og þó nokkrum orgelum kom hann til betri heilsu. Og sögumaður var hann góð- ur, þær eru eftirminnilegar innbæj- argöngumar sem farnar voru á veg- um Minjasafnsins á Akureyri þar sem Haraldur var með, og setti á sinn brosandi hátt ofan í og leiðrétti þegar leiðsögumanni varð á í mess- unni. En skemmtilegast var þá að fá hann til að segja sögur af löngu horfnum tíma og fólki sem þar lifði og birtist svo ljóslifandi í frásögn hans. Haraldur þoldi illa að farið væri rangt með örnefni á bæjarhlut- um Akureyrar, eins og að Búðargil væri kallað Lækjargil eftir götunni sem um það liggur, ekki vegna þess að honum þætti það ljótt nafn heldur til þess að nöfnin rugluðust ekki af vanþekkingu. Ég minnist þess ein- hverju sinni er við ræddum sögu gömlu Akureyrar að Haraldur vildi frekar láta hafa minna eftir sér en meira, til þess að hann sagði, að fara ekki með rangt mál. Minnugur með afbrigðum var hann á andlit fólks á ljósmyndum. Haraldur var einn af þeim sem lagði Minjasafninu til starfskrafta sína af ómældum áhuga við að þekkja fólk á þeim myndum safnsins sem óþekktar voiu, sú vinna verður komandi kynslóðum til góðs. Þá er að telja til sögunnar tónlist- ina í lífi hans. Hann ólst upp við að heyra föður sinn kenna á píanó flesta daga æsku sinnar sem og systkini hans. Og síðar á ævinni varð hann einn af stofnendum Tónlistarfélags Akureyrar, sem stóð fyrir tónleikum og kom síðar að stofnun Tónlistar- skóla Akureyrar. En þau augnablik er hann settist við píanóið sitt og lék ljúft lag fyrir gestinn, eru gleði- stundir sem ekki gleymast. Lífið í Spítalavegi 15 varð upp- spretta í margar sögur sem því mið- ur fara með Haraldi. Aðeins eitt ár skildi að þá Harald og Hörð, afa minn, og töldu ýmsir sem ekki þekktu til að þeir væru tvíburar á yngri árum. Hörð þekkti ég minna en Harald, enda lést hann 1978, en þeim báðum var í blóð borin hlýja og samheldni fjölskyldunnar, og sýndi Haraldur það með því að hringja í vandamenn á afmælisdögum, hvort sem þeir voru stórir eða smáir, og það sem fylgdi með í spjallinu var þessi hlýja og umhyggja sem umvef- ur mann og gerir kannski að betri manni. En nú kveðjum við þennan aldr- aða heiðursmann, saddan lífdaga og trúan á annað tilverustig. Við sem nutum návistar og vináttu hans mun- um gleðjast yfir björtu minningunni um góðan bróður. Nú er hann kom- inn til hins eilífa austurs þangað sem allir góðir menn fara. Kæru Agnes, Helga, Sigurgeir og Arnfríður, megi ljóssins faðir vaka yfir ykkur og fjölskyldum ykkar. Hörður Geirsson. Góður maður er genginn. Jarðvist er lokið og við sem eftir lifum höfum skiptar skoðanir á því hvort það sé endir alls eða upphaf nýrrar tilveru, á öðru sviði, öðru stigi. Haraldur Sigurgeirsson kvaddi saddur lífdaga. Ekki það að hann væri ósáttur við líf sitt og þráði að því lyki, heldur var hann einmitt sáttur við að lífshlaupinu, eða í hans tilfelli frekar lífsgöngunni, hér á jörðu væri að ljúka. Og í samræmi við eðli sitt og upplag bað Haraldur sína nánustu um leyfi til að fá að fara; alltaf jafn tillitssamur og mikill sjentilmaður, allt fram undir það síðasta. Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að tengjast Haraldi á ákveðnu skeiði ævinnar og sterk nærvera hans
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.