Morgunblaðið - 03.05.2000, Síða 53

Morgunblaðið - 03.05.2000, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ ________________________________MIÐVIKUDÁGUR 3. MAÍ 2Ö00 '53 MINNINGAR fylgdi mér æ síðan. Þótt ekki hafi verið mikið samband okkar á milli síðustu árin hefur mér oft orðið hugsað til Haraldar og fjölskyldu hans, einkum á jólum, og ég minnist með þakklæti hátíðlegra samveru- stunda á löngu liðnum aðfangadags- kvöldum. Ekkert hef ég enn upplifað jólalegra en samsöng jólasálma á Spítalaveginum við undirleik Har- aldar. Haraldur var músíkalskur maður og það var einnig samhljómur, „harmony“, í lífi hans og starfi. Aðrir munu verða til þess að rekja lífs- hlaup hans, starfsferil og mannkosti. Mér kom hann fyrir sjónh- sem grandvar, nákvæmur, stálheiðarleg- ur og traustur maður með þægilega nærveru. Ég minnist Hai-aldar Sigurgeirs- sonar með hlýju og virðingu og sendi fjölskyldu hans og öðrum aðstand- endum hugheilar samúðarkveðjur. Hugur minn er hjá þeim. Megi hinn hæsti höfuðsmiður himins og jarðar blessa minningu Haraldar Sigur- geirssonar. Hörður Hilmarsson. Enn einn hinna gömlu forystu- manna KA hefir nú horfið okkur sjónum. Fyrra laugardag andaðist Haraldur Sigurgeirsson, 84 ára að aldri. Hann fékk hægt andlát, sáttur við hlutskipti sitt og alla sína lífsföru- nauta. Haraldur stundaði verslunar- og skrifstofustörf hér á Akureyri í nær 6 áratugi. Fyrst 1932-56 í Brauns- verslun og síðan skrifstofu og full- trúastarf á bæjarskrifstofunum 1957-89. Hann var vandvirkur og ná- kvæmur svo að á orði var haft og lagði víða hönd á plóginn. Hann var kjörinn í sögusýningamefnd á 100 ára afmæli bæjarins árið 1962. Har- aldur var mjög fróður um sögu Akur- eyrarbæjar og í því mikla völundar- húsi sem gamlar og gulnaðai' myndir eru, var hann ratvís öðrum fremur og líklegastur að finna lausnir. Um tíma hafði hann umsjón með mynd- um og málverkum í eigu bæjarins og hélt þar öllu til haga og skrásetti ná- kvæmlega. Hann átti sæti í stjórn fé- lags verslunar- og skrifstofufólks á Akureyri og Starfsmannafélags Ak- ureyrar í 13 ár. Tónlistin var honum mjög hugleik- in, enda af landskunnri tónlistar- og ljósmyndaraætt. Sjálfur var hann góður píanóleikari og kenndi börn- um um árabil. Á efri árum naut hann þess að gera upp gömul orgel, af sömu samviskuseminni og önnur verk sem féllu honum í skaut. Hann sat 20 ár í stjórn Tónlistarfélags Ak- ureyrar og árið 1980 var hann gerður heiðursfélagi þess. Næst tónlistinni voru íþróttirnar hans hugðarefni og naut KA góðs af áhuga hans. Honum var strax ungum falið að sjá um og stjóma unglinga- deild KA en hún var stofnuð árið 1932. Hann varð með ámnum einn af máttarstólpum félagsins. Hann gegndi gjaldkerastarfi í aðalstjórn KA í 9 ár, 1938-1946, samfellt lengur en nokkur annar. Haraldur var til- nefndur, ásamt Áma Sigurðssyni, sem fulltrúi KA við stofnun ÍBA 20. des. 1944. Hann lék um hríð í knatt- spymuliði KA og var um langt árabil einn allra snarpasti tennis- og badmintonmaður bæjarins. Harald- ur var mjög áhugasamur um velferð síns gamla félags og hvatti ætíð hina ungu til dáða. A 50 ára afmæli KA, 1978, var hann kjörinn heiðursfélagi fyrir margháttuð störf og keppnir. Haraldur var kvæntur Sigríði Pál- ínu Jónsdóttur, ágætri leikkonu og söngkonu, sem hann missti árið 1993 eftir hamingjuríkt hjónaband og varð þeim þriggja barna auðið. Nú að leiðarlokum hvarflar hugur minn til margra ánægjustunda með nafna mínum, allar tenniskeppnirn- ar, myndagrúsk og fróðlegt rabb um ýmis áhugamál okkar, því víða lágu leiðir okkar saman. Hvíli hann í friði og hafi heila þökk fyrir alla vinsemd og ljúfmennsku. Stjóm KA og félagsmenn kveðja nú hinn trausta liðsmann með þakk- læti og virðingu og fjölskyldunni vottum við samúð og hluttekningu við fráfall hans. Fyi-ir hönd KA, Haraldur Sigurðsson. + Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og systir, SIGRÍÐUR BIRNA GUÐMUNDSDÓTTIR, Skeljatanga 21, Mosfellsbæ, lést á Landspítalanum Fossvogi sunnudaginn 30. apríl sl. Guðbjartur Vilhelmsson, Vilhelm Guðbjartsson, Guðmundur Örn Guðbjartsson, Eydís Erna Guðbjartsdóttir, Sigurður Guðmundsson, tengdabörn og barnabörn. + LILJA VILHJÁLMSDÓTTIR, Garðbraut 15, Garði, sem lést sunnudaginn 30. apríl, verður jarðsungin frá Útskálakirkju laugardaginn 6. mai kl. 14.00. Fyrir hönd fjölskyldunnar, dætur hinnar látnu. + Frænka okkar og mágkona mín, MÁLFRÍÐUR ÞÓRA GUÐMUNDSDÓTTIR frá Nesi, Selvogi, sem lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli fimmtudaginn 27. april, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu á morgun, fimmtudaginn 4. maí, kl. 13.30. Systkinabörn hinnar iátnu og Sigríður Einarsdóttir. + Elskulegur frændi minn, GRÉTAR DALHOFF MAGNÚSSON, sem lést á hjúkrunarheimilinu Eir aðfaranótt miðvikudagsins 26. apríl, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 4. maí kl. 13.30. Fyrir hönd aðstandenda, Björg Bjarnadóttir. + Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, ÁSTA STEINGRÍMSDÓTTIR frá Vestmannaeyjum, verður jarðsett frá Seltjarnarneskirkju í dag, miðvikudaginn 3. maí,kl. 15.00. Blóm afþökkuð, en bent er á Heimahlynningu Krabbameinsfélags íslands. Hermann Einarsson, Arnar Einarsson, Jóhann Gunnar Arnarsson, Erna M. Arnarsdóttir, Steinunn Ásta Hermannsdóttir, Sigurborg P. Hermannsdóttir, Elísa Kristín Arnarsdóttir og barnabarnabörn. Guðbjörg Ó. Jónsdóttir, Margrét Jóhannsdóttir, Kristín Ólafsdóttir, Ólafur Gylfason, Halldór D. Sigurðsson, + Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, THEODÓRA M. STELLA GRÍMSDÓTTIR, Stórholti 32, Reykjavík, sem lést á Landakotsspítala mánudaginn 24. apríl, verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 5. maí kl. 13.30. Ágústa Hjálmtýsdóttir, Hafsteinn Sigurðsson, Hjálmtýr Hafsteinsson, Stephanie Smith, Ágúst Hafsteinsson, Anna Jóhannesdóttir, Theodóra Stella Hafsteinsdóttir, Bergur Sandholt, Hafsteinn Sv. Hafsteinsson, Sigurlaug K. Jóhannsdóttir og langömmubörn. + Bróðir minn, DAGBJARTUR GUÐJÓNSSON, lést á Landspítalanum mánudaginn 1. maí. Guðjón Guðjónsson, Bollastöðum. I + Ástkær eiginmaður minn, sonur, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, STEFÁN HELGASON, Brimhólabraut 38, Vestmannaeyjum, lést á Landspitalanum í Fossvogi sunnudaginn 30. apríl sl. Útför hans fer fram frá Landakirkju í Vest- mannaeyjum laugardaginn 6. maí nk. kl. 14.00. Sigríður Bjarnadóttir, Guðrún Stefánsdóttir, Guðrún Stefánsdóttir, Arnar Sigurmundsson, Sigurbjörg Stefánsdóttir, Páll Ágústsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, EBBA AGNETA ÁKADÓTTIR, Tjarnarlundi 18a, Akureyri, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju föstu- daginn 5. maí kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Heimahlynningu. Hrafnhildur Fríða Gunnarsdóttir, Helgi Friðjónsson, Þórunn Inga Gunnarsdóttir, Garðar Hallgrímsson, Birgitte Hlín Gunnarsdóttir, Kristján Ingi Pálsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGVELDUR JAKOBÍNA GUÐMUNDSDÓTTIR, andaðist á hjúkrunarheimilinu Droplaugar- stöðum laugardaginn 29. apríl. Valur Sigurbergsson, Hólmfríður Guðjónsdóttir, Örn Sigurbergsson, Kristín Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær sonur okkar og bróðir, ARNAR SIGURÐSSON, Laugarbraut 12, Akranesi, lést fimmtudaginn 27. apríl. Útförin fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn 5. maí kl. 14.00. Sigurður Sigurðsson, Barbro Elísabeth Glad, Daníei Sigurðsson, Sara Sigurðardóttir, Marianne Sigurðardóttir. + Elskulegur sonur okkar, bróðir og mágur, ÞÓRÓLFUR ALVIN GUNNARSSON, Höfðabraut 19, Hvammstanga, verður jarðsunginn frá Hvammstangakirkju föstudaginn 5. maí kl. 14.00. Gunnar Þorvaldsson, Gréta Jósefsdóttir, Unnur Elva GunnarsdótUr, Þorrtrá—i AwW gjömsson.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.