Morgunblaðið - 03.05.2000, Side 65

Morgunblaðið - 03.05.2000, Side 65
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2000 65 UMRÆÐAN Hverjir hagnast á breyting- um á fæðingarorlofi? • ■ jreinsumn gsm 897 3634 Þrif á rimlagluggarjölcium. FRUMVARP til nýrra laga um fæðing- ar- og foreldraorlof var lagt fram á Al- þingi í lok síðustu viku og stendur til að af- greiða það með hraði á næstu dögum. Sú mikla ferð sem er á þessu frumvarpi sætir furðu, enda eru með því lagðar til svo rót- tækar breytingar að eðlilegt er að um þær yrðu einhverjar um- ræður á hinu háa þingi. Þessi málsmeð- ferð gæti þó bent til þess að málið sé við- kvæmt og verið sé að reyna að koma í veg fyrir að allar stað- reyndir málsins líti dagsins ljós. Fæðingarorlof Við skoðun á frumvarp- inu kemur í ljós, segja Sigríður Andersen og Soffía Kristín Þórðar- Soffía Kristín Þórðardóttir Sigríður Andersen dóttir, að í því felst gíf- urlegt misrétti, stór- kostlegar skatta- hækkanir og sérstak- lega umfangsmikil forsjárhyggja. Frumvarpið miðar að því að lengja fæðingarorlof, koma á greiðslum til foreldra í fæðingar- orlofí og koma á svo kölluðu for- eldraorlofi. Einnig kemur fram í greinargerð með frumvarpinu að því sé ætlað að jafna rétt foreldra til töku fæðingarorlofs. Við skoðun á frumvarpinu kemur í ljós að í því felst gífurlegt mis- rétti, stórkostlegar skattahækkanir og sérstaklega umfangsmikil for- sjárhyggja. Forsjárhyggjunni er gefinn laus taumur í skjóli svo- nefnds jafns réttar foreldra til fæð- ingarorlofs. Réttur þessi er í reynd annað og meh-a en nafnið gefur til kynna. Réttur foreldra er nefnilega lagður að jöfnu við skyldu þeirra til töku fæðingarorlofs. Hvorki er hugað að misjöfnum aðstæðum fólks né hvað það sjálft telur sér og sínum fyrir bestu. Þriggja mán- aða fæðingarorlofi mega foreldrar náðarsamlegast deila með sér að eigin hentisemi en móður verður gert að taka þrjá mánuði og föður gert að taka aðra þrjá óháð því hvort þetta hentar fjölskyldunni yfirleitt. í þessu á að felast mikið réttlæti og jafnræði. Ekki má svo gleyma jafnræðinu sem þau börn upplifa sem einungis eiga að annað foreldrið. Þau börn hafa náttúru- lega ekkert við það að gera að hafa meira samneyti við það foreldri sem þó við nýtur. Þetta kallast í greinargerðinni með frumvarpinu ,jöfn foreldraábyrgð" en er auð- vitað ekkert annað en misrétti. Eitt er þó það sem frumvarpið nær að teygja jafnt yfir alla. Stór- kostlegar skattahækkanir sem út- gjöld þau sem frumvarpið kveður á um kalla á. Mánaðarleg greiðsla í fæðingarorlofi skal vera 80% af meðaltali heildarlauna mánuðina fyrir fæðingu barns. Aætluð heild- arútgjöld vegna þessa munu vera vel á fjórða milljarð króna á hverju ári. Þessi útgjöld munu falla á alla landsmenn með aukinni skattbyrði á atvinnulífið og minni von laun- þega um launahækkanir. Hvað greiðslur í fæðingarorlofi varðar má svo hugleiða hverjum þær breytingar sem lagðar eru til þjóna helst. Ekki er gert ráð fyrir neinu þaki á bótagreiðslurnar. Bankastjóri með milljón krónur á mánuði í tekjur mun því geta feng- ið tæpar fimm milljónir út úr þess- um bótasjóði á meðan heimavinn- andi foreldri getur búist við tæpum tvö hundruð þúsundum. Athyglis- vert er að námsmönnum er ein- hverra hluta vegna gert hærra undir höfði en heimavinnandi for- eldrum en námsmönnum verður tryggð tæp hálf milljón. Getur verið að þetta frumvarp sé tilkomið vegna þrýstings frá þeim sem síst, og í raun ekkert, hafa við þennan bótarétt að gera? Lang- skólagengnu fólki sem einhveiTa hluta vegna telur svo oft að það eigi kröfu á alla aðra þegar að framfæri þeirra kemur. Það er ljóst að með frumvarpi þessu mun íslenskum bótaþegum fjölga svo, að um frekari fjölgun verður varla að ræða. Soffía Kristfn er háskólanemi og Sigríður er lögfræðingur. www.mbl.is l&í? í ftoriL$irne-<; Blóðbankinn verður með blóðsöfnun í Borgarnesi, miðvikudaginn 3. maí kl. 10-18 í húsi Björgunarsveitarinnar Brákar. Blóðgjöf er lífgjöf. fálBLÓÐBANKININ - geföu meö hjarta i BRONCO fjallahjól dömu og herra 24“-26"| DIAMOND Street dömu og herra 24"-26" | BRONCO með dempara 20” 24"-26' BRONCO Duo Shock 24‘-26' Hjólin eru afhent tilbúin til notkunar GIANT tveggja dempara samsett og stillt á fullkomnu reiðhjólaverkstæði _____I GIANT City dömu og herra___I SCOTT fjallahjól_ GIANT fjallahjól vérslið I serverslun ettir einn manuo. Vandið valið oc anoMeci viví ■eOTTU=£ EUROSTAR ÓÍAMOND DIOMOND og BRONCO barnafjallahjól | SCOTT ál með dempara Ármúla 40 Sími: 553 5320 lÁerslunin VARAHLUTIR - AUKAHLUTIR Hjálmar, bamastólar, grifflur, blikkljós, bjöllur, hraöamælar, brúsar, töskur, körfur, dempara- gafflar, hjólafestingar á bíla og margt fleira. 5% staðgreiðslu afsláttur Upplýsingar um raögreiðslur veittar í versluninni AI4RKI Verö stgr. frá kr. 20.805 11126.505 Verð stgr. frá kr. 27.455 t'1 28.405 Verð stgr. frá kr. 24.130 1,125.555 Verð stgr. kr. 29.925 Verð stgr. frá kr. 25.555 Verðstgr. frá kr. 26.505 Verð stgr. frá kr. 36.955

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.