Morgunblaðið - 03.05.2000, Side 80

Morgunblaðið - 03.05.2000, Side 80
80 MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Forvitnilegar bækur HOLLYWOO A Grcatly Expandcd and Much Improued Compcndhim of Mowie Clichés, StcrcotypcS; Obligator/ Sccncs, Hackneycd Formulas, Shopworn Convcntions and Outdated Archetypcs 36ER ERI' i Litlar stelp- ur með gleraugu “ segjasatt „The Bigger Little Book of Holly- wood Clichés" eftir Roger Ebert. Endurbætt útgáfa bókarinnar The Little Book of Hollywood Clichés. 172 bls. Virgin Publishing, London, 1999. Eymundsson, 1.595 krónur. ÞÚ sérð baðkar fullt af rjúkandi heitu vatni í bíómynd - þá veistu að einhver Á eí'tir að fara úr íotunum og fara í Dað. Það getur verið mjög gagnlegt að vita hvað gerist næst í bíómynd. Sérstaklega ef þú ert búinn að veðja við vini þína. Þú verður mjög vinsæll (eða þá mjög óvinsæll) ef þú veist allt- af hver er morðinginn, hver á eftir að deyja og hver krækir í sætu stelpuna. Ef þú kærir þig um svoleiðis vin- sældir er ráð að kíkja í þessa litlu bók. í henni er samsafn af klisjum úr heimi kvikmyndanna. Höfundurinn skrifar aðeins hluta bókarinnar, rest- in er samantekt á ábendingum ann- arra klisjuáhugamanna. Svo er þessu raðað snyrtilega í stafrófsröð - hinum ýmsu reglum sem gott er að kunna. Pulsureglan er mikilvæg: Enginn borðar meira en tvo bita af pulsu í Wómynd. Og reglurnar eru fleiri... Öll símanúmer í bíómyndum byrja á 555. Sá sem gengur afturábak í hryllings- mynd mun deyja. Litlir strákar með gleraugu segja ósatt. Ef enginn er nakinn fyrsta hálftímann þá mun enginn enginn fækka fötum í mynd- inni. Það er ágætt að vita það. Þetta er eins og að kíkja aftast í svörin og svindla. Þú gægist bak við tjöldin og kemur upp um Hollywood- brellumar. Það er samt ákveðin áhætta fólgin í því að lesa. Sumsstað- ar er gengið svo langt að ljóstra upp hvemig myndir enda og fleiri álíka óþokkabrögð er víða að fínna í bók- inni. Aukaverkanir frá lestrinum geta A->vo verið að þú hættir að horfa „eðli- lega“ á bíómynd. Þú færð klisjuveik- ina - horfír bara eftir klisjunum og gleymir að njóta myndarinnar. En allt er þetta saklaus dægradvöl. Þetta er bók sem þú lest í flugvél því hún er fín til að grípa niður í. Hún er stútfull af heimasmíðuðum kvik- myndahugtökum í bland við heimskulegar alhæfingar - sumar klisjumar æði langsóttar en oft skemmtilegri fyrir vikið. Ég fann flestar uppáhaldsklisjum- ar mínar í bókinni. Énginn kveður í •^pk símtals og allir hlaupa alltaf beint eftir götunni þegar bílar elta þá. En ég saknaði bandaríska-fána-klisjunn- ar. Fáninn, sem birtist í öllum Holly- woodmyndum um sigur mannsa- ndans, er ein fyrirsjáanlegasta klisjan. En þeim sést greinilega yfir það í Hollywood-landinu. Það þyrfti einhver að benda þeim á það. Silja Björk Baldursdóttir • • BJORTU LJOSIYARPAÐ A DISKOÆÐIÐ Dæmi um útfærslu á plötuumslögum árið 1978. Að eilífu... diskó Sumir höfundar í DAG er diskóið dáið. Dagar þess eru löngu taldir, þótt það lifl enn í döprum hjörtum. En hvað var merkilegt við diskó? Hvað var þetta diskó? Við gætum reynt að skil- greina það, og sclja það í pínulítinn flokk, sem ódýra fjöldaframleidda tónlist sem mætti svo sem hafa gam- an af. En þá værum við að gera lítið úr áhrifum þess. Diskóið var ekki bara tónlist. Diskó var Iifsstðl. Og áhrif þessa lífsstíls voru margvísleg, bæði góð og slæm. Við sem eftir lifum verðum að sætta okkur við, að það verður ekki Iitið framhjá diskóinu þegar horft er til baka og fortíðin rifjuð upp. Diskótímabilið er hluti af mann- kynssögunni hvort sem okkur líkar betur eða verr. í bókinni Saturday Night. Forever rekja höfundamir sögu diskósins og koma ansi vfða við. Diskó með eigin augum Þeir hittust fyrir tilviljun, höfund- ar bókarinnar, Alan Jones og Jussi Kantoncn. Þeir áttu ekkert sameig- inlegt - þangað til þeir áttuðu sig á þvi, að báðir elskuðu diskóið og söknuðu þess. Og þeir hófust handa við að skrifa. Það sakaði ekki að þeir komu úr ólikri átt. Áhugasvið Eng- Iendingsins Alan Jones var og er hryllingsmyndir, sem hann heldur fyrirlestra um. Finninn Jussi Kan- tonen var hinsvegar með bestu plöt- usnúðum f heimalandi sínu - dældi diskói f Ianda sfna, og var að auki meistari ársins 1979 í diskódansi. Báðir lifðu þeir og hrærðust í dis- kóheiminum, hvor á sinn hátt. Þeir skrifa út frá eigin reynslu og upplifun, en ekki sem óvirkir áhorf- endur - þeir vita hvað þeir tala um. Þeir festa hér á bók yfirgripsmikla þekkingu sína á tímabilinu. Þeir sem vom á staðnum vita hvað gerðist. Fyrir hina sem ekki vom beinir þátttakendur er erfítt að vita sannleikann - „var þetta svona í raun og vem“? Á þennan hátt láta margir sig dreyma um að fá gest úr fortíðinni til að svara mörgum ósvömðum spurningum. Það er ómetanlegt að geta spurt fólk úr spjömnum sem sá allt með eigin augum. Þannig er þessi bók í raun gagnleg hcimild fyrir seinni tíma grúskara. Það er aldrei að vita hveiju sagnfræðingar, félagsfræð- ingar eða tónlistarfræðingar fram- tíðarinnar koma til með að beina sjónum að. Kannski diskóið fái ein- hvern tfmann uppreisn æm? Diskó er ekki bara diskó Á bókarkápu lofa höfundamir því að opna augu þeirra sem lesa. Og þá sérstaklega augu þeirra sem halda að diskó sé bara „YMCA“, Bee Gees- bræður, glitrandi augnskuggi og glansandi föt. Diskó var bæði annað og meira. Diskóið varð að alþjóðlegri tísku- bylgju, en hafði þrifist lengi áður og þá f mun hreinni mynd. Vinsældir þess jukust jafnt og þétt og á endan- um snerist allt um diskó. Diskó varð söluvara og almenningseign. Áður hafði diskóið verið cinkaeign inn- Titill: The Voices ofMarrakcsh. Höf: Elias Canetti. Útg.: Marion Boyars, 1993. Bókin er 103 bls. og má panta f Bóksölu stúdcnta. SUMIR höfundar ráða yfir svo góðri frásagnartækni að þeir geta lýst sandi á hundrað blaðsíðum með þeim árangri að lesturinn verður bara allt í lagi. En bara allt í lagi. Því miður eru til höíúndar sem halda að góð frásagnartækni sé nóg og falla í þessa frekar þurru sandgryfju „góðs texta“. Svo eru til höfundar sem ráða yfir svo góðri frásagnar- tækni að þeim dettur ekki til hugar annað en þannig eigi það að vera. Hún bara er í blóðinu og pennanum en í höfðinu er allt annað og svo miklu meira. Þannig höf- undur var Elias Canetti. The Voices of Marra- kesh segir frá nokkurra vikna dvöl Canettis ein- hverntíma á sjöunda áratugnum í Marokkó. Bókin er óljóst sambland af ferðasögu og frábærum hugleið- ingum höfundarins um það sem fyrir augu ber. Hann er dreginn áfram af mjög svo heilbrigðri for- vitni og nær að láta allt daglegt líf koma sér við með einhverjum hætti. Það er enginn eiginlegur þráður í bókinni en Marrakesh og sterkt sjónarhorn Canettis ramma hana inn. Einn kaflinn fjallar um úlfaldamarkað í borginni, sá næsti hvernig best er að velja sér brauð- hleif en sá næsti um betlara. Og svo framvegis. En vangaveltur um frekar stirt sambýli gyðinga, araba og Evrópumanna á staðnum ganga í gegnum allt saman. Þótt aldrei komi fram hvaðan höfundur er að koma eða hvert að fara gæti manni ekki staðið meira á sama. Canetti er svo öruggur leið- sögumaður að frásögnin líður áfram eins og ljúfur draumur. En það er varla hægt að lýsa þessari bók betur en kápan gerir. Lestur- inn er einhvemveginn eins og læð- ast inn í þessa hvelfingu. Og vona að enginn komi. Elias Canetti fæddist 1905 í Búlgaríu en fluttist með fjölskyldu sinni til Englands og síðar Austur- ríkis þar sem hann lærði efnafræði. Arið 1938 flúði hann undan nasist- um til Englands aftur og gerðist enskur ríkisborgari 1952. Hann skrifaði leikrit, ritgerðir, ferða- og skáldsögur en er líklega þekktastur fyrir bækurnar Auto-da-Fe (The Tower of Babel) og Die Gerettete Zunge (The Tongue Set Free) svo og skrif sín um Franz Kafka. Can- etti hlaut Nóbelsverðlaunin 1981. Hann lést 1994. Huldar Breiðfjörð Diskótímabilið er sveipað töfraljóma í huga margra. Sumir minnast þess með eftirsjá, aðrir með hryllingi, enn aðrir misstu af því - voru einfaldlega ekki fæddir. Silja Björk Baldursdóttir glugg- aði 1 bók, fyllta ljúfsárum minningum, um sögu diskósins. vígðra. En þegar fjöldinn var kominn á bragðið komu peningamir í spilið og kapphlaupið hófst um að græða sem mest á neyt- endunum. Tónlistin varð smám saman ódýr söluv- ara og ómcrkilegri fyrir vikið. Fleiri vilja en geta Fyrir þeim sem ekki þekktu til hljómaði diskó- tónlistin öll eins. Margir héldu því að þeir gætu samið diskólög og orðið frægir. Fjölmargir freistuðu gæfunnar og reyndu að slá í gegn. I bók- inni segir frá Þjóðverjum sem vildu verða stjörnur en í flýtinum skolaðist enskufra- mburður eitthvað til þannig að Tequila rimaði við Ven- ezuela (söngkonan var Sandra sem seinna söng lagið vinsæla Maria Magdalena). Höfundar bókarinnar hafa tekið saman ansi skemmtileg- an lista yfir tilraunir tónlistar- manna til að skipta um ham og gerast diskóstjömur. Sumum tókst vel upp en öðr- um sfður. Mikki Mús sendi meira að segja frá sér diskóplötu og þar var að fínna lög cins og Macho Duck. Allir vildu vera með. Og það yljar ef- laust mörgum íslendingnum um hjartarætur að tvisvar í bókinni rekst hann á samlanda sína. Upp era taldir Arni Egilsson og Thor Bald- ursson og minnst lítillega á framlag þeirra til diskótónlistar. Það er ánægjulcgt að rekast á fulltrúa okk- ar litla lands í svona stórri bók. Kvikmyndirnar fóru ekki var- hluta af diskóæðinu. í bókinni er yf- irlit yfir bíómyndir, bæði gamlar og nýjar, sem fjalla um diskóið. Sem fyrr - margir af vilja gerðir en tekst misvel upp. A1 Pacino sýndi von- lausa diskótakta (Cruising - 1980) en Patrick Swayze skaust upp á stjörauhimininn á hjólaskautum (Skatetown USA - 1979). Brasilíu- menn áttu sína diskómynd: Vamos Cantar Disco Baby (1979) og Þjóð- veijar Disco-Fieber (1980). Diskó alls staðar Ekkert er bókahöfundum óvið- komandi þegar diskó er annarsveg- ar. Diskóið var tónlist, diskóið var ákveðnir diskódansar, diskódrykk- ir, diskódóp. Og líka diskóföt. OIIu Nocturna: Grand- daughter of Drac- ula (1979) og Love First Bite (1978). eru gerð ítarleg skil í bókinni í bland við fróð- lciksmola. Sagt er frá mamii sem dó í loftræstikerfí skemmtistaðarins Studio 54. Hann fannst þegar lyktina af rotnandi líkamanum lagði um allt,. Hann hafði verið að reyna að komast inn á stað- inn - þú þurftir að vera nógu sætur eða frægur. Dansmenningin fær sinn skerf, öllum helstu danssporanum er lýst svo þeir sem heima lesa geti prófað. Og hjólaskautadiskóið fær sérkafla í bókinni. Jimmy Carter og Játvarður Bretaprins reyndu báðir hæfni sína á hjólaskautum þegar mesta æðið gekk yfír. Klámmyndaiðnaðurinn tók við sér og myndir eins og Roller Babies litu dagsins ljós. I bókinni era svo yndislegar ráðleggingar úr gömlum tímaritum og bókum um hvemig þú átt að klæða þig til að falla í hópinn eða þá skera þig úr. Regluleg diskókennslubók. Lífsstíllinn diskó hafði áhrif. Nú gastu dansað eins og þú vildir, einn og án félaga. Diskóið var samofíð réttindabaráttu samkynhneigðra og diskóið fléttaði ólíka kynþætti sam- an. En smám saman fór glansinn af diskóinu. Subbulegt lífernið tók sinn toll, eyðni kom til sögunnar, lög- reglan komst í spilið og fólk gafst upp á tónlistinni. Diskóið úrkynjað- ist og töfrarnir dvínuðu. En það lifír í minningunni - viðbjóðslegt tímabil en fallegt á sinn hátt. Forvitnilegar bækur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.