Skírnir - 01.01.1861, Qupperneq 78
80
FRÉTTII!.
Ilollaml.
Hollendíngar. Hin síöustu 200 ár hefir England vikiS Hollend-
ingum úr öndvegi í Ægishöll, þó eru þeir enn merk sjófara þjób,
hafa allmikinn kaupskipa flota, og eiga enn miklar nýlendur í
öBrum heimsálfum. Nú er Holland konúngsríki, en konúngsættin
er þó af hinni gömlu Oraniuætt. Fyrir 30 árum gekk Belgia
undan, og olli því bæSi þjóöerni og trú, því Hollendíngar eru
protestantar og Holland eitt höfubland sibabótarinnar, en þorri Belga
er pápiskr. Holland liggr, sem kunnugt er, í hvoptum Rínar.
Landib hefir í forneskju verib miklu víblendara en nú, en hafib
hefir geisab yfir löndin, og eru nú flóar og höf þar sem fyr var
land. Sumt hefir gjörzt síban sögur hófust, svo sem Zuiderflóinn.
Landib liggr víba undir marfleti, en stór vatnsföll falla eptir land-
inu; nú hafa landsmenn hlabib virkisgarba meb sjónum, til ab verj-
ast sjóflóbum, og meb ánum eru hlabnir stíflugarbar, þar sem
eyrarnar eru lægstar. Landsmenn hafa og ausib upp stórvötn, svo
sem Harlemerhafib, og yrkja nú þar land. þannig heyr þessi
starfsama þjób sífelt stríb vib gamla Ægi, vinnr lönd af honum,
en landib allt, er sem eitt engi ebr aldingarbr. Stundum brýtr
þó hafib herfjötra þá, sem mannshendr hafa sett, og flóir yfir akra
og tún, ebr árnar brjóta þvergarbana. I vetr nú fyrir skemstu
hefir orbib mikib tjón ab flóbum þessum. I frostunum, sem verib
hafa, hafa árnar bólgnab upp og stíflazt, og ólgab yfir akrana í
grend, en nú fyrir skömmu varb þó meira tjón; þá kom þeyr
og hláka, en er snjórinn þibnabi, fylltust árnar. Ein af megin-
kvíslum Rínar, sem rennr gegnum Holland, heitir Waal. Skamt
frá borginni Neemwegen braut á þessi garbana á 30 föbmum, og
geystist svo ótt inn á landib, ab hún reif meb sér byrbínga sem
lágu í ánni, og flóbi nú yfir alla bygbina, en allr kvikfénabr
druknabi og svo fjöldi manna; þab er nú sagt, ab nálægt 20,000
manns hafi þessa daga mist allt nema lífib eitt. Var farib á skip-
um þar sem ábr var land, en á stöku stab stóbu húsin upp úr, og
fólkib í efstu loptum og var því borgib þaban á skipum. Jafnsuart
og konúngr heyrbi þetta, fór hann þangab meb sonu sína — kon-
úngsefni, elzti sonr hans, var á Islandi 1845 — til ab veita hjálp
og huggun.
, /
I Hollandi hefir verib fullr fribr þetta ár, og engin stórtíbindi.