Skírnir - 01.08.1912, Blaðsíða 3
Friðrik konungnr hinn áttnndi.
195
hafði grunað firir fram, og vita allir, að það var
konungi vorum að þakka.
Friðriki konungi auðnaðist ekki að sjá þann
árangur af starfi sambandslaganefndarinnar, sem
hann hafði þráð svo mjög. Enn öll afskifti hans af
því máli sína best, hverju ástfóstri hann hafði tekið
við hina íslensku þjóð.
Hvern áhuga hinn látni konungur vor hafði á
því að efla mentir og vísindi íslendinga, það sjest
best á afskiftum hans af Háskóla Islands og Bók-
mentafjelaginu.
Háskólinn á honum tilveru sina að þakka. Það
var hann, sem ljet .‘leggja frumvarp til laga um
stofnun háskóla firir Alþingi, og hann staðfesti síðan
háskólalögin og öll önnur lög, sem háskólann varða.
Og á stofnunardegi háskólans 17. júní í flrra sendi
hann honum mjög hlíjar kveðjur og heiilaóskir.
Bókmentafjelaginu síndi hann hina mestu góð-
vild. Jafnskjótt sem hann varð konungur, -:gerðist
hann verndari þess. A hverju ári gaf hann fjelag-
inu höfðinglega gjöf, og ljeði auk þess Hafnardeild
fjelagsins ókeipis húsnæði i höll sinni. Þegar báðar
deildir fjelagsins vóru sameinaðar í eitt óskift fjelag,
ritaði forseti fjelagsins konungi brjef, skírði honum
frá breitingu þeirri, sem orðið hafði á fjelaginu,
þakkaði honum firir alla góðvild við það að undan-
förnu og óskaði þess, að hann síndi því sömu góð-
vild eftirleiðis. í svari, sem konungur ljet skrifa
fjelaginu skömmu áður enn hann dó (dags. 28. mars),
segist hann »fúslega takast á hendur vernd fjelagsins
13*