Skírnir - 01.08.1912, Blaðsíða 8
200
Jörgen Pétur Havstein.
höfuðbóndinn þar á Ströndinni, enda gerðist hann brátt
umsvifamikill í búnaði og samdi sig í öllu að háttum ís-
lenzkra meiri háttar bænda. Hafði hann sjávarútveg mik-
inn og lét stunda hákarlaveiðar á djúpi. Stóð þá fjárafli
hans á mörgum fótum, enda gerðist hann um hríð ósmár
að eignum að sagí var. Árið 1815 var honum falið um-
boð Reynistaðaklausturs og um eitt skeið hafði hann á
leigu konungstíundir í Skagafjarðarsýslu. Var hann mað-
ur vel viti borinn, stiltur og gætinn, en þéttur fyrir og
þungur nokkuð í viðskiftum að sögn; þó fekk hann jafn-
an gott orð og þótti mesti drengskaparmaður i hvívetna.
Hann andaðist 2. marz 1829 og varð harmdauði mörgum
nágrönnum sínum þar á Stöndinni. Hafði hann mælt svo
fyrir áður hann dó, að 16 fátækir Höfðstrendingar skyldu
bera kistu sína til Hofskirkju og taka hver í líkmanns-
kaup eina korntunnu. Var þetta um hann kveðið þar á
Ströndinni nokkru eftir andlátið:
Markaösstjóra margir stórum sakna,
bezthentur við bygðar grönd
bjargvættur á Hötðaströnd.
Má af þessu marka, að maðurinn var vel þokkaður af
alþýðu, þótt hann kunni að hafa verið nokkuð harðskift-
inn í verzlun á stundum.
Jakob Havsteen hafði gengið að eiga konu þá, er
Maren hét Jóhannsdóttir Birch. Hafði faðir hennar verið
beykir á Akureyri, en móðir hennar hét Kristín og átti
síðan aftur Jörgen Holm, er undirkaupmaður var fyrst í
Hofsósi, en síðan á Húsavik. Er það þvi auðsætt að ætt
hennar var einnig á marga vegu riðin við Island og Hofs-
ós frá öndverðu. Jörgen Holrn fór í kynnisför til stjúp-
dóttur sinnar í Hofsósi árið 1809, en týndist á heimleið í
jökulsprungu á Deildardalsjökli; þótti hann vei’ið hafa
hinn bezti drengur. Maren Birch, kona Jakobs Havsteens,
fekk og ágætisoi’ð og þótti gæðakona hin mesta og guð-
hrædd; er þess jafnvel sérstaklega við getið í stúdents-
vottorði sonar hennar. Var heimili þeirra hjóna við brugðið
fyrir myndarskap í hvívetna og var heimilisbragur islenzk-