Skírnir - 01.08.1912, Qupperneq 11
Jörgen Pétur Havstein.
203
mikið vera, ef Pétur amtmaður hefir eigi tekið nokkrum
áhrifum úr þessari átt á þroskaskeiði sínu, þótt hvergi sé
þess getið að vísu. Lífsstarf hans seinna meir ber þess
ljósan vottinn, að áhugamál hans voru öll hin sömu og
þau, er vöktu fyrir Baldvin, og stefnan hin sama: að
greiða fyrir atvinnuvegum landsins með félagsskap og
samtökum og efla manndáð og framtakssemi. Var hann
á skólaárunum orðinn svo þroskaður að aldri og skilningi,
að hann gat fyllilega metið þá lífsskoðun og þær kenn-
ingar, er Baldvin hélt fram. I Bessastaðaskóla mun hann
einkum hafa tekið áhrifum frá dr. Hallgrími Scheving, er
bæði var ágætismaður og ágætiskennari og gamall læri-
sveinn úr Hólaskóla. Lagði hann einkum stund á að
kenna piltum góða íslenzku, og svo gerði einnig Svein-
björn Egilsson, enda reis þaðan sú alda, og það einmitt
um þær mundir og nokkru síðar, sem gjörbreytti mál-
færi þjóðarinnar, hreinsaði það og fegraði. Varð Pétur
þar svo vel að sér í íslenzku, að fáir menn rituðu eða
töluðu jafnan betra mál og látlausara, þótt erlendur væri
að ætt og uppruna.
Haustið 1835 sigldi hann til Kaupmannahafnar til
þess að leggja sig eftir lögfræðisnámi við háskólann. Var
þá Baldvin látinn, en þeir Fjölnismenn komnir til skjal-
anna. Ekki vottar fyrir því, að þeir hafi ráðið miklu um
þroska Péturs Havsteins, og lítt mun hann hafa þyrlast
með af uppgangsveðri því, er þá rann óðfluga um allar
álfur og stafaði frá júlíbyltingunni á Frakklandi; mun
hann eigi hafa tekið neinn þátt í fundahöldum íslendinga
í Kaupmannahöfn eða bollaleggingum um þessar mundir,
enda var hann aldrei neinn málrófsmaður, heldur fram-
kvæmda- og starfsmaður. Gaf hann sig allan við náminu
og tók próf í lögum með fyrstu einkunn haustið 1840.
Þó kynti hann sér allvel íslenzk mál og sögu landsins og
háttu betur en flestir íslenzkir lögfræðingar um þær mundir,
og kom það honum vel að haldi síðan við öll embættis-
störf á Islandi. Að loknu embættisprófi fekst hann við
ýmsar sýslanir í Kaupmannahöfn og var fjögur ár í