Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.08.1912, Side 24

Skírnir - 01.08.1912, Side 24
214 Jörgen Pétnr Havstein. þegnskap Norðlendinga, er það kom upp úr dúrnum, rétt um nýjár um veturinn, að kláðinn var kominn víða nokk- uð um vestursveitirnar í Húnavatnssýslu. Amtmaður brá við þegar og skipaði (21. jan.) á eigin ábyrgð niðurskurð alls sauðfjár í sveitum þeim, er sýkin var mest, en alls geldfjár í Húnaþingi vestan Blöndu, gegn því að aðrar sýslur í umdæminu héti að taka þátt í skaðanum að til- tölu við fjáreign sína1). Er það hvorttveggja, að amtmað- ur og Norðlendingar yfirleitt töldu þetta eina ráðið til að hefta útbreiðslu sýkinnar, og hitt annað, að í Norðurlandi voru þá sem stóð hvorki læknar né læknisdómar, svo að eigi þótti tiltækilegt eða vonlegt að stöðva sýk- ina með lækningum. Kvaddi amtmaður menn úr öllum norðursýslunum sér til aðstoðar og ráðuneytis við niður- skurðinn og aðrar varnir, en mestu réði hann þó sjálíur og ráðstafaði í því efni. Hélt hann amtsfund í Hólanesi 23. maí um vorið til að ræða þetta mál og voru þar sam- þyktar Reglur til að uppræta fjársýkina í Húnavatnssýslu og til að varna útbreiðslu hennar. Er þar haldið fram tafarlausum niðurskurði á öllu sýktu og grunuðu fé, ítarlegum og endurteknum rann- sóknum á sauðfénaði og strangri gæzlu heima við hús. Jafnframt var ályktað, að setja skyldi vörð, 20 menn, til fyrirstöðu við Blöndu frá bygð í Blöndudal upp að jökli og við jökulfallið. Var það tilgangurinn að reyna að varna sýkinni að komast austur yfir Blöndu2). Stjórnin í Kaupmannahöfn hafði hingað til sýnt all- 0 Amtmaður endaði bréf sitt með þessum orðum: „Eg fulltreysti þvi, að mínir bæru Húnvetningar, er eg hefi skoðað sem fyrirmynd ann- ara Islendinga hvað dugnað og drenglund snertir, láti eigi ímyndaðan eigin hag og sérlyndi aftra sér frá að fylgja mér samhuga i framkvæmd þess, er eitt getur frelsað þá og aðra amtsbúa frá hallæri og hungurs- neyð“. I öðrum bréfum dags. 6. og 10. febr. brýndi amtmaður enn betur niðurskurðinn fyrir Húnvetningum og tók fram hinar nánari roglur, er fylgja skyldi við framkvæmd hans. Bannaði hann um leið allar lækn- ingatilraunir, með því að þær gætu ekki samþýðst öðrum þeim ráðstöf- unum, er gerðar hefðu verið til að sporna við útbreiðslu kláðans. 2) Norðri VI. árg. bls. 38.

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.